Vísir - 10.08.1970, Blaðsíða 1
VISIR
60. árg. — Mánudagur 10. ágúst 1970. — 178. tbl.
LEIGUBÍLSTJÓRI ILLA
LEIKINN EFTIR ÁRÁS
— farjbeg/ réðst þrisvar á hann i bilnum
• Leigubílstjóri varð fyrir árás j var aö aka farþeganum og
farþega á laugardag, er hann ' fleira fólki út á flugvöll, en fólk-
Tókst naumlega að lyftaflug
vélinni yfir hianninn
Heppni að vélin var galtóm, segir flugstjóri Friendship-vélarinnar
0 Litlu munaði, að illa
færi, þegar maður
hljóp út á flugbrautina á
Reykjavíkurflugvelli ein
mitt í sömu svifum sem
Fokker Friendship-vél
Flugfélags íslands var
að hefja sig til flugs af
brautinni í gærkvöldi kl.
21.40.
0 „Við vorum komnir
á það mikinn hraða,
að okkur þótti vafasamt
hvort við næðum að
stöðva vélina á þeirri
vegalengd, sem við átt-
um ófarna að mannin-
um,“ sagði flugstjórinn,
Jón R. Steindórsson, við
Vísi.
„Það var alls óvíst, hver við
brögð hans yrðu — hvort hann
mundi nema staðar, snúa viö
eða gera hvað — svo að við
gripum til þess .aö hefja vélina
á loft, en við vorum svo heppn
ir að hún var galtóm og fis-
létt og flugtakiö -tókst ágæt-
lega“, sagði Jón flugstjóri. Vél
in var á leið til Vestmannaeyja
að sækja fólk af þjóðhátíð.
Var maðurinn kominn út á
miðja flugbraut, þegar flug-
mennirnir komu auga á hann og
fengu samtímis viðvörun úr
flugturninum, þar sem flugum-
ferðarstjórar horföu á atvikið
með öndina í hálsinum, en það-
an frá séð var tvísýnt, hvemig
fara mundi.
Lögreglunni var afhentur
maðurinn, sem kvaðst hafa ver
ið á kvöldgöngu í góða veðrinu,
en þetta var um kl. hálf tíu í
gærkvöldi. Sagðist hann hafa
ætlað að styttá sér leið yfir
flugbrautina og ekki hafa séð
flugvélina, fyrr en hann var
kominn út á brautina, en þá
greip hann fát, og hann aetlaði
að hlaupa áfram —úr vegi vél
arinnar. Vegna krankléika var
hann með bómull troðnaíéyrun
og heyrði ekki í fyrstu flugvélar
dyninn.
„Umferð óviðkomandi fólks á
flugvellinum hefur verið okkur
sífellt áhyggjuefni", sagði'Gunn
ar Sigurðsson, flugvallarstjóri í
samtali við blaðam. Vísis í morg
un .„Þrátt fyrir strangt bann á
rápi yfir flugbrautirnar og viður
lög, sem nema tugum þúsunda í
sekt, er ævinlega fólk á stjái,
sem viö verðum að verja'flug-
brautimar fyrir. Til þess höfum
við einn bíl á stööugu varöbergi
allan daginn, en gamla girðing
in er varla mannheld' og gegnir
illa sínu hlutverki. Við emm að
koma upp annarri nýrri girð-
ingu eftir því sem fjármagn leyf
ir okkur og gemm okkur vonir
um að hún muni létta okkur
eitthvaö gæzlu vallarins." — GP
I ið ætlaði til Vestmannaeyja. Var
I fólkið orðið of seint til að ná
í flugvélina og sneri bílstjórinn
við með það, en eftir margend-
1 urteknar árásir eins farþegans
á bílstjórann, náði bílstjórinn I
lögregluna. Var fólkið allt á bak
og burt er lögreglan kom, en
bilstjórinn liggur nú með sokk-
ið auga og getur ekki mætt til
vinnu þessa viku.
Blaðiö náði sambandi við þenn-
an bílstjóra í morgun, en hann
heitir Þór Magnússon og ekur á
Bæjarleiðum. Þór sagði svo frá at-
burðunum:
Það var um þrjú leytiö á laug-
ardag, að ég tók tvo menn upp í
bílinn, ók þeim aö húsi, þar sem
anpar fór inn. Hinn farþeginn var
ölvaður, en mjög rólegur. Skyndi-
lega reis hann upp í aftursætinu og
þreif fyrir bringu mér, sneri mér
við í sætinu og skellti höfðinu í ■
gagnaugað á mér. Ef ég mjög mar-
inn á höfðinu og annað augað
sokkið eftir þessar barsmíðar. Hinn
farþeginn kom nú og stúlka með
honum og ók ég þeim áleiðis út
á flugvöll, en þau ætluðu til Vest-
mannaeyja. Réðist hann þá aiftur
á mig, en hinn farþeginn gat hald-
ið honum. Nú varð fólkinu ljóst,
að þaö hafðj misst af vélinni og
var þá snúið við. í þriðja sinn réö-
ist maðurinn á mig, en þá bar að
bíl og gat ég kallað á lögregluna.
Þegar hún kom var fólkið allt á .
bak og burt. Lögreglan er nú með
málið í rannsókn, en Þór er undir
læknishendi og veröur að liggja.
þessa viku í rúminu. • — ÞS •
Ökumaður á trylltum
flótta undan lögreglunni
Hafði næstum ekið tvo lögregluhjóna niður Lá við stórslysi
• Rauð ljós og sírenuvæl lög-
reglubifreiðanna, sem eltu 18
i ára gamlan ökuþór úr Hafnar-
firði aðfaranótt sunnudags,
böfðu engin áhrif á ökumann,
sem gerði allt hvað hann gat til
þess að hrista af sér eftirfylgd-
ina.
• Einhver glæfralegasti akst-
ur, er lögreglan hefur orðið vitni
að, átti sér stað þessa nótt, þeg-
' lögreglumenn reyndu að stöðva
, bifreið af gerðinni Volvo (model
1970), sem nærri hafði ekið yfir
tvo Iögreglumenn í miðbænum,
j þegar þeir reyndu að stöðva öku
: manninn.
Pilturinn hafði séð stöðvunar-
j merki lögreglumannanna tveggja,
: en jók bara hraðann, og tókst
] mönnunum með herkjum að forða i
• sér úr vegi bílsins. En síðan hófst >
’ mikill eltingaleikur, sem barst *
• um fjölmargar götur í eystrj hluta
, borgarinnar.
; M. a. var ekið um Kringlumýrar-
■ braut, Miklubraut, Háaleitisbraut,
! Ármúla, Fellsmúla, Hallarmúla,
' Suðurlandsbraut og Skógargerði,
t svo nefnt sé eitthvað er gefur til
kynna svæðið, sem farið var yfir.
Nokkrum sinnum gafst lögreglu-
■ mönnum á bifreiðum sínum tæki-
’ færi til að króa pilt af í götum, en
; hraði bifreiðar hans var slíkur, að
' lögreglumennirnir vildu ekki tefla
á þá hættu, að af hlytist stórslys.
Munaði eitt sinn afar litlu, þeg-
i ar ökuþórinn geystist frahí úr bif-
! peið hjá Múla á Suðurlandsbraut,
en þá var strætisvagni ekið í sömu
mund inn á Suðurlandsbrautina. En
vagnstjórinn sýndi það snarræði,
sem dugðj til að koma í veg fyrir
slys.
í Skógargerði stöðvaði flótta-
maðurinn bifreið sína og hljóp út
úr henni, Hljóp hann síðan eftir
hitaveitustokk og yfir í Litlagerði,
þar sem hann faldi sig í trjágarði,
en fannst og var handsamaður.
Viðurkenndi hann eftir á að hafa
ætlað að flýja undan vörðum lag-
anna, en hann hafði orðið hrædd-
ur, þegar honum voru fyrst sýnd
stöðvunarmerki, því aö hann hafði
fyrr um kvöldið drukkið tvö til þrjú
glös af ákavíti. — GP
//
Verðum að sá afiur''
segir garðyrkjusfjóri — erfitt að fá mold og þókur
• Við höfum unnið óhemju
mikið undanfarið að því
að sá í og þekja ýmis svæði
og eyjur við malbikaðar göt-
ur í bænum. Það fræ, sem
hefur verið sáð í vor, spírar
mjög illa og við búum okkur
undir aö sá í þetta mestallt
aftur næsta sumar,“ sagði
garðyrkjustjóri, Hafliði Jóns-
son, er blaðið hafði samband
við hann í morgun.
Hafliði sagöi ennfremur, að
blómin, sem gróðursett voru í
vor, spryttu mjög illa, enda gróö
ursett mun seinna en vanalega
vegna verkfalla og ótíöar. Út-
litið í garðlöndunum við Korp-
úlfsstaði er einnig slæmt, nema
haustiö verði því betra. Mold
og þökur er oröiö erfitt að fá í
Reykjavík og sagði Hafliði, aö
nú yrðu þeir að sækja allar
þökur austur í Ölfus.
„Moldin er líka að ganga til
þurrðar og viö búumst eins viö
að þurfa að fara að sækja hana
austur fyrir fjall líka,“ sagöi
Hafliði. - ÞS
v'v™ ir~ ' ,\rr «
Á sólardögunum uiidanfarlð, sérstakléga nú uiii helgina, hafa margir brugðið sér út í garð og hugað að gróðrinum, bæði ungir
sem gamlir. Þar sem sáö hefur verið er spretta ínjög slæm og allt útlit fyrir, að sá verði í það aftur næsta sumar.