Vísir - 18.08.1970, Blaðsíða 1
ít^Sr,
VISIR
69. árg. — Þriðjudagur 16. ágúst 1970. — 185. tbl.
Veldur moldaruppfyllingin
veiðitregðu í Elliðaánum?
. - . . _ _ . . , i i , Laxveiði hefur verið heldur
Aðems 670 loxot komnir por O lono I Sllfnot treg í Elliðaánum í sumar
____________________________°8 hafa margir leitt að því get-
Hvergi bensínafgreiðsla fyr■
ir flugvélarnar úti á landi
— Aðeins á Akureyri, Keflavik og Reykjavik
jí sambandi við flugslysið
á Keflavíkurflugvelli hafa
;augu manna opnazt fyrir
|því að bensínafgreiðsla er
hvergi til staðar úti á landi
jfyrir flugvélar nema á Ak-
ureyri, þar sem Shell er
með tank fyrir flugvéla-
bensín. Annars staðar er
ekki hægt að fá bensín á
vélarnar undir venjulegum
kringumstæðum.
Flugfélag íslands hefur aö vísu
fcantoa á þremur sfcöðum, ísiafiröi, Eg
ilsstöðum og Hornafirði, en þar er
ekki um afgreiðslu að ræða, þótt
oft hafi verið hægt að fá bensín
úr þessum tönkum á einkavélar,
þegar svo hefur staöið á.
Flugmenn litlu flugfélaganna
hafa hins vegar litiö svo á oft á tíð
um sem þama væri um bensínaf-
greiðslu að ræða, en að sögn Ein-
ars Helgasonar hjá Flugfélaginu er
þar um misskilning að ræða.
Þetta getur hins vegar orðið til
þess að flugmenn á litlu vélunum
tefli á tvær hættur með því að
fljúga á síðasta dropanum.
Bensínafgreiðsla er að sjálf-
sögðu í Reykjavík, þar sem Shell
er með tanka á vellinum og i
Keflavík, þar sem Shell og Esso sjá
um afgreiðsluna. —JH
'............................................ ..........................................................
um, að moldaruppfyllingin út
með ósnum hafi dregið úr laxa-
gengd. Hafi moldin litað vatnið
frammi við ósinn og þar meö
dregið úr laxagengdinnL Al-
mennt virðast menn vera síður
trúaðir á, að brúarframkvæmd-
irnar hafi haft áhrif á laxinn.
Aðeins um 670 laxar höföu
veiðzt í ánum í gærkvöldi, en
til samaniburðar má geta þess,
að f fyrra veiddust um 1330
laxiar allt sumarið. Um mánuður
er enn eftir af veiðitímanum í
ánum, en hæpið er að veiðin
verði neifct svipuð í sumar og í
fyrrasumar.
Ámar hafa verið mjö.g vafcns-
litlar í sumar, sem einnig gæti
verið ástaeða fyrir veiðitregðu,
en töluverður lax virtist vera í
ánum í gær, þó aö lítið hefði
veiðzt.
Talið er sennilegt, að árnar
jafni sig affcur, þegar mold hætti
að berast út í ámar úr uppfyil-
ingunni, en ekki eru veiði-
menn á einu máli um þaö, hvort
ós árinnar hafi batnað eöa
versnað við tilkomu hólmans.
— VJ
Þetta er kannski dálítið óvenjulegt kirkjuhús, enda er þama aöeins um að ræða hluta kirkjubyggingarinnar allrar, það er
að segja safnaðarheimilið.
Safnaðarheimilið bíður fokhelt eftir nýja prestinum
— Prestskosningar i Grensássókn i haust
ic í Grensásprestakalli standa
fyrir dyrum prestskosningar
f haust. Umsóknarfrestur um
prestakallið er útrunninn þann
20. ágúst. Séra Felix Óiafsson,
sem verið hefur prestur Grens-
ásbúa frá því söfnuðurinn var
stofnaður er nú á förum til Nor-
egs, tii þess að taka við prests-
embætti þar. Ný og glæsileg
kirkjubygging, eða safnaðar-
heimili, bíður nýja prestsins í
Grensássókn.
Að sögn Guðmundar Magnús-
sonar, skólastjóra, formanns
sóknamefndarinnar er húsið nú
fokhelt og næsta stig byggihg-
arinnar verður að einangna og
leggja hita í húsið. Safnaðar-
heimilið á að verða tilbúið
haustið 1972 samkvæmt áæfclun.
Hér er aðeins um að ræða bluta
kirkjubyggingar sem þama á að
rísa, það er safnaðanheimiKð.
— JH
Kjördæmisráð Vesturlands j
velur 5 menn í prófkjör
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins i Vesturlands-
kj'órdæmi 23. ágúst
•k Kjördæmisráð Vesturlands-
kjördæmis ákvað á fundi sín-
um s.l. laugardag, að prófkjör
skyldi fara fram í kjördæminu 23.
ágúst. Verður framkvæmd þannig
hagað, að kjörstaðir verða opnir í
þéttbýll kjördæmisins, en kjör-
gögn send heim í strjálbýlinu. Þátt-
taka í prófkjörinu verðuð miðuð
sjálfstæðismenn og aðra stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins.
Kjördæmisráðið lét fara fram
skoðanakönnun á fundi sínum um
5 væntanlega frambjóðendur til
prófkjörsins, en síðan munu hin
einstöku ful'ltrúaráð kjördæmisins
gera tillögur um fjór menn hvert
til viðbótar. Þeir fimm sem efstir
urðu í skoðanakönnun kjördæm-
isráðsins voru Friðjón Þórðarson,
sýslumaður í Stykkishólmi, Jón
Ámason, alþm. á Akranesi, Kal-
man Stefánsson, bóndi í Kalmans-
tungu, Skjöldur Stefánsson í Búð-
ardal og Ásgeir Pétursson sýslu-
maður í Borgamesi. Förmáður kjör-
dæmisráðs er Gunnar Bjarnason,
kennari á Hvanneyri. — VJ
Það er einhver hrekkjalómur, sem gabbar slökkviliðið og fleiri
að húsi einu við Ásgarð æ ofan í æ — en hver það er, veit eng-
inn — nema viðkomandi gefi sig fram.
Sápukúlur í
hush-skýjum
Blaðamaður Visis
lýsir áliti sinu á Höfn
— sjá bls. 9
^VWNAAAAAAAAA/VWNAAA .
Hver stendur
að gabbinu?
Sendir leigu-, sendí-,
rútubila og sl'ókkviHð
á sama staðinn
• Lögregla, slökkvilið og
sjúkralið var í gærdag
kvatt að húsi einu við Ás-
garð, en þegar til kom reynd-
ist þetta vera gabb. Sá, sem
gabbaði, var þó greinilega að-
stæðum eitthvað kunnugur
þarna, því að hann tilgreindi
nafn húsráðanda, þegar hann
bað um aðstoð ofannefndra
aðila.
Svo kom í ljós, að þetta var
reyndar ekki í fyrsta skiptið,
sem einhver hefur gert það að
leik sinum að gabba menn að
þessu sama húsi. í öðrum til-
íelium hafa það verið sendi-
ferðabílar, leigubílar, rútubllar
og því um 'líkt, sem beðnir
hafa verið að koma að þessu á-
kveðna húsi við Ásgarð.
En húsráðendur kannast ekk-
ert við þaö að hafa nokkum
tíma beðið um neitt af þessu. 1
öll skiptin hefur verið beðið um
þjónustu þessara aðila í gegnum
síma, og engan grunaði neitt
misjafnt, fyrr en á staðinn var
komið. Svo að engum getum
verður að því leitt, hver prakk
arinn er, sem að þessum hrekkj
um stendur, en líklega er það
þó sá sami í hvert skipti. — GP