Vísir - 18.08.1970, Blaðsíða 5

Vísir - 18.08.1970, Blaðsíða 5
Ungir Víkingar heim úr sigur- sælli Þriðji floikikur Víkings er nýkom- íinn heim úr mjög árangursríkri iDanmerkunför, þar sem flokkurinn ]lék fjóra leiki og sigraði í öllum . — og það þóbt þeir léku við sér ;eildri drengi í þremur aif leikjunum. fVffldngar fóm utan í boði Aka- ^diemisk BoMklub í Kaupmanna- ■höifn. . Þegar AB lék hér á landi í fyrra- sumar néði Ólaifur Erlendsson í . stjóm Rnattspyrnudeildar Víkings • samningum um utanförina við •' varaförmann AB, og var í fyrstu , æitlunm að í förinni væru einnig 2. * flokks drengir úr Víking. Af því varð ek'ki og hinn sigursæli þriðji ' flokkur, sem sigraöi í Reykjavíkur- mótinu fyrr í sumar, fór hins vegar : til Danmerkur, en Danir reiknuðu ' hins vegar með eldri drengjum og mættu Víkingar því 2. flokks liðum í þremur leikjanna. Fyrsti leikurinn var í Kaup- ■ mannahöfn 27. júli gegn AB, sem : lék með 2. flokki sínum, sem er í : efsta sæti í sioum aldursflokki í Sjálandsseriunni. Þetta var skemmtilegur og jaifn leikur, en Víkingar sigruðu með 3—2. Næsti Ieikur var 29. júlí gegn Köge og þar’sígraði Vfkingur einnig með 3—2, en í liöi Köge voru 7 i Leikmenn úr 2. flokki og fjórir úr ferð 3. Plokki. Þriðji leikurinn var dag- inn eftir gegn 2. flokki Birkeröd og þar sigraði Víkingur með yfir- burðum 7 — 1. Fjórði og síðasti leikurinn var 1. ágúst og mættu Víkingar þá í fyrsta skipti jafnöldrum sínum, 3. flokki Herlev og sigruðu með 2—0. Móttökur allar í Danmörku voru hinar beztu — drengimir ferð uðust meðal annars til Svíþjóöar — og f lokahófi, sem var haldið Vík ingum til heiðurs, sagði einn af for- ustumönnum AB. að þetta væri bezti flokkur, sem heimsótt hefði félagið í sínum aldursflokki. í för- inni voru 20 leikmenn, en farar- stjórar þeir Eggert Jóhannesson og Kristján Pálsson. Að lokum má geta þess, að 3. flokkur Víkings hefur ekki tapað leik hér heima í sumar. Flokkurinn sigraði í Rvíkurmótinu og skor- aði þar 29 mörk gegn þremur í sex leikjum, og i fjórum leikjum, sem hann hefur leikið í íslandsmót- inu hefur hann sigrað í öllutn, skorað samtails 31 mark gegn tveim ur. í 10 leikjum flokksins hér heima hefur hann skorað 60 mörk gegn fimm og piltarnir hafa ávallt verið mjög sigursæJir, -ekki -aðeins nú í 3. flokki heldur einnig á und- anförnum árum í 4. og 5. flokki. „Heilbrigð sál i hraustum likama" Að viðhaida slíku kostar talsvert fé á íslandi Ingólfur Óskarsson, hand- knattleiksmaður úr Fram, og fyrirliði fsilenzka landsliðsins, opnaði sd. laugardag nýja sport- vöruverzlun að Kiapparstíg 44 (við Njálsgötuhornið), og í gær heimsóttum við hann og eigin- konu hans, Margréti Kjartans- dóttur í verzlun þeirra. Þar gát- um við séð að toJJayfirvöld virö- ast líta á íþróttaiðkun sem háilif- gert pjatt, — a.m.k. virðast þau ekki vilja stuðila að þvi fyrir sitt leyti að Isilendingar viðhaldi heilbrigðri sál í hraustum lík- ama IngóLfur kvað vörurnar frá EFTA-löndunum þó koma mun betur út í verðlagningunni. Við spurðum urn nauðsynlegan út- búnað fyrir þá fjölmörgu, sem nú eru að undirbúa skokkferil sinn, en þeir eru margir. Góður íþróttabúningur (buxur og treyja) kostar frá 1200 til 2000 krónur, en góðir skór kosta um 300 krónur. Að vísu er þetta ekki mikið fé, þar sem svo mik- ið er í húfi sem sál og líkami, en væri það ekkj þjóðfélagslega góð fjárfesting að greiða fyrir aimennri íþróttaiðkun í landinu? Ingólfur kvað verzl. einkum mundu selja allt er viðkemur knattleikjunum, handknattleik (þar sem sérfræðileg ráð verða Þetta á aS verða íþróttatízk- an í ár, — húfa og trefill í félagslitunum. Ódýrt og gott í haustkuldunum á veilinum. að sjáltfsögðu göfin) knatt- spyrnu, körfuknattleik, goJif og svo vérður þarna allt fyrir skokkarana. — JBP „Heilbrigð sál í hraustum hinir fornu, og þessi setning Ííkama“, sögðu Heílfenar hefur fylgt mannkyninu gegn um aldirnar. Á íslandi kostar það talsvert fé að fylgja þessu hellenska heilræði. Ungu Víkingarnir, sem fóru sigurförina til útlanda. „Lagði hattinn yfir svo kúlan færi örugglega ekki upp aftur“ „Ég ætllaði að sneiöa kúluna upp í vindinn, en var of grðfur, svo að hún lenti á steini í fjör- unni og hrökk út í sjó svo ég varð að byrja á sama stað og i þriðja höggi“, sagði Þorbjörn Kjærbo, þegar fréttamaður Visis spjallaði við hann, eftir að ís- landsmótinu í golfi var lokið í Leinunni á laugardaginn, „og í stað þess að leiða keppnina á- samt Þórarni Jónssyni, frá, Akur- eyri var ég orðinn tveiinur dýrmætuan höggum undir, en ég gaf þó ekki sigurvonina upp á bátinn. Reynslan hefur xennt mér að enginn getur gengið til keppni, í golfi meö vísan sigur, svo ekki þýðir að æðrast þótt eiöthvað gangi úrskeiðis. Þrátt fyrir óhappið, við 6. hokma, ein- setti ég mér að halda sama takti og mýkt og reyna að síga á hægt og bítandi, sem tókst, þó ekki fyrr en í 17. eða næst siöustu holu, en þá náði ég tvaggja högga forskoti, fór hana á pari, en Þórarni brást bogalistin, fór hana í sjö höggum, en taugar hans biluðu ekkert við það og lokaspretturinn var erfiður, og þegar kúlan, sem tryggði mér sigurinn rann ofan í holuna, lagði ég hattinn yfir, svo hún kæmi ekki upp atftur," sagði Þorbjörn og brosti,“ annars var þessi þriðjo sigur minn nokkuð óvæntur, ég er æfingarlítill, svo ég get verið ánægður með ár- angurinn og ekki spillir það gleðinni, hvað árangur okkar Suðurnesjamanna í mótinu var góður, við áttum einnig þriðja mann í meistaraflokki, Jóhann Benediktsson, setn háði mjög harða keppni um það sæti, en hann er mjög kænn spilari, einnig fjóra fyrstu menn f I. flokki, og ytfirieitt voru kepp- endur frá GS framariega í röð- inni i öllum. flokkum," sagði Þorbjörn að lokum. Eins og árangur Suðurnesja- manna sýnir er golfáhugi þar mi’k'ill, og setur nokkurn svip á daglegt líf manna hér syöra, jafnt hjá ungum sem öldnum. Sú saga er sögð, og má gjarnan fylgja þessu spjalli, að þegar barnaskólakennari hér syðra spurði nemanda sinn í landa- fræði í vetur, hvaðan Gollf- straumurinn kæmj og hvert hann lægi, var svarið: frá Kef'la- vík og út í Leiru. AlfGVWég hvili dfa meó gleraugum frá IWll Austurstræti 20 Simi 14566

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.