Vísir - 08.10.1970, Blaðsíða 1

Vísir - 08.10.1970, Blaðsíða 1
Nýr bílmótor fyrirmynd íslenzkra gufuaflstöðva? Ný hugmynd, er valda kann byltingu / framleiðslu rafmagns með jarðhita Nýja fasteignamatið lagt fram 22. október: TöSvan mat íbúðir Reykvík■ inga ú 49 klukkustundum — hefði ella verið 15 ára starf fyrir einn mann □ Nýja fasteignamatið Kærufrestur til fast- verður lagt fram 22. eignamatsnefndar verð- október. — Liggur það ur fimm vikur frá fram- frammi í einn mánuð. lagningardegi talið. Með nýja fasteignamatinu stórhækk'ar fasteignamat, sem mun e. t. v. hafa áhrif á fast- eignaskatta auk þess sem búast má við ýmsum lagabreytingum í sambandi við nýja matið, en það eru 62—63 lög, sem grípa inn í fasteignamatið nú. Gamla fasteignamatið er frá árinu 1942 og má því búast við allstór- tækum breytingum á fyrrnefnd- um atriðum. Blaðið hafði í morgun tal laf Pétri Stefánssyni, verkfræöingi, sem er starfsmaður Reykjavík- umefndar Fasteignamatsins. I morgun fór fram síðasta matið á nokkrum húsum í Reykj'avík f Reiknistofnun Háskólans — en þar var unnið að smáleið- réttingum á mati þessara húsa. Fasteignamatið er unnið með tölvum að hluta, og gat Pétur þess til gamans, að þaö hefði tekið 49 klukkustundir að meta öll íbúðarhús í Reykjavík með tölvuvinnu, sem hefði verið 15 ára starf fyrir einn mann. — Pétur sagði, að rafreiknirinn væri látinn reikna út endurstofn verð á húsunum, síðan færu all- lar niðurstöður í Skýrsluvélar Reykjavíkurborgar, þar sem öll gögn séu geymd á seguldiskum. Varðandi hækkunina á fast- eignamatinu sagði Pétur eftirfar andi: „Það er ekkert leyndar- mál, laö matið verður hækkað. Samkvæmt iögum var okkur uppálagt að meta fasteignir til sanngjarns söluverðs, og það er búið aö gera það.“ Þá sagði Pétur, að þbð hefði tekiö mörg ár aö vinna nýja fasteignamatið. Lögin um nýja fasteignamatiö hefðu verið sett árið 1963 og fljótlega upp úr því hefði fyrsti undirbúningur byrj'að. Fyrsta upplýsingasöfn- un fyrir fasteignamatið hefði byrjað fyrir fimm árum, en úr- vinnsla úr henni hafi farið fram síðustu 2 — 3 árin. Margar mats- aðferðir hefðu verið 1 gangi eða þrjár. Með nákvæmustu mbts- aðferðinni hefði húsum, þar á meðal íbúðarhúsum, verið skipt niður í 21 hverfi. Til hagræöing ar hefðu verið sett upp prógröm og unnið úr upplýsingum með tölvum. — SB H Forráðamenn orkumála hér á Iandi hafa nú fengið nýja byltingarkennda hugmynd að glíma við á svifti raforkumála. Allt bendir til þess, að ný teg- und af bifreiftamótor, sem nú er verið að reyna í Bandaríkjunum og í Japan, gæti orðið fyrir- myndin aft gufuaflstöftvum hér á landi, þar sem jarfthitinn nýttist margfalt betur, en við aðferðir, sem nú eru þekktar og raforkuframleiðslan gæti orðið hagkvæmari bannig en við hagkvæmustu vatnsaflsvirkjan- Bandaríkjamaöur, Nelson að nafni var staddur hér í byrjun vikunnar til að kynna fyrir for ráðamönnum raforku- og rann- sókarmá'la nýja hugmynd yið framileiðslu raforku úr jarðhita sem fyrirtæki bas, Kineties Incorporated hefur þróað. — Aö því er Steingrímur Her- mannsson, framkvæmdastjóri Ramnsöknaráðs ríkisins sagði í viðtali við Vísi í morgun er þessi hugmynd til komin f sam- bandi við nýja tegund af bif- reiðavél, sem nú er verið að reyna í Bandarfkjunum og Jap- an. Þetta er túrhínuvél, sem er drifin á þann hátt, aö freon, sem er frystivökvi er hitaður upp, en við það þenst hann geysi- mikið út. Freon hefur mjög lágt suðumack, eða um 40 °C og er því hægt að notast við lægra hitastig en í öðrum vélum. Mjög hagfcvæmt vaéri að nota jarðhita ti'l upphitunar frysti- vökv ms, en með notkun hans má nýta jaröhitann mun betur en við aðrar þekktar aðferðir, þar sem nýting er aðeins 2-3% -> bls. 10. „Lítil hætta á, að aðrir ráði sig á skipirí' — segja farmenn á kaupskipaflotanum, sem hætta storfum um helgina Pétur Stefánsson „keyrði“ síðustu íbúðarhúsin í Reykjavík rafreikninum í morgun, fyrir fasteignamatió nýja. Floti, sem erfitt er að ná saman á eina Ijósmynd „Það gæti verið gaman að eiga Hann rétt hafði það atf að mynd af öllum bilaflota slökkvi smelia af. áður en sjúkrabfflinn liðsins", datt einum siökkviliðs var farinn úr hlaði. __GP manni f hug, og hvað er þá auð- veldara en s'tiila 8 slökkviliðs- bilum, 4 sjúkrabílum, 1 hjálpar tækjabil og 2 fólksbílum upp fyrir framan slökkvistöðina og smella af. Þar skjátlaðist mönnum þó. Slíkt er nefnilega -hægara sagt en gert. Og auðveldara væri ljósmyndaranum að taka hóp- mynd af 50 sex ára bömum, því að bílarnir tolla aldrei kyrrir. Það var efcki fyrr búið að raða þeim kyrfilega upp í röð, en neyðarkall barst, áður en ljós- myndarinn náði að munda vél- ina. Flest bendir til þess, að fyrstu kaupskipin muni stöðvast á miðnætti aðfararnætur næsta sunnud. og öll önnur kaupskip íslendinga svo á löngum tíma, ef ekki næst samkomulag við alla yfirmenn kaupskipaflotans nema skipstjóra í bráð. Yfir- mennirnir allir, nema skipstjór- arar hafa sagt upp störfum sínum í mótmælaskyni við úr- skurð gerðardóms í kaupdeilu þeirra við útgerðarfyrirtækin, en eins og kunnugt er var verk- fall þeirra í sumar leyst með bráðabirgðalögum. Mikill meirihluti yfirmanna hef- ur sagt starfi sínu lausu miðað við 10. október og munu aðrir menn varla fást í þeirra stað. Félög yfir- manna báðu í auglýsingu í útvarp- inu í gærkvöldi þá félagsmenn, sem hafa í huga að ráða sig á kaupskipin að hafa shmband við félögin. „Við hefðum ánægju af því, að ræða við þessa menn, ef einhverjir væru, sagði Ólafur V. Sigurðsson, formaður Stýrimanna- félags íslands í viðtali við Vísi í morgun, þegar hann var spurður um ástæðuna fyrir auglýsingunni. „I viðtölum við þá, viijum við visa til féiagshyggju manna, þó aö við teljum litla hættu á, að nýir menn ráöi sig á skipin.“ Að því er fulltrúar yfirmhnna og útgeröarfyrirtækjanna sögðu Vísi í morgun ber mikið á milli aðila og hefur ekkert þokazt í samkomulagsátt á þeim 9 fundum, sem haldnir hafa veriö undanfbm- ar þrjár vikur. — VJ Rússneski rithöfundur- inn Alexander Solzhen- itsyn fékk um hádegið bókmenntaverðlaun Nófoels.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.