Vísir - 12.10.1970, Blaðsíða 2

Vísir - 12.10.1970, Blaðsíða 2
é -X Hjónabandið tefur fyrir „Ég veit ekki hvort ég fer i prófin í vor“, sagði Michael Wild ing, Elfsarbetharsonur Taylor fréttamönnum, er þeir hópuðust að honum vegna hjónavígslu hans og Beth Clutter. „Þaö getur verið !aö ég haldi áfram námi... þaö getur líka ver iö að ég fari að leita mér að at- vinnu. Ég veit það ekki.“ Einkarit'ari Elízabeth Taylor sagði að þau mæðginin myndu ráöa fram úr þessu vandamáli í sameininigu, „Þau vita heldur ekki hvort Micihael á að nema við enskan háskóla eða banda- rlskan. En það eru líkur á að hann fari alfavega 1 skóla, dreng urinn. Fjöldi stúdenta er jcominn í hjónaband löngu áöur en námi er lokið". — Og varla æbti Miöh ael að þurfa að hætt'a námi af fjárhagsástæðum — stjúpfaðir hans gæti a.m.k. lánað honum fé með lágum vöxtum. Tvö ný orðtök Sagt er aö til sé franskt orð- tiak sem hljóðar eitthvað á þessa leið: „Ef halda á barnafötum hreinum, látið þá ekki böm kom- ast í tæri viö þau.“ Þetta er ef- iaust gott og gilt máltæki, en okkur kom það í hug um daginn er einn af kunningjum 2. síöunn ar fór til t'annlæknis. Rétt í þvi sá góði maður kom inn til tann- læknisins kallaði tannlæknirinn á etfltir viðskiptavini sem var á leið út: „Þetta verður gott. Láttu bara engan m'at koma nálægt tönnunum!‘“ NOTAÐIR BÍLAR. 1968 Ford Cortina 1600 S 1967 Skoda 1000 MB 1967 Skoda 1202 i; 1966 Skoda 1000 MB ! 1966 Skoda Combi 1965 Chevy II Nova 1965 Skoda 1000 MB ■ 1965 Skoda Combi | 1965 Skoda Octavia j 1965 Skoda 1202 1963 Skoda Octavia i Simca Ariane árg. '63 SKODA -Uidbrekku 44—46, Kópavogi Simi 42600 Byrjaði sem te-drengur í kvikmyndaveri Er nú einn af „gulldrengjum" Hollywood David Lean er oft kallaður „eft irsóttasti kvikmyndaleikstjóri Hollywood“ og nýlega skipuðu gagnrýnendur honum við hlið 2ja annarra „gulldrengja“, þeirra Mike Nichols og Stanley Kubrick, en fyrir þessum samanburði kveðst hann sjálfur blikna. Lean hefur sótt mjög á á sið- ustu árum, og myndir hans þykja og eru, gifuriega stórar, þ. e. langar og mannmargar. Þekktastar þeirra eru sennilega „Sívagó læknir“, „Brúin yfir Kwaifljótið“ og „Arabíu-Lárus“. David Lean hefur unnið tvenn Óskarsverölaun og er rétt um þessar mundir að leggja síðustu hönd á gerð sinnar 15. myndar. K'allast sú „Dóttir Ryans" og er að mestu tekin í írlandi. Robert Bolt ritaði handrit að „Dótitur Ryans“, sem og „Sívagó lækni“ og „Lárusi". í þessari nýju mynd leikur Robert Mitch- um írskan skólastjóra, Sarah Miles leikur ung*a konu og Christopher Jones leikur ungan Englending sem verður elskhugi skólastjórafrúarinnar. Fyrstu tökur þessarar myndar fóru fram 1. febrúar 1969 og bú- izt er við að myndatökum ljúki í næsta mánuði. David Lean hefur ala tíð ver- ið kalteður nákvæmnismaður, en sjálfum finnst honum það orð fyr irlitlegt, „það hljómar svc tepru- lega“, segir hann, „ég held áfram og áfram. Alveg þar til ég held að ég hafi femgið það út úr hverri senu sem ég held hð bezt verði. Það er, skal ég segja þér, fjári erfitt að ná út úr einni töku 70% af því sem maður hefur upphaf- lega áætlað. Og svo er þetta eilífa kapphlaup við tim'ann og basl við að halda kostnaði niðri. Ég hugsa alltaf um peningana, það er eins og hávær vél sem maður heyrir í úr fjarska. Maöur verður jú að hugsa um pening- ana, ef þess gerðist ekki þörf, þá tæki maður ekki nema eina töku á dag.“ Eiginkonur óskast Við HarVard-háskólann 1 Banda ríkjunum, er öllum stúdentum gert að búa á stúdentagöröum, þ.e.a.s. öllum þeim sem eru í fyrri hluta námi. Þeir sem lengra eru komnir, og einnig þeir sem eru giftir eöa kvæntir, mega búa utan skólans. í sumhr auglýstu svo tveir nýliðar 1 fréttablaði skólans eftir eigirikonum, svo þeir gætu fengið að búa utan stúdentagarðannh. Stúdentamir sem um ræðir em 21 árs og 20 ára að aldri og heita Jay Weber oa Tonv Day. Þeir félagar munu vera mymJarpiltar, enda fengu þeir um 12 hjónabandstilboö hvor. — Meðal annars var eitt þeirra frá suður-afrískri stúlku sem átti víst að verða vísað úr l'andi, ef 'hún ekki giftist Banda ríkjamanni. Eftir að stúdentarnir höfðu rætt við lögfræðinga og þeir tjáð þeim að verið gæti að yfirvöld vildu ekki viðurkenna slík málamyndahjónabönd sem þeir höfðu I huga, ákváðu þeir að hætta við allt saman — og hryggbrutu þar með á einu bretti 24 konur. „Fallegur, aðlaðandi maður“ Katherine Hepburn síagði ein- hvern tíma um David Lean, að hann væri „fallegur maður meö svo löng augnhár og mikið að- dráttarafl". Og svo virðist sem þetta sé (allt saman rétt, a.m.k. í sambandi við augnhárin og að- dráttaraflið. Blaðamaður einn — sem ætlaöi að hafa viðtal við Lean reyndi að hafa uppi á hon- um i Pinewood stúdíóunum, rétt utan við London. Var það á með an veriö var að gerb „Dóttur Ryans“. Barinn við stúdíóið, hvar viötalið átti fram að fara, var þéttsetinn leikurum og varð reyndin sú !að vesalings blaða- maðurinn komst aldrei til að ræða við Lean, því hann hafði nóg aö gera við að svara fyrir- spurnum eins og: „David! — Manstu eftir mér?“ „David! Þú lítur stórkostlega vel út — enn þá“. „David! Þú manst eftir mér! Hvar býrðu núna? Ég er með þetta handrit....“ (Örugglega stríðsmyndahand- rit“, hvíslaði David Lean að blm. „þau eru það alltaf hjá þessum kónum“). „David Manstu eftir Bombay? Geturöu enn borðað Tandoori- kjúkling?“ David! Mig fengar til að kynna þig fyrir dóttur minni. Hún er vel vaxin og frábær leik kona ....“ „Þessi staður er fullur af draug um. Ég hef ekki komið hingaö í 20 ár“, sagði David Lean. Úr te-dreng í leikstjóra Hann er brezkur hð þjóöerni. Byrjaði að vinna við kvikmyndir „Ég vinn hverja senu upp aftur og aftur. Alveg þangað til ég held að leikararnir þoli ekki meira.“ 1928, þá aðeins 19 ára gamall. Hann vann sig úr því að vera „uppáhellari" upp í !að verða klippari. Með tímanum varð hann sérlega fær klippari og 1930 var hann orðinn bezti filmuklippari i Englandi. 1942 stjórnaöi hann sinni fyrstu mynd, þhö var „In Widh we serve“ eftir Noel Coward. Og á eftir henni komu svo 2 aðrar myndir Cowards. „David Lean er frábær frá- sögumaður", segir Anthony Have lock-Allen „hefði hann verið uppi hér fyrr á öldum, hefði hann set ið við eldinn og sagt sögur fram í rauðan dauðann. Hann hefði ekki oröið rithöfundur, en einung is sagt sögur.“ CHEYALIER líf Danskar harðviðar- iitihurðir □ Vandaðar □. ÓDÝRAR □ Greiðsluskilmálar ýnn/- & 'Útikur/ifr óíánapQctu !Z Sírni 19669 \ /' byrjar nýtt Frísklegur, sem jafnan áöur, sté Maurice Chevalier út úr flug vélinni á Kennedy-flugvelli og tjáði fréttamönnum að hann væri kominn til New York „sem ungur rithöfundur". Maurice er orðinn 83 ára, en er nú aö gefa út bók sem hann kallar „Ég man það vel.“ Þetta verður fyrst'a bók þessa franska söngvara og skrapp Chevalier til USA í þeim tilgangi að ferðast um og kynna bókina, finnst honum um að geda að reyna að tryggja henni meiri sölu með því móti. „Ritstörfin gefa mér tækifæri til að halda áfram að. hafa samb'and viö almenning — við allt þaö fólk sem var ánægt með mig sem skemmti- kraft á sviði og í kvikmyndum." En er Chevalier var að því spurður, hvort hann hefði í hyggju aö byrja aftur að skemmta fólki opinberlega, sagöi hann: „Ég mun ekki koma aftur. Ég vil hætta á toppnum. Ég mun ekki fara aftur upp á sviö til þess eins að enda þar liggj- andi á bakinu. Og ég mun verða mjög hamingjusamt gamalmenni. Ég mun deyja brosandi."

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.