Vísir - 12.10.1970, Blaðsíða 6
Víkingar virtust
eiga unmnn leik
— en Framarar snéru dæminu við
Víkingum virðist láta illa að hafa
yfir í leik. Þetta hefur oft sýnt
sig, og nú síöast f gærdag í bikar
keppni KSÍ, þegar Víkingar höfðu
2:0 yfir í leiknum gegn Fram.
Sigurinn virtist blasa við þeim, eft
ir að Eiríkur Þorsteinsson skoraði
síðara mark liðsins á 8. mínútu
í síðari hálfleik, en í fyrri hálfleik
skoraði Vkingur fyrra markið.
Á 12. mínútu minnkuðu Framar-
ar bilið. Erlendur miöherji hefur
ekki verið markheppinn í sumar,
og nú loks skoraði hann sitt fyrsta
mark. Aðeins 8 mínútum síðar skor
aði hann enn, 2:2. Bæöi mörkin
svipuð, skoruð úr þröngri stöðu
alllaglega, en bæði sökum þess hve
vörn Víkings virtist ófær um að
hreinsa frá m'arkinu.
Eftir að Víkingar komust í 2:0,
var engu líkara en öryggiskennd
þeirra væri brostin. Liðið virðist
Enn þarf
þjást af einhverju sálfræöilegu
meini, það hefur ekki traustið, sem
þarf.
Þó voru Vikingar mjög ákveðnir
og baráttuglaðir framan af, í mót-
setningu viö Framara, sem tókst
ekki að skora lengi framan af, —
brátt fyrir góð tækifæri í fyrri 'hálf-
;eik.
Sigurmarkiö kom alveg undir
leikslokin, — laglegt skbllamark
frá Sigurbergi, sem „negldi“ í net-
ið eftir hornspyrnu frá hægri.
‘ - t ....
zssSavii'ííw-maKSfSme
Sigurbergur hefur hér skorað sigurmarkið. (Ljósm. BB).
Eyjamenn slógu íslandsmeistarana út
— unnu 2:1 og verðskulduðu stærri sigúr
AKURNESINGAR, íslandsmeist
aramir í ár, hafa lokið sumar-
starfinu, Vestmannaeyingar sáu
til þess á laugardaginn á heima-
velli sínum. Sigurinn, 2:1, var
sízt of stór, því Vestmannaey-
ingar höfðu yfirburði í leik.
Bæöi liðin áttu eftir þetta góð
tækifæri, en loks á 34. mínútu
tókst Matthíasi Hallgrímssyni að
skoda 2:1. Að mínum dómi var
þama um ólöglegt mark að ræða
og hefði Valur Benediktsson þá
átt að vera búinn að flauta tvíveg
is á undanfarandi brot, og þ'að
gróft brot, en það gerði hann ekki.
Það var því heldur vond lykt af
þessu marki, sem Matthías skoraöi
af stuttu færi eftir sókn upp
hægra megin þ'ar sem brotið var á
tveim Vestmannaeyingum.
Af leikmönnum liðanna vakti
sérstaka athygli leikur Kristjáns
Sigurgeirssonar, hann er góður
tengiliður, og hefur of lengi staðið
utan við liðið. — alexiander
nýjan leik
Breiðablik í Kópavogi á sannar-
lega erfiða cfaga i bikarkeppninni.
Gegn Selfossi urðu þeir að leika
tvívegis. Einnig gegn Ármanni, því
leik þeirra við Ármann lyktaði með
jafntefli 2:2 á laugardaginn, eftir
spennandi leik, en heldur lélegan
tæknilegb séð.
Eftir venjulegan leiktíma var
framlengt, og þegar það dugði ekki
til, gerði dómarinn að því er virð-
ist skyssu, en hann lét fara fram
vltaspyrnukeppni liðana. Bæði skor
uðu 4 mörk, leiknum l'auk enn með
jafntefli og var þaö eins gott, ella
hefðu kærumál komið upp.
Liðin þurfa því að leika að nýju,
en sigurvegararinn lendir gegn KR
í næsta leik bikarkeppninnar.
Vindur var þvert á völlinn, rign
ingarsuddi meðan á leik stóð, en
ekki mjög hvasít þó á véstmanná-
eyskan mælikvaröa.
Eyjamenn héldu strax uppi nokk
urri sókn, en Skagamenn svöruðu
á móti. Viar leikurinn fremur jafn
fram eftir hálfleik, eða þar til 15
mínútur voru eftir.
Á 29. mín. skoraði Hallgrímur
Júlíusson upp úr homspymu með
laglegu skoti. Eftir þetta áttu Vest
mannaeyingar mun meira 1 leikn
um, og léku mun betur en íslands
meistarkrnir.
Á 4. mínútu í slðari hálfleik
kom rúllandi bolti að marki Akur-
nesinga, en Vestmannaeyingar
sóttu að markinu. Það óskiljanlega
gerðist, Ein'ar markvöröur átti hik
laust að ná þessum knetti, en þess
í stað missti hann af honum og
Tómas Pálsson v. innherji átti auð
velt með að skora 2: 0.
FRAMSTÚLKUR A
BIBLlUSL ÓBIR?
— voru dregnar gegn Israelsmeisturunum i Evrópubikarkeppninni
Austfjarða^undrið"
var líkast viðundri
- fengu 15 mörk gegn engu / viðureigninni við Val
■ Framstúlkurnar, íslandsmeist-
ararnir í handknattleik eiga sam-
kvæmt drættinum í Evrópukeppn
ina, I vændum liölega 5000 kíló-
metra ferðalag á bibliuslóðir, til
ísraels. Drógust þau lið saman í
keppni, sem lengst er á milli,
Fram og Maccabi Harczim Ramat-
Gan.
Fréttin vakti mikla athygli í gær
dag, — lá við að hún væri „brand
I ari dagsins“ i augum íþróttafólks
! enda kostar farmiöi þangað suður
I í sólina og hlýjuna einar litlar 50
| þús. krónur, ætli fólk að koma
til baka.
En þetta er sannarlega ekkert
grín. Enda þótt fsrael sé ekki í
Evrópu og að á þessum slóöum
rlki hálf'gert styrjaldarástand, þá
verður eitthvað að gena í þessum
miálum og verður væntanilega
gert.
Litið er mjög ströngum augum
á þaö ef lið getfur leik í keppninni,
en kostnaðurinn óyfirstíganilegur,
þar eð tekjur af kvennaleikjum eru
sáralitJar.
Fyrri leikurinn á að fara fram
f fsrael að því frétzt hefur en beðið
er eftir nánari fréttum frá forráða
mönnum í ísrael.
Valsmenn fengu heldur en
ekki markaveizlu austur á Norð
firði í gærdag. Fimmtán marka
sigur, 15:0 unnu Valsmenn
heimamennina, Þrótt, Neskaups
stað. Það er eitthvað það allra
mesta sem um getur í leikjum
KSf í elzta flokki.
Þetta var raunar leikur, sem
fullt eins gat endað 25:0, eða
eitthvað í þá áttina. Svo miklir
voru yfirburöir Valsmanna. í
hálfleik var stað'an 9:0.
Þrí eða fjórvegis dæmdi dóm-
arinn, Ragnar Magnússon, af
mark Valsmanna, taldi að þ'ar
væri um rangstööumörk að
ræða, en mjög var þaö álitamál
og dregið í efa að rétt væri
dæmt.
Talsvert margt fólk kom og
horfði á þennan fyrsta, meiri-
háttar leik á Neskaupstað og
hefur fólkið væntanlega orðið
fyrir vonbrigðum að sjá þann
bitra sannleika, aö enn eiga
Austfirðingar langa leið í að
eignast eitt af „stóru“ liðunum
í knattspyrnunni á íslandi. —
Valsmenn rómuðu al'lar viðtökur
eystra, en heim komu þeir fljúg
andi í gærkvöldi.
Alexander Jóhannesson skor
aði 4 mörk í þessum leik, Ingi
Björn Albertsson og Þórir Jóns
son 3, Jóhannes Edvaldsson 2 og
Ingvar Elísson og Hal'dór Ein-
arsson eitt hvor.
Næsti leikur Valsmanna f bik
arkeppninni verður ugglaust erf
iðari raun, — þá leika þeir við
Keflvíkinga.
/ megnum erfíð-
leikum gegn Þrátti
ónákvæmur dómur færði IR sigurinn
• Ungt Þróttarlið vaktf verð-
skuldaöa athygli f Laugardalshöll-
í gærkvöldi. Liðið er allt nýkomið
úr 2. flokki, aöeins 2—3 leikmenn
úr hópi þeirra eldri eru með. Út-
haldið brást þeim f síðari hálfleik
í gær gegn ÍR, —, og dómararnir
gáfu ÍR mark vegna ónákvæmni
slnnar. Markiö, sem gaf sigur að
þessu sinni.
Þróttaramir náðu miklu forskoti
í fyrri hálfleik, komust í 3 : 0, 4 :1,
5:2. 7:3, 10:4, 11:5 og í síöari
hálfleik 12 :7. Halldór Brag'ason
skoraði mjög mikiö í fyrri hálfleik,
meðan ÍR-ingar höfðu ekki sérstak
ar gætur á honum, skoraði hann
t.d. 5 af 7 fyrstu mörkum Þróttar.
Þegar 3 mínútur vom eftir af
leiknum jöfnuðu iR-ingar. Tekið
v*ar aukakast, 10 metrum framar á
velb'num en brotið átti sér stað.
Þetta reið baggamuninn, ÍR sigraði
16:15, Vilhjálmur skoraði sigur-
markið örstuttu fyrir leikslokin.
Valur og Fram áttu ekki í erfið
leikum meö sína andstæðinga. Virð
ast þessi lið líkleg til aö berjast um
sigurlaunin aö þessu sinni, enda
þótt Fram sé betur sett með tvo
sigra í byrjun, en Valsmenn reyna
eflaust að klóra i bakkhnn eftir
tap á stigum um sfðustu helgi.
Valsmenn unnu Ármann 19:10
eftir 10:4 i hálfleik og gátu Ar-
menningar aldrei rönd við reist.
Framarar unnu Víking 15:10 og
var sigur þeirrb. aldrei í hættu. -
Liðið lék af fullkomnu öryggi og
var lúiuspil Björgvins það bezta,
sem þetta kvöld bauð upp á.