Vísir - 19.10.1970, Blaðsíða 6

Vísir - 19.10.1970, Blaðsíða 6
6 VISIR . Mánudagur 19. október 1970. Tegund „Palma“ er fallegt og létt sófasett. Framleitt úr bezta svampi sem völ er á. Grindin er smíðuð úr brenni svo hún er örugglega sterk, þótt grönn sé, og fer ekki úr límingu. Grindina getið þér fengið gljáandi rauða — eða bláa — græna — brúna, sem mahoni eða dökka sem palisander. — 2ja sæta sófar fást einnig. cfoeir <r <r Simi » I -22900 Laugaveg 26 | Keflavík í undanúrslitin — vann Valsmenn 2:1 í rokinu i gær KEFLAVÍK tókst að sigra Valsmenn í gærdag, — og komast þannig lengra í ár en nokkru sinni fyrr í bik- arkeppninni. Undanfarin ár hefur bikarkeppni KSf einhvem veginn ekki boð- ið Keflavíkurliðinu upp á langa veru, jafnvel b-lið KR sló liðið á sínum tíma út, nokkrum dögum eftir að liðið varð fslandsmeist- ari. I gær vann Keflavík nokkuð sann gjarnan sigur á heimavellinum, skoraði 2 mörk gegn einu marki Valsmanna. Veður og ölil skilyrði voru mjög ó'hiagstæö fyrir knatt- spymu, hífandi rok og malarvöllur inn blautur og þungur. Hófst leik urinn ekki fyrr en nokkru eftir aug lýstan tíma, því unnið var að því að þurrka upp mikinn forarpoll í öðru markinu. Keflvíkingar, sem léku undan vindi f fyrri hálifleik, skoruðu snemma á 12.—13. mínútu leiksins. Sending kom inn að marki til Karls Hermannssonar, sem stýrði boltan um í vinkilstöðu til Birgis Einars sonar, sem aifgreiddi lag- lega áfram fram hjá mark- verðinum bróður sínum, Sigurði Dagssvni í Va'smarkinu. Reyndar voru þetta tækifærin í fyrri háWleik. Leilrmenn léku og mikiö með háum spymum, virtust ekki gera sér ljósa grein fyrir mik ilvægi þess að haida knettinum við jörðina. í síðari hálfleik jöifnuðu Vals- menn eftir 12 mínútur. Þorsteinn Friðþjófsson átti langskot, sem nafni hans Ólafsson varði naumlega í þverslá og yfir. Or homspyrnunni skoraði Þorsteinn Friðþiófsson hins vegar, þvi hann átti lokaoröið i beirri sókn. Þetta mark leysti að því er virð ist úr læðingi sóknarkraft í Kefla- víkurliðinu. Þeir sóttu sannarlega í sig veðrið, — gegn veðrinu. Þetta bar þó ekki árangur fyrr en 5 mín. voru eftir af leiknum. Úr horn- spyrnu, sem mér virtist þó vafa- söm, skoraði Keflavik 2:1. Boltinn kom hátt fyrir markið og datt „dauður“ niður fyrir aftan Sigurð markvörð. Kari Hermannsson skor aði, fyrst virtust Valismenn hafa bjargað (boitinn þó fyrir innan að því er virtist), en Kari átti svo ann að tækifæri og þá var enginn vafi lengur. Eftir jöfnunina áttu Valsmenn tvívegis tækiifæri á að ná foryst- unni. Tvær aukaspyrnur frá Þor- steini Friöþjófssyni og Halldóri Einarsisyni, lentu báðar í þversiá. Hins vegar blasti 3. markið við Keflvíkingum þegar 3 mín. voru eftir, Birgir komst einn inn fyrir en brenndi herfilega af. Leikmenn gátu ekki sýnt sínar beztu hliðar í þessum leik, enda ekki von, tilviljuhin réð mestu um leikinn í heild. Vöm Keflavikur stóð sig þó vel, einkum Guðni, Ein ar og Ástráður. Þá verður ekki ann að sagt en Birgir og Friðrik hafi verið virkir í framlínunni. Sigurður Dagsson stóð sig lfka vel f marki Valsmanna, og Berg- sveinn Alfonsson var sérlega góð ur þessum leik og var beztur Vals manna ásamt Halldóri Einarssyni. Furðumargir horfðu á leikinn, — allifiestir f bfium. Aðeins allra frfsk ustu Suöurnesjamenn létu sig hafa það að standa úti og horfa á leik- inn, —. og þótti það vel gert. —emm FH vnnn Breiða- bSik með 24:10 Einn leikur fór fram í gærkvöldi í Reykjanesmótinu í handknattleik í íþróttahúsinu á Seltjarnamesi. — Þaö var leikur Breiðabliks og FH. Eins og vænta mátti varð þetta yfirburðasigur FH, 24:10, og held ur FH því striki sínu f keppninni, sem greinilega verður uppgjör milli Hafnarfjarðarliðanna tveggja. Leikir í mótinu eru nær því að vera af löglegri lengd en er f Reykjavíkurmótinu. Leikimir eru j 25 mínútur, en stefnt er að því að þeir verði í framtíðinni 30 mínútur I hvor hálfleikur, eins og lög gera [ ráð fyrir Er þetrta klippt niður ; um 5 mfn. á hvorn hálfleik vegna þeiss að þannig sparast tiimi, sem ' jafnframt kostar mótaðila nokkra í peninga. Enskti meistararnir teknir í kennskistund hjá Arsenal — grein Halls Simonarsonar um ensku knattspyrnuna i blaðinu á morgun vegna mikilla þrengsla i dag

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.