Vísir - 19.10.1970, Blaðsíða 16

Vísir - 19.10.1970, Blaðsíða 16
 V Á hlaðinu hjá Hirti Þorsteinssyni, bónda að Eyri, þar sem 3 til 4 hektarar af heimatúninu fóru undir aurskriðu, sem féll niður að húsunum á föstudagskvöld. Skammt ofan við bæinn hrönnuðust upp stór björg, sem oltið höfðu niður bæjargilið. Oddný Runólfsdóttir — ný- kjörin ungfrú Skaftafells- sýsla 1970. Hún vann í sum- ar hjá flugumsjón Loftleiða á Keflavíkurflugvelli. Hagfræöafélagfð mótmælir forgangsrétti stétta B Stjórn Hagfræðaifélags ís- lands skorar á stjómvöld að á- kveðnum stéttum verði ekki veittur forgangsréttur að einistökum emt>- ættum, svo sem embætti forstjóra Sementsverksmiðjunnar, Vegamála stjóra eða Hagstofustjóra. Segir í ályktun stjómarinnar, að mennitun og reynsla umsækjenda á sviði stjórnunar eigi aö sitja í fyrirrúmi við ráðningu forstöðumanna opin- berra stofnana. Fyrirsögn að frétt þessari brengl aðist ifla í meðförum í laugardags- blaðinu, svo að hún gaf þveröfuga mynd af ályktun sitjórnar Hag- fræðaféiagsins. Auk þess ol'li prent- viMupúkinn frægi því, að félagiö var kal'lað „hagfræöingafélag“ í stað hagfræðafélags. Félagið er ekki sérfélag hagfræðinga, heldur félag á'hugamanna um hagfræðileg efni. —'HH Bráðkvaddur í Fengu beint aurleðjunni bílnum sínum Leigubílstjóri, sextugur að aldri varð bráðkvaddur í gærkvöldi í leigubíl sínum, sem stóð kyrr við bílastaurinn hjá gatnamótum Háa- leitisbrautar og Safamýrar. Menn vom nærstaddir, sem sáu bílstjór ann hníga út af ekilssætinu, og kölluðu þeir sjúkrahjálp á staðinn, en maðurinn lézt, þegar komið var með hann á slysavarðstofuna. —GP frá íbúðarhúsinu í skurð — Skriðuföll / Kjós ollu miklu tjóni „AURLEÐJAN stefndi hérna beint á íbúðarhús- Þrjú börn í umferðarslysum Tvö börn slösuðust, þegar mjög harður árekstur varð á laugardag- inn á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar. Hlutu bömin skurði á höfuð og nokkur minni háttar meiðsli. Áreksturinn varð, þegar ekið var aftan á bifreið, sem numið hafði staðar við umferöarljósin. Var bif reiðin á leið vestur Miklubraut, en stöðvaði austan Löngu'hliíðar, og bar þá að aðra bifreið á sömu leið. Rakst hún aftan á hina. 9 ára drengur varö fyrir bíl á Bústaðavegi á sunnudag og meidd ist drengurinn á faeti, en þó ek'ki alvarlega. —GP ið, en við lögðum tré og viðarboli í veg fyrir hana, svo að hún breytti um stefnu og rann í skurðinn vestan við bae- inn,“ sagði Hjörtur Þor- steinsson, bóndi á Eyri í Kjós, við blaðamann Vís is á laugardag. Það var varla stígvélavætt á milli hús'anna vegna aurleöjunn- ar úr skriðunni, sem féll á föstu dagskvöld á jörðina Eyri, og lagði undir sig 3 eða 4 hektara af bæjartúninu. Ein kind hefur fundizt dauð í skurði eftir skriðufalliö, en óvíst er, hvort fleira fé hefur orðið undir skrið unni. „Viö vorum í fjósinu að mjólka, þeg'ar við heyrðum dyn- inn,“ sagöi Hjörtur bóndi, „en í myrkrinu fengum við ekki séð, hvað þetta var, fyrr en leðjan valt hérna niður á okkur og vatnsflaumurinn, þeghr lækur- inn austan við bæinn stíflaðist, rann hérna inn í húsin og í hlöðuna. — En hljóöið leyndi ekki þvl, hvaö á seyði var.“ Á laugardaginn mátti sjá stórt skarð._uppi í Eyr'arfjalli, þar sem skriðan átti upptök sín. Rann hún niður bæjargiliö og skiptist svo í fjóra tauma, sem runnu á milli húsanna og sitt hvorum megin við þau. Skriðan breytti farvegi lækj- arins, sem annars rennur nokkru austan við bæinn Eyri, og féll hann í farveg um 100 metrum vestar. Þar féll hann á Vesturlandsveginn á Hvalfjarð- arströndinni og var óttazt um að vatnselgurinn græfi sundur veginn, sem þó varð ekki. Um- ferð um veginn lokaðist ekki, en um hádegi á Iaugardag var þar orðið il'lfært lit'lum bílum. Þá loks tökst að fleyta læknum aftur I sinn gamla ferveg, og vegagerðarmenn báru ofan í veginn. Úrkoma hafði verið mikií vik una áður, og þó sérstaklega sól- arhringinn, sem skriðan féll. Mældist hún 100 mm á Meðal- felli í Kjós þ!ann sólarhring og daginn áður. Tvær skriður aðrar féllu i Kjós þennan dag. Féll önnur yf- ir skrúðgarö að Tindastöðum, og hin féll skammt vestan við túnið í Miðdal og braut þar símastáur, svo að símasam- bandslaust varð um tíma. —GP Börn og barnauppeldi áhugamál hennar eru >á hafa Skaftfelling'ar valið sér sína fegurðardrottningu þetta ár ið. Fyrir valinu varð 22ja ára gömul stúlka úr Vík í Mýrdal, Oddný Runólfsdóttir að nafni. Áhugamál sín segir hún snú- ast mikið um ferða'lög og tón- list, eins og svo margra annarra, en aðaláhugamá'l sitt kvað hún þó vera fyrst og fremst barna- uppöldi og annað varðandi böm. Eitt ár dva'ldi hún t. d. við bam- fóstrustörf á heimi'li í Bandaríkj unum. Núna rær hún að því ölil- um árum að komast í Fóstru- sikólann. Oddný er dóttir hjónanna Runólfs Sæmundssonar bifreiða stjóra og Sigríðar Karlsdóttur. Hár Oddnýjar er ljóst og augun grá, hæðin 174, en önnur má'l 94—61—96. — ÞJM Kastaði sér út um glugga Maður nokkur fleygöi sér úr um glugga á ris'hæð í tveggja hæöa húsi í Akurgeröi aðfamnótt laug- ardags. Óttuðust menn, að hann hefði stórslasazt, en meiðsli hans reyndust vera Mti'lfjörleg og hafði hann sloppið ótrúlega vel eftir faM- ið. Maðurinn reyndist mikið ölvað- ur. — GP Flugvélar- brakið ó- bekkjanlegt Bjb. Birtingum frá Neskaupsitaö fék'k í sumar í vörpu sína brak úr flugvél. Þaö var þann 4. ágúst, sem Birtingur háfaði brakið upp, og var þegar gert viðvart um það. Fóru menn frá Flugmálastjórn- inni þangað austur og rannsökuðu fla'kið. Liggja nú fyrir einhverjar niðurstöður rannsóknarinnar, og er skemmst frá því að segja, að út úr henni kom ekki neitt það er hægt er að skýra frá, að sögn Sigurðar Jónssonar, forstöðumanns Loft- ferðaeftirlitsins. — GG Rauðsokkahreyfingin ræðir jafnréttið Jafnréttismál kynjanna verða á dags'krá hijá Rauðsokka'hreyfing- unni, sem heldur almennan fund í Norræna húsinu í kvöild. I fundinum verður sagt frá und irbúningsstarfi á , sumrinu, lagðar fram til'lögur um s'kipu'lag samtak anna og kynntar hugmyndir um væntanlega starfshópa. Frjálsar um ræður veröa um alla liði dagskrár innar. Fundurinn hefst kl. 20.30. —SIB Mesta mildi að ekki fór verr Jeppa með fjórum mönnum hvolfdi á Suðurlandsvegi rétt neð an við Kambana á laugardag. Valt jeppinn þrjár eða fjórar veltur og má heita eyðilagður, eftir þessar j koflsteypur, en með einhverjum I furðulegum hætti sluppu mennirnir í bflnum án alvarlegra meiösla. Annan bíl bar að í sömu andrá, sem slysið vildi til, og sýndist þeim jeppinn skyndilega þverbeygja út af veginum. Var jeppanum ekið greitt. I aðkomubílnum var læknir og flutti hann mennina fjóra til Hvera- gerðis. —GP

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.