Vísir - 26.10.1970, Blaðsíða 5

Vísir - 26.10.1970, Blaðsíða 5
Markstangirnar og Ellert tóku við Kópavogssókninni — en KR skoraði eina mark leiksins KR-ingar máttu sannarlega þakka fyrir aö fara með sigur af hólmi í bikarleiknum gegn Breiðabliki á Melavelli á laugardaginn. Breiða- bRksmerm voru mim meira afger- andi, og tækifæri áttu þeir góð til að skora og tvö stangarskot og mark sem dæmt var af þeim vegna brots, sem dómarinn dæmdi KR vildi 561 fer- metra stærri völl og gátu jbannig tekið heimaleikinn af Breiðabliki Breiðablik átti að fá leik sinn við HR í bikarkeppninni í knatt spymu í Kópavogi. Svo varð ekki, KR-ingar hinir lögfróöu höfðu komiö auga á smugu, sem ekkert félaga hefur enn sett fyr ir sig, — völlurinn i Kópavogi er of lítiH. í reglugerð KSÍ um knatt- spyrnumót segir, aö knatt- spymuvöllurinn skuli vera 100 metrar á lengd og 60 metrar á breidd. Kópavogsvöllurinn er hins vegar 98 metrar á lengd og 55,5 metrar á breidd. Á völl inn vantar því 561 fermetra oln bogarými, sem KR-ingum fannst ótækt. Þeir mótmæltu vellinum og Breið'ablik féllst á að leika á Melavellinum, — „heimavelli" KR-inga. I knattspyrnulögunum, sem gefin voru út með áorðnum breytingum 1. júlí sl. þýdd af Sigurgeiri Guömannssyni, stend ur hins vegar um stænð vallar ins aö lengd hans skuli eigi ver*a meiri en 120 metrar og breidd 90 metrar minnst. — Breiddin skuli vera 90 metrar mest en 45 metrar minnst. — í miliiríkjakeppni skál hann minnst vera 100 metrar á iengd og 64 metrar á breidd. Reglugerð KSÍ er hins vega skýr og því var ekki um ann- að að ræða fyrir Breiðablik. — Völlur Breiðabliksmanna getur því í framtiðinni ekki orðið keppnisvöllur, alla leiki þar verður hægt að kæita, tapist þeir. á annan leikmann en þann sem skoraöi. KR-ingum gekk mun betur fram an af, fyrstu 15 mínúturnar eða svo meðbn snjónum dyngdi niður á Melavöllinn, sem þakinn var þykku leðjulagi. Áttu KR-ingar tvö hættoleg tækifæri, sem ekk- ert varð þó úr. Síöar I leiknum áttu Breiðabliks menn hins vegar 3 dauðafæri og skoraði Guðmundur Þórðarson úr einu þeirra, en þá vlar dæmt á Ieik brot Einars Þórhallssonar á mark línu og þá átti Þór Hreiðarsson skot f stöng og út. Breiöablik sótti meira fyrstu 15 mínútur seinni hálfleiks, — en KR skoraði sigurmarkið á þeim. tíma. Knötturinn kom frá hægri og var síðan frhmlengdur yfir á markteig inn hinum megin, en þar komst Sigurþór Jakobsson í ágætt færi og skoraði þetta eina mark leiksins, sem löglegt gat talizt. Áður rann knötturinn þó milli fóta annars tíakvarðarins. Eftir þetta átti KR engin dauða færi, en Kópavogspiltarnir héldu uppi sókn. Á 20. mínútu misstu þeir þó mikið, þegar fyrirliði þeirra, Guðmundur Jónsson, varö að yfirgefa völlinn vegna vöðva- slits, og var hann flufctur burtu í sjúkrabíl. Ekki tókst þeim þó aö skora, enda þótt Guðmundur Þórðarson „skrúfaöi sig“ gegnum vöm KR hvað eftir annað. Ellert Schram var allthf Þrándur i Götu þeirra og bjargaði oft. Hurð skall þó nærri hælum, þegar Guðmundur átti stangarskot og hálfgerð vita- spyrnulykt var af því þegar fót- unum var hreinlegfa kippt undan Guðmundi innan vítateigsins. KR Ieikur næst við Fram og fer leikur þeirra fram um næstu helgi. Vinni KR, leika þeir enn einu sinni til úrslita í bikarkeppnnni, — gegn Vestmannaeyingum. Fram ekki með sitt sterkasta gegn KR-ingum ■ Framarar fá KR i undanúrslit- um bikarkeppninnar í knatt- spyrnu. Mun Framliðið ekki verða með sterkasta móti að þessu sinni, og mun það koma sér vel fyrir KR-inga, sem eru æfingarlitlir að þessu sinni eftir nær 5 vikna að- gerðaleysi í knattspymunni. ■ Tveir leikmanna Fram, þeir Sigurbergur Sigsteinsson og Arnar Guðlaugsson, verða á sminu daginn kemur f París með hand- knattleiksliði Fram í Evrópubikar- keppninni og geta þvi ekki leikið með liðinu. Island stöðvaði sigurgöngu Italíu með jafntefli ERLENDUR 60.06 Erlendur Valdimarsson er kominn í 60 metra klúbbinn í kringlukastinu, — hann bætti Islandsmetið í kringlukasti á laugardaginn var, kastaði 60.06 metra, sem er frábært afrek og gefur góðar vonir. Þeir eru ekki margir kringlu- kastaramir, sem hafa náð swr langt og má fullyrða að Erlend ur eigi eftir að stórtoæta árang ur sinn. Bezta afrekið í heiminum í ár er afrek Ricky Brueh, Svíþjóó, hann kastaði 67.14, en það er 1.26 metrum lakara en heims- rhet Jay Silvesters, sem er 68.40 metrar. Óliku er saman að jafna okk ar mönnum og þessum köpp- um. Erlendur stendur 6 daga i vifcu við erfið og erilsöm af- greiðslustörf í Verðanda i Tryggvagötu, en Ricky flýgur um heiminn og keppir. Á þessu ári hefur Ricky keppt á 71 móti og nær auðvitað stórkostlegum árangri, — enda þótt áhugamað ur sé. að nafnimi til a. m. k. Isienzka bridgesveitin komst í 1. og 2. sætið, jöfn þeirri svissnesfcu með 123 stig, eftir áttundu umferð, þegar hún vann spænsku sveitina, 20----e 2. Símon og Þorgeir, Jón og Karl spiluðu leifcinn, sem end- aði 35—109 en var í hálfleik 15—44. Um leið var skriður farinn að færast á Frakkl., Breti og ítal- íu, sem komu næst á eftir, en þessi þrjú lönd ásamt Svíþjóð haifa venju lega barizt um efstu sætin á Evrópumótum fyrri ára. Eftir 9. umferð breytitist staöan þannig, að 1. var Sviss 141, 2. Frakkl. 140, 3. ísland 129, 4—5 Brefcl. og Ítalía 126. I þessari um- ferð spilaði ísland við Lfbanon — og tapaði 6—14, en leikurinn end aði 28—43. Ásmundur og Hjalti spiluöu fyrri hálflelfc en þá vora •spilin tilþrifalítil, en þó náðu Líban onmennirnir hálfsiemmu og game- samning, sem Ásmundur og Hjaiti náðu ekki. Hálfleikurinn endaði 6——29. I fcíundu umferð spiluðu okkar menn við Ítaiíu, sem skipuð er Belladonna (tífaldur heimsmeistari) Mondolfo, Messina, Bianchi, Bresci ania og Beltentini, og endaði leifc- urinn með jafntefli — 10—10 (65—64), en í hálfieik var staðan 40—35 fyrir Island. ítaiirnir höfðu unnið leiki sína í fimm síðustu umferðunum og hafa náð sér vel á strik eftir slæma byrjun. En það hefur oft hent þá áður, að þeir hafa byrjaö ilia Evrópumót, og unnið það samt. Leikur þeirra við íslendingana vakti aiia athygli áhorfenda, en þeim urðu á ein dýr mistök, þegar þeir enduðu í alslemmu í spaöa, eftir að Hjalti byrjaði sagnir meö 2 fcíglum (veikum), og urðu þeir tvo niður, meðan Símon og Þorgeir spifuðu 4 spaða og unnu þá. 8. umferð: Svíþjóð—Ungv.i. 18—2. Danmörk —Belgía 17—3. Sviss—Noregjir 15 —5. Brefcland—Þýzkal. 20—0. Aust urr.—Grikkl. 14—6. Tyrkl.—Finnl. 20—~3. Hoiland—fsrael H1—9. Frafcfkl.—írland 13—7. Pó'lland— Portúgal 15—5. ftaiía—Libanon 19—1. 9 untferð: Sviþjóð—Danmörik 16—4. Belgía —Sviss 2—18. Noregur—Brefcland 10—10. Þýzkal.—Grikkl. 9—11. Austurr.—Tyrkl. 20—0. Finnland— Spánn 4—16. ísrael—Ítaiía 1—19. Holland-—Frakkl. 0—20, írland— Portúgal 14-—6. Pólland—Ungverja land 19—1. 10. umferð: Sviss—Sviþjóð 11—9. Bretll.—iBelg ía 14—6. Grikkl.—Noregur 3—17. Tyrkl.—Þýzkal. 7—13. Spánn— Austurr. 2—18. Líbanon—Finniand 16—4. Frakkl.—fsrael 9—M. Pontú gal—Holland 2—18. Ungv.l.—ír- land 1—19. Danmörk—Pótland + 4—20. Að loknum fimm umferðum í kvennaflokki er staðan þessi: 1) Frakkl. 83. 2) ítáMa 79. 3) Portúgal 61. 4) Irl. 59. 5) Hoililand 56. Brezka sveitin, sem stoipuð er heimsþekktum spilakonum, Gordon, Markus, Flleming, Fiint, Gardener og Shannigan, byrjaöi með tapi í þrem fyrstu umferöunum og er nú i sjöunda sæti með 56 stig. —GP // Aðeins ein grænpeysa eftir... // — en jbað reyndist nóg fyrir keflvisku sóknar- mennina, sem stóðu ráðþrota frammi fyrir Páli Pálmasyni i marki Vestmannaeyinga ERLENDUR — kominn í 60 aetea klúbbinn. SANNARLEGA var það súrt í broti fyrir Keflcíkinga að þurfa að tapa 1:2 fyrir Vestmannaeyingum í gær- dag á Melavellinum. Sannleikurinn var nefnilega sá, að Keflvíkingar voru mun betri aðilinn í ieiknum, og hefðu átt aö sigra. En ástæða er vist öllu, og í þessu tilfelli heitir ástæðan Páll Pálmason, og stendur sá í marki Vestmanneyja. Hann gerði Keflvík ingum, sem stóðu einir fr’ammi fyr ir honum hvað eftir annað, lifið á- kaflega leitt. „Það er ekkert eftir annaö en þessi græna peysa“, sagði einn áhorfendanna, ,,en það er nóg“. Þetfa var rétt. Páll kom mjög vel á móti leikmönnum Kefla vikur og bjargaði meistaralega. Vonandi heldur hann sér í góðri æf ingu i vetur, þá höfum við rétta manninn í landsliðsmarkið. I fyrri hálfleik áttu Keflvíking- ar tvívegis tvöföld tækifæri á að skora mark og síðar í hálfleikn- um enn tækifæri. Var svo komið að áhorfendur Keflvíkinga voru farnir að hrópa i gamni að „rétt- ast væri að skrúfa fyrir vatnið til ykkar!“ Ekkert mark kom í fyrri hálf- leik, endh þótt 2:0 staða Keflavík i hag hefði ekki verið óeðlileg. Þorsteinn Ólafsson í marki Keflavíkur átti ágætan leik að venju, og bjar^aói oft vel, enda þótt Páll skyggði óneltanlega á hann. Hins vegar förlaðist honum og Kefi'avíkurvörninni á 17. mínútu í seinni hálfleik, boltinn kom fyrir úr þröngri stöðu við endamörkin frá hægri og Haraldur Júlíusson hurfti ekki 'anna'ð en að herða á knettinum í netið. Tvær mínútur liðu, og enn var vörnin sem frosin, Sævar fékk góða sendingu og skaut ákaflega rólegu og notalegu skoti í átt hð marki. Þorsteinn var sem frosinn og gat sig ekki hreyft, en boltinn rétt mjakaðist inn í horniö fjær. IÞar með var bikardraumur Kefla- víkur búinn, eða svo gott sem. Á 35. mínútu áttu Keflvíkingar horn frá hægri, — þvagþ myndað ist við Vestmannaeyjamarkið og Guðni átti táarskot í boltann, sem lenti í Vestmannaeyingi, sem mis- tókst að hreinsa, en fékk hann aft an á hælinn og þáðan barst hann inn fyrir marklínuna. Frekar var þessi leikur ómerki legur, og hafa vallarskilyrðin, harður og beittur yöllur, e.t.v. haft miki'ð að segja í því tilliti. Keflvíkingar voru mun betri lað- ilinn, og í annað skipti um þessa helgi var betri aðilinn slegínn nr bikarkeppninni í knattspyrnu. Vestmannaeyingar eru þá í úr- slitum bikarkeppninnar, — lenda á móti Fdam eða KR, sennilega sunnudaginn 8. nóvember n.k.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.