Vísir - 11.12.1970, Blaðsíða 5

Vísir - 11.12.1970, Blaðsíða 5
~3U» tomstundaholl /n B'iÐVR. upp a fjöl da skemmtilegra SP/Lfí ÞAR A MEÐAL H/Ð V/NSÆLA VARAIIB LIGIA VARAl■ VCS IW HÆfí KR-INCA — eftir 53 stiga mun/> fyrri hálfleik, hélt KR strikinu gegn varaliðinu í þeim sibari Varalið pólska körfu- knattleiksliðsins Legia reyndist vera við hæfi KR-inganna í seinni leik liðanna í Evrópubikarn- um. Eftir hreinan sýn- ingarleik pólsku snilling anna í fyrri hálf leik voru allir varamennirnir send ir inn, og seinni hálfleik lauk með jafntefli 42:42. Sýnileifcurinn hins vegar, færöi Legia ákaflega trausta for- ystu meö 69:16, en það er eitt- hvaö það allra hrikalegasta, sem islenzk liö hafa þurft að hortfa upp á eftir 20 mínútna körfu- knatltleik til þessa. Það er sfcemmst frá að segja að pólsku körfuknattleiksmenn- irnir voru hinir hreinustu snill- ingar. Leikurinn var prúömann- lega leikinn og fáar villur á leik- menn béggja, næstum engar á Pólverjana. Það var sannarlega leitt að horfa upp í áhorfenda- bekkina, þar sem mun fleiri hefðu rúmazt til að horfa á stór- snjallan leik Legia. Rétt fyrir leikinn ákvað Kol- beinn Pálsson aö tafca ráðum læknanna og vera efeki með: Aðeins smáskakfcafall hefði get- að valdið alvarlegri blæðingu inn á liðinn eftir meiðslin daginn áður. Þetta var áfall fyrir KR, — en fyrri hálffleifcurinn sjálfur varð meira áfall. Strax í upphafi fóru Pólverj- arnir að ,,salla“ stigunum á KR. 4:0, 6:2, 20:4, 28:8, 36:10. Sann- kölluð martröð fyrir hina ungu KR-inga. Þeir eru satt að segja langflestir mun yngri en þessir l>ólsku ,,kollegar“ þeirra, sem fá mun betri tækifæri tffl að æfa iþrótt sína, þvi þeir eru í pólska hernum og fó, að æfa að vild, eins og tíökast nú orðið f flest- um löndum. í hálffleik var staðan orðin ' 69:16 og menn töluðu um „14—2 leikinn í knattspyrnunni“. Ekki fór það svo ilila, þökk sé iþróttamennsku Pólverjanna, sem drógu alla sína beztu menn ti.l bafca í síóari hálffleiknum. Seinni há'lffleikurinn var jafn, og sé aðeins litið á hann, þá varð þar jafnteffli, eins og fyrr greinir. Heildarstlgatala leiksins var 111:58, — það er alls ekki sem verst gegn liði, sem áreiðanlega á eftir að standa sig vel í þessari keppni. Eftir sitja KR-ingar með sárt ennið. Lekjumöguleikar körfu- knattleiksmanna okkar eru sorg- lega lltlar, og greinilega hafa körfuknattleiksmenn KR tapað fé á þátttökunni að þessu sinni, þátttökunni. sem er þó hrein- lega lífsspursmál fyrir félögin, sem íþróttir stunda. Hvað. vaeru íþróttirnar hérlendis án sam- starfs við útlönd? Stjörnur leiksins voru þeir. Dolczewski, Trams, fyrirliði, sem skoraði 24 stig (Dolcze- wsky 20 og lék bara fyrri hálf- leikinn, hinn nokkrar mínútur í þeim síðari) og Piltz. Af KR-ingum kom Bjarni Jó- hannesson iang bezt út úr þess- um leikjum, sannarlega efnileg- ur maður, aðeins 17 ára að aldri. Einar Bollason er allt of þungur gegn svona stríöþjálfuðum leifc- mönnum, en hann skoraði mifcið í gærkvöldi, 22 stig, Bjarni 24 stig og voru þeir hæst-ir KR- inganna. David Janis er skemmti legur leikmaður og ætti e.t.v. aö vera meira með í leiknum. Þá eru fram.farir Magnúsar Þóðar- sonar greinilegar og verður gaman að fylgjast með honurn í framtíðinni. Dómararnir fundust mér dæma vel í meðallagi, enda var' verk- efni þeirra langt frá því að vera erfitt. — JBP KR-ingur frá Indó- nesíu! „Víða eiga KR-ingar ítök“, varð einhverjum að orði í Laugardals- höllinni í fyrrakvöld þegar þeir sáu ungan Indónesíumann í KR- liðinu í körfuknatöleik. Hann heitir David Janis og er 23 ára skrifstofumaður og býr hér í Reykjavík. David er lægstur þeirra KR-inga, aðeins 1.75 metrar á hæð, sem þykir ekki mifcið í þess- ari fþrótt risanna. Hins vegar er hann í þeim hópi leikmanna, sem er hvað skemmtilegastur með knöttinn og vaki leikur hans fyrir þær sakir athygli áhorfenda. Á myndinni er David Janis að fylgjast með leik félaga sinna úti á vellinum, greinilega spenn-tur á svip. MilSTARINN MATAÐUR Eftir að Mohammed Ali hafði með naumindum sigrað Argentínu- manninn Bonavena, þá var slegið upp veizlu eins og sjá má, og það var gert á stórfenglegan hátt eins gefur að skilja. Japönsk geisha mataði meistarann Nú hefur ver- ið ákveðið að Bonavena mæti næst Floyd Patterson í keppni í Banda- ríkjunum á næsta ári. V

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.