Vísir - 28.04.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 28.04.1971, Blaðsíða 1
• - • ■'.t. .. R fíLárg,— MiövikudaSHr 28. apra 1971. — 94. tbl. Auðveidd, en varia mikið magn — segir Hjálmar Vilhjálmsson itm síldina — fleiri vitja fá veiáileyfí SÍLDIN, sem Örfirisey fékk í fyrra- dag austur af Vestmannaeyjum, reyndist vera sumargotssíld mest megnis. Þriggja og fjögurra ára, 30 cm. að lengd og horuð, eins og vænta mátti á þessum árstíma. — Það er ekki líklegt að þarna sé verulegt magn á ferðinni, sagði Hjálmar Viihjálmsson fiskifræðing- ur í viðta'li við Vísi í gær, en hins vegar er síldin venjuiega nokkuö auðveidd, svona fyrst á vorin og framan af sumri. Hafrún fékk 13 lestir af síld úti af Reykjanesi 1 fyrradag. Skipin eru nú bæði austur af Eyjum og HIRFERÐ CECNSlDHÆRD■ UM VÉLA VINNUMÖNNUM Verbur ab sjást i eyrun á bitlunum, segir Öryggiseftirlitið — „Loðnaklipping" lausnin, segja hárskerar ■ Nú mega síðhærðir piitar, sem vinna við vél- ar og því um líkt fara að biðja fyrir sér — eða öllu heldur lokkum sín- um, því Öryggiseftirlit ríkisins er nú á hælum þeirra með skærin voða- legu á lofti. Hefur Örygg iseftirlitið nú skorið upp herör gegn vmnuslysum hring skoðunarmanna eftirlitsins. Það á enginn karlmaður frek- ar en kvenmaður, að komast upp með það að fá að vinna með sítt hár eða 'hártopp við vél ar þar sem hárið getur festst, sagði Friðgeir Grímsson, örygg- ismálastjóri í viðtali við Vísi í morgun. Of mörg dæmi þess, að vinnuslys hafi hlotizt af of síðu hári til þess að Öryggis- eftirlitið geti lengur látiO síða hárið afskiptalaust, sagöi Frið- geir. ,,Þess eru dæmi, að sítt hár eða laust hafi festst í vél* um eða öxlum og höfuðleðrið ftetzt af við það,“ sagði Friðgeir. Einnig eru viftuspaðar á vinnu- vélum og reimar hættulegar síð hærðum mönnum, og eins það, að hárið flaiksist fyrir augu þeirra svo aö þeir sjái ekki til hliðanna er þeir aka jarðvinnslu vélum — og yfirleitt hvaða öku tæki sem vera skal. „Hvað er það sem þið kallið sítt hár?“ „Það hár, sem hylur eyrun eða getur huliö þau, sé það laust, er það orðið varhugavert," svaraði Friðgeir. „Það er síður en svo fokið í öll skjól fyrir piltunum fyrir því“, sagi okkur hárskeri, sem við höfðum tal af í morgun. — Patentlausnin hans er hin svo kallaða „loöna“-klipping, sem hann segir vera að ryðja sér til rúms víðast hvar erlendis. „Það er ástæðulaust fyrir strákana að krúnuraka sig til að komast úr lífshættu", segir þessi sami hárskeri. Kvaðst hann hafa klippt vélavinnu-pilt samkvæmt forskrift ,,loðnu“-lín unnar og sú klipping hlotið við- urkenningu Öryggiseftirlitsins. Annar hárskeri sagði okkur þá sögu, að hann hefði fengið til sín í klippingu sl. laugar- dagsmorgun síðhærðan pilt, sem átti það yfir höfði sér að missa vinnuna ef hann léti ekki skera af hári sínu innan hálfs mánað- ar. Hann kaus heldur aö fóma lokkaflóði sínu en vinnunni. — „En á meðan hann var í stóln- hjá mér var hann líka á fullu næturvinnukaupi hjá verktakan- um, sem hann vann hjá“ lauk hárskerinn máli sínu. —ÞJM hefur ekki frétzt af veíði h§á þeim í nótt. Þr>jú skip hafa nú sótt um veiði ti'l viðbótar, en leyfi eru ekki gefín til sfldveiði á tímabilinu frá 1. febr- úar til 1. september, nema síldin fari í vinnslu eða til beitu. Örfiris- ey landaði 80 tonnum af afla sin- um í Vestmannaeyjum, þar sem síldin fer í beitu, en rúm 20 tonn fóru til Norðurstjörnunnar í Hafn- arfiröi ti'l niðurlagningar. —JH Hvað er ferðamönn- um sagt? Sagt frá námskeiði leiðsogumanna — Sjá bls. 9 Þjóðverjum gremst óstundvísi Kennedys — Sjá bls 3 af völdum síða hársins og hyggst fylgja því eft- ir af vaxandi krafti, að síðliærðir vélavinnu- menn hverfi úr sögunni og verður það í verka- Óhugguleg aðkoma — sagði bæjarverk- ræðingur, sem fór um borð i togarann á strandstað við Isafjörð i gær Að sögn Þorbergs Þorbergssonar, bæjarverkfræöings á ísafirði virð- ist hafa tekizt að koma í veg fyrir frekari olíuleka úr togaranum Cæsari og er nú lítil olíubrák í kringum skipið, en brákin hefur færzt inn Djúp og valdið nokkrum fugladauða, því fugl hefur fundizt dauður og útataður í olíu á fjörum, meðal annars æðarfugl. Fugladauð- inn er þó ekki stórkostlegur. Togarinn Cæsar hangir að því er virðist á klettabrún og er nokkuð aðdjúpt að honum. Sjómenn frá ísafirði fóru út í togarann í fyrrad. og tóku úr honum fiskinn, um 15 tonn eöa svo af þrifnaðarástæðum, annars hefur 'lítið verið farið um 'borð í skipið, enda er heldur ó- kræsileg aðkoma þar aö sögn bæj- arverkfræðingsins, en hann fór i gær ásamt bæjarstjóra út í skipið til þess að kanna aðstæður. Umboðsmaður eigenda, sem staddur er á ísafirði sagði að reynt yrði að bjarga togaranum og gera hann sjófærann aftur til veiða ef unnt væri. En norsku björgunar- sérfræöingarnir eru væntanlegir til Isafjarðar á morgun. — JH Þessi síðhærði piltur varð í morgun á vegi ljósmyndara Vísis niðri við höfn. Pilturinn heitir Jón Ömar Sigfússon og vinnur i fiski. Hann sagðist vera á leiðinni til hárskera hvað úr hverju, fyrst yrði hann bara að taka þátt í þrem sýningum á söngleiknum Hárinu, sem eftir eru á þessu leikári. Fyrir þeim er ísland hvítur þokublettur — segir Halldór Laxness um þýzka kvikmynda- gerðarmenn. Undirbúningsvinna að kvikmyndun Brekkukotsannáls hefst hér i sumar © „Jú, það koma víst þrír menn frá noröur-þýzka útvarpinu til íslands í sumar til að undirbúa sig undir að filma Brckkukotsannál,“ sagði Halldór Laxness í símtali við Vísi í morgun, en hann er nú stadd- ur í Kaupmannahöfn. „Annars er ég svo ókunnugur þessu máli, sem frekast má vera. Samningastappinu við þessa aðila er lokið og málið er í þeirra liönd um. Það verður sennilega lítið um að þeir filmi í sumar, því þótt það taki sex vikur að filma, er undir- búningsvinnan geysimikil. Og þess- ir karlar vita lítið um staðhætti á íslandi. Fyrir jieim er ísland eins og hvítur þokublettur.“ Halldór Laxness sagðist hafa verið á sprettinum um Evrópu und- anfarið. „Það er eins og allur heimurinn stand sameinaður um að forða því, að ég fái tækifæri til að stinga nið- ur penna. Ég hef verið á þönum um allar trissur að skipta um for- leggjara. Ef mér líkar ekki við þá, læt ég þá fara. Annars er þetta bara eins og þegar maður vill held- ur verzla við einn kaupmann en annan, af þvl hann selur sykur- pundið fimm aurum ódýrara. Mín mál eru reyndar svo ómerki leg miðað við það, sem til slf-ndur uppi á íslandi, þar sem talaö er um að virk'ja Gullfos's og Mývatn og guð má vita hvað, að ég skamm i ast mín eiginlega fyrir að opna j kjafinn". Hvort ekki heföu fleiri filmarar sýnt á'huga á því að mynda verk 1 hans? „Jú, það eru alltaf að koma ein hver tilboð um að búa til kvik- j myndir, en þau eru yfirleitt svo ó- i merkileg, að maður sinnir þeim ekki. Ég sem litterer stílfsti kann j ekki að skrifa leiðbeiningar kvi'kmyndamönnum um, hvar þeir. j eigi að setja niður þessa eða hina kameruna."

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.