Vísir - 09.10.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 09.10.1971, Blaðsíða 1
Umferðarfræðsla á stundaskrána? Drög hafa verið lögð að því að hrinda af stað umferðarfræðslu í skólum fyrir sex ára börn. Til- Iögur Umferðarnefndar Reykja- víkur þar að lútandi voru nýlega samþykktar í borgarráði og send ar fræðsluráði til meðferðar. Tíð slys barna í umferðinni h?fa valdið mörgum þungum áhyggjum og knúið til umræðna þar sem kallað hefur verið eftir ráðstöfun- um til að draga úr aukningu barna- slysanna. En þau hafa verið tals- verð á þessu ári. Þær umræður, sem fariö hafa fram síðustu vikur um umferðar- fræðslu í skólum, vekja vonir til þess, að hún geti hafizt strax í vet- ur, þar sem 6 ára bömum verði /A Eiginmaður yðar liggur fyrir dauðanum — óhugnanlegf simagabb í gær „Góðan dag. Þetta er á Að sögn símastúlkunnar á kemur upp, að því er hún bezt leg reynsla," sagði hún, og efa T anH 1» i i \7'A Landakotsspítala er þetta í veit — og vonandi f síðasta það sennilega fáir — ÞJM UanaaKOtSSpitala. VlO fyrsta skipti, sem svona gabb skipti. „Þetta er afar óhugnan- vorum að fá undir lækn"«"» ■ 1 n —w—« ishendur eiginmann yð- ar, alvarlega slasaðan eftir slys ...“. Eitthvað á þessa leið var upp- hringing, sem frú ein í borginni fékk í gær Fleiri fengu upphringing ar af sama tagi og var öllum gefið í skyn, að um líf eða dauða væri að tefla. Er að var gáð reyndust upp- hringingarnar gabb eitt. Símnot- anda með meira en lítið brengl- aða kímnigáfu hafði bara hug- kvæmzt að skemmta sér pfnu- lítið með smá símaati. Þetta „smáat“ hafði hins veg ar engin skemmtilegheit f för með sér fyrir þá er fyrir þiví urðu. Hann var að minnsta kosti ekki beinlínis hamingjusamur á svip, eiginmaðurinn, sem kom á harðahlaupum á Landakotsspft- ala þar sem honum haföi verið tjáð í upphringingu, að kunningi hans einn lægi fyrir dauðanum. Þeir hafa verið um átta, sem fengu upphringingar af þessu tagi, að því er símastúlkan á Landakotsspítala tjáði Vísi í gær og i öll skiptin hafðj það verið kvenmaður, sem bar fólk- inu tiðindin. Hvort þar hefði verið um eldri eða yngri kven- mann að ræða bar fólkinu ekki; saman um. !■■■■■! jj „Dúfna- jl \veizla" fyrir’f jníu milljarðaf: Sjá bls. 8 í I------------------1! ij Stórveldi í jj símaskránni jj «jFjölmargar fréttir eru í þættin-\ •Jum í skyndi í dag. Þar má m.a.»[ I'lesa um það hvernig við urðum/ "•stðrveldi í símaskrá Parisar-’* J«búa. !■ ■I Sjá bls. 5 mmmm /j? 'A méMm G-R-R-R... — Það má heyra villidýraurrið suð ur á Hvaleyrarholti á næstunni, þar sem þessir ungu tígrar hafa nú tekiS sér bólfestu. (Ljósm. Vísis B.G.) veitt hugsanlega 14 stunda fræðsla í umferðarmálum. Um 11 ára skeið hefur verið gildandi reglugerð, þar sem gert er ráð fyrir, aö bömum á skólaskyldu aldri sé veitt umferðarfræðsla, og meira að segja gert ráð ryrir kennslutilhögun og sérstakri þjálf- un kennara til þessarar fræðslu. En þessi reglugerö hefur að litlu leyti komiö til framkvæmda enn sem komiö er. Framkvæmdanefnd Umferðarráðs benti sérstaklega á þann drátt, sem orðið hefur á framkvæmd reglugerð arinnar, í viðræðum, sem nýlega fóm fram milli hennar og mennta- málaráöherra. I þeim viðræðum vakti nefndin sérstaka athygli ráðherrans á því, að engar umferðarkennslubækur væra á úthlutunarskrá Rikisútgáfu námsbóka i vetur. Brýndi nefndin nauðsyn þess, að kennslubókum um umferðarmál yrði dreift endur- gjaldslaust' til nemenda. Nýlega hefur Ríkisútgáfa náms- bóka gefið út 10 vinnublöð, sem ætl uð eru til notkunar við umferðar- fræöslu yngstu barnanna. Era vinnu blöðin sérstaklega sniðin með tfl- liti til kennslubókar, sem út kom hjá Ríkisútgáfunni haustiö 1969, og ber heitið „Á fömum vegi“. Gerð vinnublaðanna er þannig háttað, að á þeim er nær ekkert lesmál, en teikningar geröar af Hauki Hall- dórssyni, og er yngstu börnunum ætlað að glöggva sig á nokkrum undirstöðuatriðum umferðarinnar eftir þeim og leiðbeiningum bókar- innar „Á fömum vegi“. — GP VIÐ HVAÐ ERU ÞÆR HRÆDDAR? „Því miður eru það ekki margar, sem starfa með Ieyfi frá okkur, en ég veit að það er mik- ið af konum út; um bæ, sem ekki hafa samband við okkur. Við hvaö þær eru hræddar veit ég ekki“, segir Ásdis Kjartans- dóttir fóstra sem starfar hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar. Ásdís faefur haft með skrán- ingu að gera á konum, sem vilja taká að sér barnagæzlu. Hún segir að 15 konur hafi fengiö leyfi fyrir bamagæzlu auk 9 annarra, sem hafa komið tii, skráninga'r fyrir tilstuðlan fé- lagsskapar einstæðra foreldra, „Þetta er ófremdarástand", segir Ásdis ennfremnr. „Hér hjá okkur hafa konumar yfirleitt tekiö 3.500 kr.—4000 kr. fyrir barnagæzlu flestar. en ég hef heyrt að verðið sé komið upp í sex þúsund krónur. Það er með þetta eins og húsaleigima, veröið er sprengt upp vegna þess, að þaö er svo mikill hörg- ull á barnagæzlu“. — SB NA/VWWWWWWWWN. TIGRISDYR I SÆDYRASAFNINU — tv'ó dýr komin frá Sv/Jb/oð, en eftir er að fá leyfi til oð sýna þau almenningi Tvö tígrisdýr eru komin í Sæ- dýrasafniö í Hafnarfirði. — Dýr þessi eru frá Svíþjóð komin, og verða hér um þriggja mánaða skeið. Þau fæddust sl. vor, bæði en hafa samt (að áliti ófróðra Vísismanna) náð talsverðri stærð. Við skruppum í Sædýrasafnið í gærmorgun til að heilsa upp á kett; ' um. voru starfsmenn safnsins mjög að amast við því að við mynduðum dýrin, þar sem yfirdýra'r- knir hef- ur enn ekki litiö á þau, eða gefið safninu leyfi til að sýna þau al- menningi. Við fórum aftur á stúfana í gær- kvöldi og vorum á svo heppnir að komast (með brögðum nokkrum) að dýrunum og ná af þeim mynd- þessa, en fengum þá heldur óblíð- legar móttökur. Ekk; hjá figrisdýr- unum reyndar. þau kúrðu róleg úti í horni gríðarstórs búrs, heldur Við höfðutn svo tal af Jónj Gunn- arssyni, forstöðumanni Sædýra- safnsins, og skýrðum honum frá stráksskap okkar við myndatökuna. „Eins gott að dýrin átu ykkur ekki“, sagði Jón, „því að þau eiga að venjast næsta kaldranalegum matseðli. Þau boröa þrjú kíló af nauta- eða kindakjöti hráu .daglega, og fá þann skammt einu sinni á dag. Þar fyrir utan fá þau þorskalýsi og nóg af vatni. Á mánudögum fasta þau — fá ekkert annað en mjólk, fjóra Ktra af henni og sex egg. Einu sinni í mánuði fá þau veizlukost: Alfiðraöa hænu eða kaninu með skinni og öllu saman“. Sagði Jón, að því miður gæti safnið ekk; sýnt dýrin almenningi strax, „en það verður auglýst um leið og þaö verður leyft. Við bíðum eftir aö yfirdýrálæknir gefi sam- þykki sitt, og því miður er ekki víst að það verði núna um helg- ina“. Dýrin eru 1 nýju búri, sém haft er inni í húsi þar á lóð Sædýra- safnsins, og sagöi Jón þau næsta gæf en hrædd, þar sem þau hefðu ekki enn vanizt nýju um- hverfi og nýjum gæzlumönnum. „Svíarnir hafa selt þau í dýra- garð i Hannover en þeir seldu þau með því fororði, að við fengjum að hafa þau .hér fyrst um tfma“. sagði Jón, „einkar elskulegir menn þessir Sv'iar — og tígrisdýrin reyndar líka“. - GG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.