Vísir - 11.10.1971, Blaðsíða 16

Vísir - 11.10.1971, Blaðsíða 16
Mánudagur lí. október 1971. Sn'fóar fyrir norðan — en allir viðbúnir og engir erfiðleikar • 1 gær gerði storm og snjó- komu á Norðurlandi, samfara talsverðu frosti. Siglfirðingar létu sér þó lítt bregða enda vanir mikl- um snjókomum og gerðu þeir lítið úr þessu veðri. Siglufjarðarvegur er ófær litlum bílum, en jeppar og stærri bílar komast léiðar sinnar. Tálsvert snjóaði á Akureyri í gær og voru bifreiöaeigendur al- mennt ekki undir það búnir. í morgun gekk þar á með dimmum éljum og snjó hafði viða dregið i skafia. Vaðlaheiði mun að líkindum verá ófær og ýmsir aðrir vegir þungfærir smærri, bílum. Leiðindaveður var á Húsavik i gær, hvassviðri og snjókoma. Snjó festi þó lítið vegna stormsins og ekkj var vitað um að neinir hefðu lent 'i erfiðleikum sökum veðurs- ins. ----SG Samið um / verzlun við Tékka næstu fimm árin Sá ráðherra Tékkóslóvakíu, er fjallar um utanríkisviðskipti Adrej Barcak, kemur hingað í dag. Hann mun skrifa undir nýj an fimm ára viðskiptasamning milli íslands og Tékkóslóvakíu. Ráðherra' mun ræða við Lúðvík Jósepsson viðskiptaráðherra um ýmis málefni, sem várða viðskipti landanna. Einar Ágústsson utanrikisráð- herra mun skrifa undir samning- inn af hálfu íslands. Samkomulag um þessi viðskipti náðist i viðræð- um, sem fóru fram í Reykjavik 30. ágúst til 3. september Með ráðherranum koma ráðu- neytisstjóri og forseti verzlunar- ráðs Tékkóslóvakiu. — HH Enginn tími til að verða — segir farbeginn i þyrlunni, sem eyðilagðist um helgina „Mesta hættan var sú ,að vél- in færi á hliðina eða, að það kviknaði f henni, hún var með fulla tanka og fuil af bensín- brúsum. En flotholtin undir henni hafa tekið af mesta fallið. Þegar við vorum komnir út fór- um við frá vélinni þar sem við bjuggumst við að kviknaði í henni. Nei, það gafst enginn tími sjokkið eftir á vaí ekkert að ráði“, segir Guðmundur Hannes son verkstjóri hjá Rafmagns- veitu ríkisins, annar mannanna, sem var í þyrlu Landhelgisgæzl- unnar sem hlekktist á í lend- ingu í um 830 metra hæð í Rjúpnafelli sunnan Kerlingar- fjalla. vtc.v VmfA: +ai af Guðmundi í frá för sinni og Þórhalls Karlssonar flugmanns á þyrlu Landhelgisgæzlunnar. Þyrlan lagði af stað frá Reykja vík klukkan 11 á laugardagsmorg- un, en ferðin var gerð í þeim til- gangi að athuga' leiðina frá Sigöldu um Kjalveg og norður fyrir orku- flutningalínu. „Við lentum fyrst á Tungufelli, rétt neðan við Gullfoss, og fylltum vélina ,af bensíni. Síðan héldum viö í átt tij Keriingarfjalla' og lentum hræddur" uppi á Rjúpnafelli, í 830 metra hæð yfir sjó. Þegar flugmaðurinn var búinn að stoppa vélina í loftinu ætiað; ha'nn að iáta hana síga lóð- rétt niður en það tókst ekki betur en svo að hún skall niður. Vélin fór upp aftur og kom niður 60—70 metra frá fyrri staðnum og hopp- aði þar nokkrum sinnum. Þegar hún lenti á jöðinni sprungu fiotholtin, skrúfan spændist sundur, stélið brotnaði af og hurðimar hrukku af og er vélin sennilega ónýt.“ Þeir félagar sluppu samt ómeidd- ir. Þeir losuöu bensínið úr vélinni og sendu út neyðarkall en árangurs laust. Þeir borðuöu nestið sitt og gengu af stað í áttina a'ð Búrfelli en veður var hið bezta og gott skyggni. Þeir gengu allan daginn og fram á kvöld, en klukkan 11.30 á lauga'rdagskvöldið fann leitarvél þá. Þá voru þeir staddir hjá Sandafelli þar sem Tungná rennur 1 Þjörsá, og áttu þeir eftir tveggja tíma göngu upp á Sanda'fell að bækistöð Lands virkjunar þar og I síma', sem er þar. Þetta var 35—40 km. ganga'. „Myrkrið var verst fyrir okkur, viö lentum í mýrarfeni í myrkrinu, sem við hefðum sloppið ,við hefði verið bjart. Við þurftum líka að vaða margar sprænur á leiðinni, og það var verst að þurfa að fara úr st’igvélunum til að vinda sokk- ana, ma'ður var orðinn svo stirður í iljunum,‘‘ segir Guðmundur. Annars kvað hann ekkert hafa þjáð þá félaga eftir ferðina nema' að þeir hafi verið orðnir fótafúnir. Leit hófst, þegar þyrlan var ekki komin á áætluðum tfma kl. ÖLDR YKKJUMENN SENDU HUNDAVÍNUNUM TÓ íNN Reykjavíkur afhent formlega. Hurð sendiráðs okkar- opnaðist í hálfa gátt, hendi var skotiö út og greip plaggið, sem senda á borgarráði. Að svo búnu tvístrað ist þessi litli hópur.hundavinir, hundar og lögreglumenn, en lög ■reglan bað um aö gangan endaði við sendiráðiö, en hundavinir vildu ganga sömu leiö til baka. Martin Chillmaid ræddi við — Átta hundavinir, 2 hundar, 12 lögreglu- menn, mótorhjól og FANGABIFREIÐ! — Mót- mælin gegn hundabanninu i Reykjavik runnu út i sandinn „Þetta er ömurlegasta mótmælaganga, sem ég hef orðið vitni að“, sagði Ástþór Magnússon, fréttaritari Vísis í Lond on eftir mótmælagöngu hundavina í stórborginni eftir hádegið á laugar- daginn. „Átta mótmæl- endur, tveir hundar, 12 lögregluþjónar, fanga- bifreið og mótorhjól frá lögreglunni í farar- broddi.“ Lagt var upp frá Sloane Square, sem er í grennd viö sendiráð íslands. Gengið var undir nokkrum mótmælaspjöld- um. Mun fleiri voru þeir, sem stóðu á gangstéttarbrúnum og sendu göngunni hæðnisorð. Einkum voru þeir ólatir kumpán amir, sem stóðu með bjórglös f hendi fyrir utan einn af „pöbb- unum“. eins og ölknæpurnar ensku eru kallaðar. Við sendiráöið var mótmæla- orðsending til borgarstjórnar Mr. James Foulds, fonhann Animal Justice Society að göng- unni lokinni. „Þessu er beint gegn 2 — 300 hundum á íslandi, — en þaö er sama þótt aðeins væri um einn hund' að ræða, við mundum berj ast gegn slíku óréttlæti engu að síður“, sagði hann. Herra Foulds kvaðst aðspurð- ur halda að lögreglan í Reykja- vík réöist gegn hundum hvar sem til þeirra næðist og lógaði þeim. hvort heldur það væri úti á götu, eða á heimilum fólks. Kvaðst hann ekki sjá neitt at- hugavert við að halda hunda, hvort heldur væri í einbýli í borg eða í fjölbýlishúsum. Hins vegar viðurkenndi hann að víða væri pottur brotinn í hunda- málum í Englandi, og of margir væriu trassar með hunda sína. „Við reynum aö fá yfirvöld í Reykjavík til að breyta afstöðu sinni“, sagði hann og bætti við að ef ekki gengi að- fá þessu breytt, mundu hundavinir reyna að M útflutningsbann á brezka vöru til íslands. Ekki vild; for- maðurinn svara því hversu marg ir (fáir) hefðu verið í göngunni, sem reyndar var auðtalið hverj- um sem var, en hann sagði að- eins: „Við erum mjög ungt félag en ég veit að í öðrum löndum eiga svipuð mótmæli og stærri eftir að fara fram“. — ÁM/MC Öldrykkjumönnum á „pöbbunum þóttu hundavimr heldur kátlegir á göngu sinni. (Ljósm. Ástþór) Þyrlan illa útleikin uppi á hálendinu, — líklega ónýt með öllu. ^r>r - ->

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.