Vísir - 15.10.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 15.10.1971, Blaðsíða 1
PALLARNIR HRUNDU EINS 06 SPILABORG „Það var mesta mildi, að ekki skyldi hljótast stórslys af, þeg ar hrundu hérna hjá vinnupallar af fjörutíu okkur metra Mál á hendur Margeiri J. Margeirssyni, vixlara: 46 þúsund króna skuld óx upp / 602 þúsund kr. — segir i kæru vegna vibskiptanna Höfðað hefur verið mál fyrir Borgardómi Reykja víkur gegn Margeiri J, Magnússyni til endur- greiðslu á of háum lána vöxtum, sem stefnandi telur Margeir hafa tekið í lánaviðskiptum. Er mál þetta flutt sambliöa þvi aö fyrir sakadómi Reykja- vfkur liggur nú til rannsóknar kæra á hendur Margeiri fyrir meint bot á okurlögunum. Málið gegn Margeiri flytur Jóhann Ragnarsson hrl. fyrir hönd Magnúsar H. Jónssonar og krefst lögmaðurinn kr. 257.338 króna endurgreiðslu úr hendi Margeirs fyrir oftekna vexti af 46.000 króna láni, sem Margeir hafi veitt skjólstæðingi hans. I stefnu sinni segir stefnandi að Magnús H. Jónsson hafi feng ið 30.000 króna víxiMán hjá Margeiri 7. ágúst 1963 og annað víxillán 8. október 1963 upp á sömu upphæð. í hvort skiptið hafi lánþegi fengið greiddar að- eins 22.800. En síöan hafi lánþeginn gefið út fjölda víxla til endurgreiöslu á láninu og vöxtum af því. Telur stefnandi upp víxiana og upp hæðir þeirra: 19 október 1964 kr. 35.000 14. júlí 1965 kr. 51.300 19. janúar 1966 kr. 50.000 19. júlí 1966 kr. 63.000 28. janúar 1967 kr. 110.000 16. júní 1968 kr. 150.000 Tekur stefnandinn fram, að aldrei hafi verið um framleng- ingu að ræða á fyrri víxlum, þegar nýr vfxill var samþykktur. Eldri víxlarnir hefðu verið látn ir liggja áfram. Segir stefnandi í kæru, sem hann se'ndi sakadómi f marz í vor, vegna þessara viðskipta skjólstæðings hans við Margeir — að lánþeginn hafi alls sam- þykkt víxla að upphæð samtals kr. 602.300 fvrir þessari 46.000 króna skuld, sem hann stofnaði til við Margeir. Og í kröfu sinni, sem hann hefur lagt fyrir Borgardóm um endurgreiðslu úr hendi Margeis segir hann, að fjárhæð réttmætr- ar skuldar mannsins við Mar- geir — eftir viðfestum vaxtaút- reikningi — sé raunverulega kr. 94.930. Mál þetta var þingfest í Borg ardómi 7. þessa mánaðar og var þá stefnda veittur frestur til 21. október til þess aö leggja fram sfna greinargerð og gögn í mál- inu. —GP r • • FLUGFELOGIN A SÁTTAFUNDI? Fulltrúar stjórna Loftleíða og Flugfélags Islands er oft hafa eldað grátt silfur saman undan- fama áratugi, hittust á fundi í morgun til að ræða ágreinings- málin. Eins og blaðalesendur hafa orðið varir við hefur sam komulagið ekki verið alveg upp á hið bezta upp á síðkastið og „hnútur flogið um borð“. Loftleiðir vilja lækka fargjöldin milli íslands og Evrópu eins og Vísir skýrði frá á sínum tíma, en Flugfélagið hefur ásakað Loftleiöir fyrir að láta bréf þar um „leka“ út og segja Loftleiöir vera tvöfalda í roðinu. Segjast vilja lækka aðal- fargjöldin til Evrópu um 15% á sama tíma og þeir hafi sjálfir hækk að fargjöldin til Bandaríkjanna héð an um 20%. — Loftleiðir hafa ekki svarað þessum aðdróttunum Flug- félags íslands. Fundurinn í morgun er sagður vera haldinn að frumkvæði sam- gönguráöherra og fjármálaráðherra, en þeir hafa lagt fram tillögur um það, að félögin kanni möguleika á samstarfi. — VJ Veiðin ekki í samræmi við síldarfundinn — segir Hjálmar Vilhjálmsson, en Hafþór fann torfu úti i Bugt i morgun Leitarskipið Haþór fann í morg- un um 6-leytið síldartorfu rtorðan við Hraunhornið, eða skammt und- an Akranesi. En Titið hefur fund- izt af síldartorfum í Bugtinni til þessa. — Við rákumst þarna á eina torfu, sagð; Hjálmar Vilhjálmsson ieiðangursstjóri á Árna Friðriks- syni, en síðan ekki söguna meir. Við höfum aðeins orðið varir við smávægilega' dreifð niöri viö botn- inn s'iðan— og það gæti verið síld. Síldarbátarnir eru nú flestir Y' höfn, en þeir fara út þegar dimma tekur og munu Akranesbátar vænt- anlega reyna að komast í tæri við torfuna sem fannst úti af Hraun- inu í morgun. Eina verulega síldar- magnið, sem fundizt hefur til þessa er við Eyjarnar, eöa vestur af Surtsey og á Eldeyjarbanka. — Síldveiðin hefur ekki verið í samræmi við það sem þó hefur fundizt af síld. Straumur hefur gert bátunum erfitt fyrir að undanförnu svo erfitt hefur reynzt að ná síld- inni. Hafþór mun halda síldarleit á- fram á þessum slóöum fram að mánaðamótum. JH Gulls-í-gildi — Síldin er orðin sjaldséSur fiskur hér á landi. Þarna er einn af skipverjum af Náttfara að velta þessu silfri hafslns milli handanna, en síldina kom skipið með úr Norðursjó og var henni skipað upp í Reykjavík í morgun. löngum vegg íþróttahússins. — Aðens hálfri mínútu síðar komu 10 nemendur úr sundi og gengu þá, eins og leið þeirra hefur alltaf Iegið, einmitt hjá vinnu- pöllunum", sagði skólastjóri barnaskólans f Njarðvíkum, Sig urbjörn Ketilsson. — mesta mildi oð skólabörnin urbu ekki undir vinnupóllunum „Við höfum margoft minnzt á það við hreppsnefndina, hvaða hætta skólabömunum væri búin af þess- um pöllum, sem staðið ha'fa í tvö ár. Börnin hafa sótt í að leika sér á þeim, og viö höfum orðið að beita þau hörðu, til þess að reyna að bægja þeim frá. — En viðkvæðið hefur verið það, að ekki væri hægt að fjarlægja pallana, fyrr en frágangi íþróttahússins væri lokið. Okkur finnst hafa verið ó- skaplegur seinagangur á þvl. Núna si'öast í fyrradag var lokið við að mála' húshliðina, og er þá komið langt fram á haust með in- dæiis sumar að baki,“ sagði skóla- stjóri. Þrír menn voru að vinna á pöll- unum f fyrra'dag við að mála hús- hliðina, en þá var ekki eins hvasst og f gær. „Það var þó fjarri því að vera neitt aftakaveður,“ sa'gði Sigur- by' n skólastjóri. Vinnupallarnir, sem reistir höfðu verið meö 40 metra löngum og 8— 10 metra háum veggnum, hrundu eins og spilaborg um kl. 3 í gær. Lá spýtnabrakið víðsvegár um leikvöll- inn en strax 'i gær var ruslið dreg- ið í eina kös, „svo naglaspýturnar eru ekk; lengur fyrir fótum bam- anna.“ — GP Hætfulegt starf — frétta- mennskan! Sjá bis. 4 Hve lengi er hægt oð bæta met’rn í iþrótfum? Sjá bls. 8 Veburgub- irnir, — hvab eru þeir margir? Sjá bls. 9

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.