Vísir - 22.10.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 22.10.1971, Blaðsíða 1
visrn 61 árg. — Föstudagur 22. október 1971. — 241. tbl. SMYGLUÐ SKINKA Á BOÐ- STÓLUM í VERZLUNUM? — tveir menn reyndu að smygla 120 kg af skinku og spægipylsum i mjólkurbrúsum úr Gullfossi Mixtúra sem er 79 prósent ól seld í verzlumtm — I blóra við Áfengiseinkaölu rikisins — Þýzkt nunnumeðal frá öldinni sem leið — Á að vera lækning við flestum kvillum Þó að Áfeneisverzlun ríkisins hafi algjört einkaleyfi á sölu áfengis sem er yfir 2‘/2% vínandi hefur að undanfömu mátt fá í almennum verzlunum mixtúru. er innihel^ur hvorki meira né minna en 79% alkóhól og er því sterkara en allt veniulegt áfengi sem selt er í vínbúðunum. Mixtúra þessi er upprunnin í Þýzkalandi var fundin þar upp af nunnu nokkurri snemma á öldinni sem leið og hefur verið notuð við hvers kyns kvillum í 130 ár eftir því sem segir í leiðarv’isi, sem meðalinu fylgir. Mixtúra þessi kallast „Melis- ana“ eða „KIosterfrau-Melissen geist“ og fæst á líters flöskum í verzlunum Náttúrulækningafé lagsins. Vísismenn keyptu eina slíka pyttlu i Nátfúrulækninga félagsbúðinni í Álfheimum V morgun á 110 krónur. Aö sögn forsvarsmanna Áfeng isverzlunarinnar er þetta lyf að. spjálfsögðu óleyfilegt — vegna áfengismagnsins. — Látum nú vera lækningar gildið, sagði Erling Edwald for stöðumaður lyfjaeftirlitsins, en ég skil ekki hvernig hægt er að flytja svonalagaö inn. LTm sölu á lyfjum gildir reglugerð, og brýtur sala þessa lyfs ! oága við hana. Meö mixtúruglasinu fylgir pési, þar sem talið er upp hvers kon ar kvilla ,,Melisana“ læknar og eru þar á meðal eliikrankleiki, tannpína, flensupestir og kvef og yfirleitt flestir kvillar, sem mennina hrjá meira og minna. Áfengisverzlunin mun vænt- anlega gera ráðstafanir til þess að ná þessu lyfj ,í sína vörzlu. En ekki er vitað, hvort menn geta þá haldið áfram að kaupa það í rtkinu til þess að hressa upp á heilsuna. —JH // EKKI A OKK AR VEGUM" segir Fragtflug um vopnaflutningavélina Mixtúran er seld í þessum litlu flöskum og kostar 110 kr. glasið. 5Kaupið húsið* — segja læknanemar og Geðverndarfélagið Læknanemar héldu fjöimenn- an fund i gærkvöldi þar sem samþykkt var einróma að skora á stjórnvöld að hvika í engu frá áformum sínum um að festa kaup á húsi númer 71 við Laugarásveg til vistunar sjúkl- inga, sem hæfir eru til útskrif unar af Kleppsspítala en eiga ekki í önnur hús að venda. í ályktun, sem Vísi barst í morgun segir þetta og ennfremur, aö fund ur í Féíagi læknanema lýsi fullum stuðningi við þá stefnu, að almennt íbúðarhúsnæði sé nýtt fyrir öryrkja :og sjúka, sem utan sjúkráhúsa geta verið. „Er þáð álit fundarins, að öll viðleitni í þá átt að meina ein- hverjum e'instaklingum, þótt sjúkir 'séu eða fatlaðir vist í ákveðnum . hverfum.eða bæjarhlutum sé ómann úðleg og gagnstæð nútímalegum viðhorfum í géðvernd, forsjá 'ör- 1 yrkja og endurhæfingu sjúkra.“ Vísi hefur einnig borizt álit fram kvæmdastjóra geðverndarfélagsins, Ásgeirs Bjarnasonar, um húsakaup- in f Lugarásnum. Segir þar m. a. að Geðverndarfélag íslands fagni jreirri ákvöröun að fest verði kaup á einkar hentugu húsnæði í fögru umhverfi og ekki sfzt, þegar að- stæður fjölskyldunnar, sem húsið reisti hafi breytzt á þann veg, að eignin nýtist henni ekki í upphaf- legum tilgangi, samræmd sem einka híbýli og vinnustaður. Heitir Geðverndarfélag íslands á hið opinbera að halda áfram á sömu braut svo að fjölskyldufeðrum megi takast að rækta garð sinn sem hug, kynna börnum sínum hve mörgum lífið hefur markað ör og hvernig umgangast beri náungann á mann- sæmandi hátt, „Þess ber að vænta, að fordómar víki fyrir þekkingunni og.þeim, sem brenglazt hefur.jafn- vægi skapist ml æskileg □ Orðrómur gaus upp hér í Reykjavík fyrir nokkrum dög um að það hefðí verið flugvél frá Fragtflugi hf.“ sem verið heföi i vopnaflutningum frá Tékkóslóva kíu fyrir írska lýðveldisherinn. Nýlega komst upp um vopna- smygl á vegum lýðveldishersins frá Prag um Amsterdam og til írlands, en flutningarnir voru stöðv aðir á'flugvellinum í Amsterdam. Hér heima var svo pískrað um, að Fragtflugsvél hefðj flutt vopn in á vegum belgVska flugfélagsins Pomair frá Prag, en verið stöðvuð í Amsterdam. Vísir ræddi við stjórnarformann Fragtflugs, Árna Guðjónsson lög fræðing, og sagöi Árnj að það’væri af og frá að Fragtflug ætt; í þess háttar ævintýrum, „við stö.ndum ekki í neinu samstarfi við Poma;r, nema' hvað við fáum afnot af tel UTVARPAÐ SAMKVÆMT LÖGUM — „Mér vitanlega hefur það aldrej komiö til taís að breyta til högun á útvarpi frá alþingi, svo sem umræðu um fjárlög," sagði Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, er Vísir spurði hann í morgun hvort ekki kæmi til að útvarpa frá al- þingi á sérstakri bylgju, svo sem gert er í prestkosningum eða því um líku. „Útvarpið ræður hér engu,“ sagði Andrés, „það er alþingi sem ákveð ur hvenær útvarpað skuli vera og hve lengi. Okkur ber skylda til að útvarpa frá alþingi samkværnt Tveir skipverjar af Gullfossi reyndu í gær aö smygia í land 120 kílóum af danskri skinku og spægipylsu í mjólkurbrúsum. Brúsarnir voru fiuttir um borð fuiiir af mjóik og beið flutninga bíll á bryggjunni meðan verið var að iosa þá. ToIIverðir höfðú augun hjá sér, þegar verið var að skila brúsunum aftur upp á bílinn og áttu þeir þá að vera tómir, en brúsarnir virtust þá vera óeðlilega þungir. Við athug un kom í ljós að þeir voru þá fullir af niðursuðudósum. Voru þarna 116 kíló af skinku og um 6 kg af spægipylsu, Varla hafa skipsmenn verið að smygla þessum matvælum til þe^s að gæða sér á heima. Leikur grunur á að þarna hafi verið um að ræða vöru, sem átti að fara í verzlanir. Orðrómur er á kreikj um að tals- verðu af þeirri skinku, sem seld er í verzlunum í bænum sé smyglað. Rannsóknarlögreglan hefur hins veg ar ekki getaö gert þetta uppvíst, enda ekki svo gott að greina mun á íslenzku skinkunni og þeirri dönsku, þar sem sú íslenzka þykir það góð að hún gefur ekkert eftir danskri. Tveir skipverjar voru ábyrgir fyr ir þessum smyglvarningi. Hefðu þeir mátt hafa sig alla við, ef þeir hefðu átt að torga öllum þessum matvælum sjálfir, því þarna er um að ræða líklega 200 máltíðir fyrir meðalstórar fjölskyldur. Og hefðu þeir því orðið að borða skinku og spægjupylsu mestan part næsta árið. exi hjá þeim og þeir lána okkur skrifstofuhúsnæði.“ Þá hefur Vísir fregnað, að vopna flutningarnir frá Prag hafi verið lög legir þ. e. a. s. til Amsterdam. Mun farmur Pomair-vélarinnar hafa verið skráður sem vopn, og látið í veðri vaka, að stjórn ein 1' Afrfku hefði keypt farminn, og að Sabena vél myndj fljúga vopnunum til Af ríku frá Amsterdam. Smyglið komst hins vegar upp, þegar reynt var að koma vopnunum undan í Amster dam, þvf að aldrei stóð til að Sa- bena flytti vopn suður á bóginn. í sumar leigði Fragtflug belgíska leiguflugfélaginu Pomair vél, og flaug hún þá með íslenzkum númer um (TF-OAD), en vandlega merkt Pomair. Þessi vél kom hér við fyrir um viku, var þá á leið til Miami til eigenda sinni, sem Fragt flu-g leigði vélina hjá. —GG lögum, og mér vitanlega hefur aldrei komið til gre'ina að gera það öðruvf'si en nú er gert. Lög kveða á um útvarp umræðna um fjárlög, þingsetningu og þingslit.“ — Þessu veröur þá ekki breytt, þótt það sé almannarómur f land inu, að fáir hlustj á þetta útvarp og slíkar umræður þyki vont útvarpsefni? „Nei. Og ég get ekkert um það sagt. Ef einhver vill breyta þessu, þá verður slíkt frumkvæði að koma frá alþingi. Þetta eru lög og þau setur alþingi." —GG Rífur upp Jbd daufu „Margir viija halda þvi fram, að trompetið mitt sé full hávaða samt hljóöfæri fyrir mig við starfið, en einmitt það kemur mér svo oft að notum. Trompet- leikur er tilvalinn til að rífa upp þá daufu“. Þannig komst Eyjólf ur Melsted að orði í viðtali við Vísi um starfssvið sitt „músík- therapy", en Eyjólfur er eini íslendingurinn, sem starfar að þeirri grein læknisfræðinnar. Sjá bls. 9

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.