Vísir - 28.10.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 28.10.1971, Blaðsíða 1
GETA NÚ FLUTT ÚR KJALLARAGEYMSLUNNI -Hl .1 Margir brugöu til hjálpar — fengu ótrúlega góð tilboð um húsnæði eftir frétt Visis Húsnæðisvandræðin á h’ófuðborgarsvæðinu: BYRA HCRNIIM MED TVO UN6LIN6A VÍR6AN6I Allir vildu allt fyrir mig gera, en gátu bara ekki útvegað mér neitt þak yfir höfuðið, sagði kona sem búið hefur með tveimur sonum sínum á Hjálpræðishernum und- anfarinn mánuð. Ég leit aði eins og fleiri til hús- næðismiðlara og greiddi mínar 700 kr. hjá þeim báðum en húsnæði fékk ég ekki. Hvernig á líka fráskilin kona og sex barna móðir að komast nokkurs staðar inn? — Yngri börnin eru á barnaheimili, tveir ungl- ingar eru hjá mér á ver gangi. Ég fékk gott herbergj á Hjálpræöishernum fyrir væga greiðslu og kynntist þar fólki, Hjálpræðishersfólki sem hefur unniö ómetanlegt starf í þágu þeirra, sem lítilmegandi eru. Ég hef sent tilboð eftir tilboð vegna auglýsinga í blööunum, tilboð, sem greini fjölsky.ldu- stærð, fyrirframgreiðslu og mán aðarleigu. Einu var svarað, fjög- urra herbergja fbúð í eldgömlu húsi salerni með næstu íbúð fyrir neðan, ekkert bað, ekkert þvottahús, engin gevmsla, tíu þúsund mánaðarlega og árið fyrirfram. Það hringir enginn, þegar maður gefur upp síma- númer hjá Félagasmálastofnun- inn; og Hjálpræðishernum. Wi ■ y.; /istarverur Hjálpræðishersins hafa verið athvarf mörgu húsnæðislausu fólki, en varla eru þær ausnin á húsnæðisvandanum. 1 það heilaga án bólu- setningarvottorðs — nýja hjúskaparfrumvarpið rætt á þingi i dag Sjálfsagt hafa fæstir sem geng- ið hafa í hjónaband vitað að sam- kvæmt núgildandi lögum ber hjóna efnum að leggja fram bólusetning- arvottorð. Frumvarp til laga um stofnun og slit hjúskapar verður tekið til fyrstu umræðu á alþingi i dag. Frumvarpið gerir ráð fyrir að þetta ákvæði um bólusetningar- vottorðiö veröi felit niður, enda sé slíkri skyldu hvergi að geta í nor- rænum Iögum. Ýmsar nýjungar eru í frumvarpinu og er t. d. lagt til að líkamiegir sjúkdómar verði ger- samlega felldir á brott sem hjúskap artálmi. Ennfremur getur dómsmála ráðuneytið gefið geðveiku fólki og hálfvitum leyfi til að giftast. Ekki hefur þó verið talið heppilegt að gera allt of róttækar breytingar á núgiidandi hjúskaparlöggjöf, t d. hvað snertir lágmarksaldur hjóna- efna. Þurfa þau að fá leyfi for- eldra ti! að kvænast ef þau eru undir tvítugu. — I athugasemdum frumvarpsins er birtur listi um hjú skaparaldur í nokkrum löndum. — Samkvmmt honum eru írar og Spánverjar hvað frjálslegastir í þeim efnum. í þessum löndum þarf brúðurin ekki vera nema 12 ára en hins vegar er talið rétt að brúðguminn sé nokkuð þroskaðri, þannig að hann þarf að hafa náð 14 ára aldri. —SG Læknar koma þangaö ekki einu sinni. Ég hef reynslu af því, ég var með fárveikan dreng um daginn og veik sjálf. Ég hef orð- ið þess vör að það tekur heldur lengri tíma fyrir lækna að koma hingað en á venjuleg heimili. Að sögn forráðamanna Hers- ins hafa fleiri sem eru í hús- næðisvandræðum leitáð þangað, þar voru hjón til skamms tíma — nokkra mánuði. Einnig hefur fólk leitað tii fleirj gistihúsa, meðal annars „PiparsveinahaIIarinnar‘‘ svoköll uðu. Gistiheimiiins að Snorra- braut 52, en þangað leita þó einkum einstaklingar. Þar bjuggu þó til skamms ttma hjón sem voru að bíða eftir að komast inn f fbúð. Til stærri hótelanna hefur hins vegar ekki verið leitað, enda þa'rf æði fjár- kt fóik tii þess að búa á hóteium langtímum saman. Og slíkt fólk getur sjálfsagt borgað árið fyrirfram. — JH IUngu hjónin, sem Vísir sagði frá í gær að hírðust í kompu einni í fjölbýlishúsi við Kiepps veg, þar sem þau gátu hvergi fengið inni, geta nú hrósað happi, þvl að eftir að fréttin birtist í Vísi, hringdi fólk í okk- ur sem bauðst til að hjálpa þeim. Kona í Hafnarfirði, sem er að flytja noröur á land í vetur bauðst til að leigja þeim húsið sitt, gamalt 4ra herbergja einbýlishús fyrir lágt verð — eða' jafnve] endurgjalds- laust, ef leigan ylli erfiðleikum! í dag fara hjónin og skoða húsið, og má sennilegt telja, að þau þiggi hið góða boð konunnar. Annað fólk í Hafnarfirðj bauðst ti] að Ijá þeim óstandsetta Vbúð, gegn þvf að maðurinn kæmi henni f íbúðarhæft ástand. Og fleiri höfðu samband við okkur. Fólk sem bauðst til að leggja fram peninga handa þeim, ef þaö hjálpaði eitthvað og ein kona bauðst til að taka af þeim yngsta barnið og gæta' þess meðan á vandræðum þeirra stæði. Það var svo sem vitað, að marg- ir myndu bregðast við og hjálpa fólkinu úr vandræðunum, og við þökkum fyrir snarleg viðbrögð góðra manna en dæmið frá f gær, sýnir, að eitthvað alvarlegt er að í húsnæðismálum f Reykjavík og nágrenni. — GG Teikning jpjóðar- bókhlöðunnar: Arkitektar vilja fá að vera með Arkitektar hafa skorað á mennta málaráðherra að samkeppni fari fram um teikningu þjóðarbókhlöðu. Telja arkitektar að undirbúningi byggingaframkvæmda og áætlunar gerð fyrir byggingar sé of oft áfátt og muni samkeppni veita aðhald í þeim efnum þar sem öll skipulagn ing þurfj að iiggja fyrir áður en samkeppni hefst. Þá eru arkitektar óánægðir með hversu mikil þögn ríki yfir bygg- ingaframkvæmdum og oft rísi upp byggingar, sem séu meingallaðar. Ekki séu höfð samráð við þá að- ila, sem muni starfa í viðkomandi byggingum og starf arkitekta ekki notað sem skyldi. Varðandi þjóðarbókhlöðu hafi byggingarnefnd farið dult með mál ið en fregnir borizt um að fengnir hefðu verið erlendir sérfræðingar til ráðslags og einnig að verkið væri of sérhæft fyrir arkitekta. — Því neita arkitektar með öllu og harma það að fyrrverand; formanni félagsins Þorvaldi S. Þorvaldssyni skuli vera boðið verkið meöan hann sem formaður félagsins hafi unnið að því að samkeppni yrði höfð um það. — SB Hvað er á seyði? Övissa hefur verið í málum Fé- ags íslenzkra bifreiðaeigendal mdanfama mánuði. Þar hafa| iflókin mál verið á ferðinni, — leyndarmál mörg. 1 blaöinu i! dag er fjallað um þessi mál. Sjá bls. 9 Viltu giftast? Sjá bls. 2 Hjálp Jafnvel harðir gagnrýnendur gengu út úr Iðnó með óbragð I íunninum eftir frumsýninguna á HJÁLP. „Ógeðfellt og fráhrindi andi verk, ruddaháttur efnisins, ekki síður en hin stílfærðari' iheimsmynd ofbeldis og ánauðar,, sem hann dregur jafnharðan; upp“, segir Ólafur Jónsson í' iskrifi sínu í dag um leikritið. Sjá bls. 7 Hafa Israels- menn eld- flaugar fyrir atómvopn? Sjá bls. 8

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.