Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 3

Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 3
M ISIR. Laugardagur 30. október 1971. 3 Full skil sýslumanns Bréf frá Jóni Isberg til aib'mgismanna Blönduósi 26. okt. 1971. Vegna ummæla, sem mér eru sögð vera í athugasemdum við ríkisreikning fvrir árið 1969 sendi ég yður, herra alþingismaður, loka- skilagrein embættis míns fyrir árið 1969 dags. 10. febrúar 1970, en þá ha'fði ég gert full skil fyrir það ár, 1969. Eins og fram kemur urðu heildar ríkistekjur kr. 27.127.972.50 árið 1969, þar af hafði verið greitt og útlagt fyrir embættið í nóvember- lok eða fyrstu dagana í desember kr. 18.175.727.50. Af tekjum greidd um í desember sendi ég ríkisféhirði 20. des. frá Hvammstanga kr. 1.000. 000.00 og frá Blanduósi 29. des. kr. 3.500.000.00 þá sendi ég frá Blönduósd 7/1 ’70 kr. 2.000.000.00 og 9/1 '10 frá Hvammstanga kr. 1.500.000.00. Til þarfa embættisins og útlagt vegna ríkissjóðs (sjá neðri hluta skilagreinar) fóru kr. 522.004. 50. Áhættu- og innheimtuþókriun sýslumanns af 27.127.972.50, reynd- ist vera 20.732. — skrifa tutt- uguþúsundsjöhundruðáttatíuogtvær krónur 00/100 kr. 20.782.00 og það sem eftir var kr. 409.458.50 var sent með bréfi 10. feb. 1970, en varla er búið fyrr aö greina f sund- ur öll þessi gjöld og ákveða endan lega hvað hverjum ber. Heildarupphæð innheimtanlegra tekna ríkissjóðs og Tryggingastofn unarinnar 1969 varö kr. 48.923.467. 05 þar af frá fyrri árum kr. 12.114. 140.55 og tilfallið á árinu kr. 36.809. 326.50 og því eftirstöðvar kr. 12. 599.167.05 en þar meðtalinn sö!u- skattur fyrir síðasta tímabil 1969 og er ekki álagður fvrr en í feb. 1970 kr. 3.648.000.— eða raunveru- legar eftirstöðvar kr. 9.041.000.00. Ég sendi yður aðeins beinharðar tölur. Gert var upp fyrir árið 1969 á sama hátt og gert hefur verið upp hér a. m. k. s.l. 20 ár, sem ég hefi haft afskipti af uppgjöri héðan. Ég veit ekki hvaöa tilgangi það þjónar að gera innheimtumenn ríkis ins tortryggilega í augum hátt- virtra alþingismanna og almenn- ings. En í trausti þess að einhver hinna 60 þingmanna rísi upp og biðji um skýringar á þessu, svo þær skýringar komist inn í þingtíðindi kveð ég yður. Með virðingu, Jón Isberg. Rússarnir þekktu ekki „systemið og því var rútan óskoðuð // Ókunnugleiki starfsmanna rúss- neska sendiráðsins olli því, að rútu bifreið þeirra, sem vakin var athygli á, að vanrækt hafði verið að færa til skoðunar bifreiðaeftir- litsins — var enn höfð á skrá, þótt bifreiöin hefði lengi ekki verið í notkun. „Starfsmaður frá sendiráðinu kom hér og lagði inn skráningar númer bflsins og bað um að rútan yrði tekin af skrá,“ sagði bifreiða aftirlitsmaðurinn, sem veitti mót töku númerunum. „Maðurinn baðst kurteislega af- sökunar á því, hve lengi hefði dreg izt að leggja inn númerin, og sagði, að þeir hjá sendiráðinu hefðu ekki verið nógu kunnugir því, hvaða formsatriðum ætti að fram fylgja, þegar bílar væru teknir hér úr notkun. Hann upplýsti okk ur um það, að rútan heföi lengi ekki verið f notkun, heldur aðeins staðið ónotuð, og það væri ekki ætlunin að setja hana í umferð aftur. — Þeir mega víst ekki selja ejgur ríkis síns, og hafa beðið eft ir fyrirmælum um, hvað þeir ættu að gera við gripinn. Þess vegna hafði hún ekki verið færð til skoð unar,“ sagði eftirlitsmaðurinn. —GP Merkjasala flugbjörgun- armanna I dag er hin árlega merkjasala Flugbjörgunarsveitarinnar. Starfsemi sveitarinnar hefur far- ið ört vaxandi með hverju árinu og þar með rekstrarkostnaðurinn. Nú fyrir skömmu var stofnuð ný flucbjörgunarsveit að Varmahlíö í Skagafirði og eru þá sveitirnar orðnar sex víðsvegar um landið. Kostnaöur við reksturinn hefur stöð ugt farið vaxandi, og viljum við því nú sem endranær treysta á áð almenningur kaupi merki sem seld verða víðsvegar um landiö. Að þessu sinnj hefur verið á- kveðið að verja þeim peningum sem inn koma til kaupa og endumýjun-' an á sjúkratöskum og margs konar hjálpartækjum. I Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík þjálfa nú að staðaldri 70 — 80 manns og má kalla þá út með mjög stuttum fyrirvara. Allt starf sem unnið er innan sveitarinnar er unnið f sjálfboða- vinnu og t.d. má geta þess að með- limir bíladeildar hafa nýlokiö við að gera upp einn af bílum sveit- arinnár. Á morgun sunnudag mun Kvennadeild Flugbjörgunarsveit- arinnar hafa sína árlegu kaffi og basarsölu að Hótel Loftleiðum. Ein af framtíðar- konunum Þessi litla vinkona okkar varð á vegi okkar fyrir nokkru. Okk ur þótti það vel þess virði að skjóta á hana nokkrum mynd- um, enda framtíðarkona, sem er alls ókvíðin vetrinum, jafnvel þótt hann Páll Bergþórsson spái verr nú um veturinn en hann gerði í fy ra. Hún horfir von- glöð tii vetrarins, enda kórónar jólahátíðin þann hluta ársins og er víst flestum börnum hið mesta tilhlökkunare’fni. Nauðungarappboð sem auglýst var í 34. 37. og 38. tölublaöi Lögbirtinga- blaösins 1970 á v.s. Guðbjörgu GK-6 þingl. eign Báta- féjags Hafnar-fjarðar fer fram eftir kröfu Árna Gr. Finnssonar, hrl., Fiskveiðasjóðs íslands og Innheimtu ríkissjóðs viö eða í skipinu í skipasmíðastöðinni Dröfn, Hafnarfirði þriðjudaginn 2/11 1971 kl. 2.00 e. h. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. NauSuiigarupplsoð sem auglýst var í 49. 50. og 52. tölublaöi Lögbirtinga- blaðsins 1971 á eigninni Vesturbraut 15, efri hæð, Hafnarfirði þingl. eign Tryggva Harðarsonar fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar, hrl. á eigninm sjálfri þriðjudaginn 2/11 1971 kl. 3.00 e.h. Bæjarfógetinii í Hafnarfirði. VEUUM fSlENZKTÍUEISIENZKAN IÐNAÐ Þakventlar iíí* M ÞAKRENNUR Xv.v.v.’tS J. B. PÉIURSSON SF. ÆGISGÖTU .4 - 7 13125, 13126 DRENGJA- FATÁ- VERZLUN Peysur í úrvali. Skyrtur í möi gum litum þýzkai og íslenzkar. Úlp’úr og buxur. Dönsk náttföt, Tempo nærföt, rósótt bindi, slaufur, axlabönd, sokkar o.. fl Póstsendum. S. Ó. búðin Njálsgötu 23, sími 11455.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.