Vísir - 03.11.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 03.11.1971, Blaðsíða 2
 Jme Fonda leikur skækju Jane Fonda er sennilega i hópi frægustu rauðsokka í heimi. Hún er orðin 34 ára að aldri og milli þess sem hún skipuleggur mófc- mælagöngur eða berst á annan hátt fyrir máisfcað kvenna í þess- VAR STIJTUR VIÐ STÝRIÐ? — Er ég undir áhrifum, eða voru vegavinnumennimir sem hér voru að verki fullir? Þaö er ekki nema voniegt að stúlkukind- in standi hugsi þarna á veginum. Stúlkan kom þama akandi í mesta grandaleysi eftir vegar- spotta á milli Petersfieid og Mid- hurst I Hampshire í Englandi er ósköpin urðu á vegi hennar. Skýringin reyndist' vera sú að á þessum hluta vegarins hafði ný maskína á vegum vegagerðarinn- ar verið að gera tilraunir meö enn nýrri aðferð akreiriamerkinga á malbikuðum vegum. Vegagerðarmennirnir höfðu síð ur en svo verið á' kériderfi — og það sem meira er: nýja blandan þeirra hefur reynzt vel á malbik- inu. Sámur frændi44 55 um heimi, leikur hún f kvikmynd- um. Fonda segist leika til að afla sér tekna, en hins vegar harðneit- ar hún að taka við hlutverkum, sem henni sjálfri geðjast ekki að. Og þótt leikurinn sé henni „bara atvinna", þá leggur hún sig alla frarn við þau hlutverk er hún segir játakk við. Nýjasta hlutverk hennar er í glæpamynd er heitir „Kiute“ og leikur hún þar skyndikonu. Þegar Fonda tók það hlutverk að sér, krafðist hún þess að hún sjálf fengi að skrifa lýsingu á hiutverkinu og breyta ýmsum setningum sem hún átti að segja. Það var samþykkt, og leikstjór- inn, Alan Paluia, varð himinlif- andi þegar Fonda sýndi honum sitt fyrsta tillegg til ritlistarinn- ar. Og frumraun Fonda með penn- ann hljómar svo: „Ég er eftirsótt gleðikona, vegna þess að ég ræð fyliilega við þetta starf, hlutverk mitt í lífinu, Ég stend mig vel í starfi. Við- skiptavinir mínir eru oft tauga- óstyrkir og það er ágætt, þannig á það að vera, en hins vegar er ég sjálf ekki taugaóstyrk. Ég kem til þeirra, er um stundarbil bezta leikkona í heimi. Ég segi leikkona, vegna þess að kynlífsathöfnin er leikhús. Mað ur þarf ekki að finna neitt. Mað- ur þarf ekki áð láta sér geðjast að einhverjum, aðeins að teyma karlmennina á eftir sér á hringn- um sem þeir hafa f nefinu f rétta átt. Og á eins stuttum tíma og- mögulegt er, vinnur maður sér inn haug af peningum. Á eftir líður mér stórkostlega vel og kannski hef ég sjálf notið athafnarinnar svolítið". Og eins og við er að búast, er skyndikonuhlutverk Jane Fonda tillag hennar til þjóðfélags ádeilu. Síðan hún skildi við síðasta mann sinn, franska leikstjórann Roger Vadina, býr hún í íbúöar- Jane Fonda sem gleðikonan í „KIute“. Hún skrifaði sjálf texta þann sem hún fer með í myndinni, ^,til þess að fólk skildi betur boðskap hlutverksins.“ „Klute“ er I bland sakamálamynd og þjóðfélagsádeila. vagni, sem hún ferðast með um Bandaríkin þver og endilöng. Með henni er æviniega. dóttir hennar og Vadims, Vanessa að nafni. „Ameríka' er miödepill alls þess sem er gott og miðdepill al'ls sem er vont“, segir Jane Fonda, „ræt- ur mínar eru ekkj þar, og ég er reið vegna þess að trénu var rang lega niður komið“. fyrir 25 dali 06 ÞÚSUND KRÓNA BASEBALL HANZKI Tónlistarmaðurinn Walter Botts fék-k aðeins 25 Bandaríkja- dali árið 1938 fyrir að vera fyrir- mynd að þeirri frægu mynd af „Sámi frænda“, sem æ síðan prýð- ir veggi herkvaðningarskrifstofa í Banda'ríkjunum og reyndar miklu víðar. Botts er orðinn 71 árs og hefur fremur rýrar tekjur. Lengi lifði hann f von um að fá eftirlaun fyrir þann tíma, er hann gegndi herþjónustu í fyrri heimsstyrjöid- inni. Þeirri beiðni hefur nú verið synjað á þeim forsendum að hann hafi gegnt þjónustu 10 dögum of stutt! // Hvildarstólar eru famir að taka á sig allskyns myndir og seljast þannig eins og heitar pylsur á þjóðhátíðardegi. Það er ósennilegt að hérlendis fyrirfinnist nógu miklir áhugamenn um „baseba1l“- íþróttina amerísku, að þeir fæ.ru að festa kaup á hvíldarstól af þvf taginu, sem myndin sýnir. ) Verð stólsins er heldur ekki miðað við kaupgetu réttra og sléttra íslendinga, stóll sem þessi kostar nefnilega sem svarar 136 þús. íslenzkum krónum. Fyrir þann pening þykir okkur jafnvel ósennilegt að landinn mundi kaupa sér hvíldarstólinn sem hef- ur á sér mynd Maós formanns. Aftur á móti væri aldrei að vita nema einhver kynni að hafa hug á að mublera upp hjá sér með sófasetti, sem hefði á sér lögun einhverra hinna vinsælu þing- manna vorra, eins og til að mynda.... Ja, sleppum því. ítalski húsgagnasmiðurinn, sem átti hugmyndina að þessum hvíldarstól, sem hefur lögun „baseball“-hanzka. Sennilega líð- ur ekki á löngu þar til stólarnir, sem almennt tíðkast nú heyri til antikmublum. t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.