Vísir - 15.03.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 15.03.1972, Blaðsíða 1
Sjá nánar íþróttir i opnu 62. árg. — Miðvikudagur 15. marz 1972 — 63. tbl. m Islendingar ekki síður sterkir nú en óður Nitján ára menntskælingur, Gústav Agnarsson, gerði sér litið fyrir i gær og bætti met meistar- ans mikla i lyftingum, óskars Sigurpálssonar, i snörun i þunga- vigt — svo strákarnir i Mennta- skólanum i Reykjavik eru enn sterkari en þeir i Tjarnar- Menntó! — Gústav verður stúdent i vor og er geysilega sterkur og stæltur piltur. En það unnu fleiri góð afrek á Meistaramóti tslands i lyftinum i gærkvöldi. Guðmundur Sigurðs- son náði 11 kg. betri árangri i milliþungavigt, en lágmarksaf- rek alþjóða-ólympiunefndarinnar er. Hann setti þrjú ný tslandsmet og þessi piltur, sem gat ekki jafn- hent 35 kg., þegar hann hóf æfing- ar, sveiflaði nú 180 kg. hátt á loft og 465 kg. samtals. Þeir eru ekki siðursterkir i dag, ungu piltarnir islenzku, en forfeður þeirra i gamla dag, sem léku sér með björg i fanginu. SLYSA GILDRAN í BLESUGRÓFINNI Litill drengur, Haraldur Þór Þórarinsson, 9 ára, lézt I Borgarsjúkrahúsinu á sunnudaginn. Hann var fórn- arlamb slysanna i umferð- inni. Skammt frá heimili hans I Blesugrófinni liggur vegurinn upp i Breiðholt. Þarna ieggja ökumenn það i j vana sinn að aka hratt um, enda þótt talsvert barna- j hverfi sé á báða vegu. — Sjá bls. 2 ZSZS1SZSZSZSZSZSZSZSZSZSZIZS7S1S1SZSZSZS1LS SlSlSISZSZSZIZSZSZSlSZSZSZSZIZSlSZJZIZIZn ASHTON LÉT HNEFANA GANGA t gærkvöidi sáum við hann j David Ashton leikinn af Colin I Campbell i hinum vinsæla ! framhaldsmyndaflokki „Fjölskylda i striði”. Rit- stjóri Billedeblaðsins i j Kaupmannahöfn bauðl Ashton til kvöldverðar ný- iega, þegar hann var i Höfn. j Þetta endaði með kjafts- höggum miklum. ,,Þá skildi j ég fyrst nafnið á þáttunum,” sagði ritstjórinn. — Sjá N(J- siðuna á bls. 12 ZlZSZSZSinSZSZSZSZIZSZSZSZSZJíSZSZSiSZSZS siszizszszszszsiszsziznsiszszsiszsiLszszn HVER Á RÖDDINA? Flestir þekkja röddina, — en i hvernig litur hann út maður- j inn, sem á þessa rödd, sem | hljómað hefur á öldum ljós- vakans I rúm 15 ár. Við [ ræddum I gær við einn þul-1 anna hjá rikisútvarpinu, [ Hann Jóhannes Arason. — t Sjá bls. 17 zszszszszszszszszszszszrzszizszszszszszszs IZIZSZSZSZSZSZSZSZSZSZSZSZSZSZSZSZSZSZSISJ VILDU LOSA MILLANN VIÐ 200 AF MILLJÓNUNUM „Við viljum aðeins losa þennan auðmann við Iitils- j háttar af peningum”, stóð i | bréfi mannræningjanna sem rændu Theo Albrecht. Þeir j vildu fá 200 af milljónunum hans i lausnargjald — Sjá bls. 6 iszszszszszszszszszszizszszszszszizszszszs Happdrœttis- skuldabréfin Komu strax í morgun til að flýta hringveginum Strax í morgun var slangur af fólki aö kaupa miða í Happdrættisláni ríkissjóös. Vísismenn litu inn T L’andsbankann í morgun. Ekki var þó um neina ös að ræöa enda er þetta fyrsti söludagurinn og nýbúiö að opna þegar við rákum inn nefið. Segja má að eftir nokkru sé að slægjast með þvi að festa kaup á happdrættiskuldabréfi. 1 fyrsta lagi er náttúrlega vinningsvonin, en á hverju ári eru dregnir út samtals 255 vinningar. Þar af eru 2 á eina miljón hvor, og verður dregið i fyrsta sinn 15. júni i sumar. Þó fólk verði ekki svo heppið af fá vinning fær það þó bréfin endurgreidd að 10 árum liðnum með verðbótum. Og siðast en ekki sizt leggur það svo fram sinn skerf til að hægt verði að leggja veg og byggja brýr yfir Skeiðarársand. Sú vegagerð mun stytta leiðina milli Reykjavikur og Hafnar um hvorki meira 'né minna en 486 km. Ennþá meira styttist þó leiðin milli Núpsstaðar Sumir völdu sér númer af mikilli vandvirkni Flugslys í nótt við Persaflóa 112 FARAST MED w CARAVELLE FRA STERLING — þrir islenzkir flugmenn vinna hjó félaginu, — en enginn þeirra var í óhöfninni Flugvél frá danska flugfélaginu Sterling Airways fórst i nótt við Persaflóa. Visir hafði símasam- band við skrifstofu Sterling i Kaupmannahöfn i morgun, og var okkur tjáð, að áhöfnin hefði verið algerlega skipuð dönskum flug- mönnum. Þrir islenzkir flugmenn starfa hjá Sterling og eru þeir heilir á húfi. Þetta eru Ottó Tynes, Hall- grimur Jónsson og Sigurður Viggó Kristjánsson. Caravelleflugvélin, sem fórst, hafði 106 farþega og séx manna áhöfn. Flakið fannst i morgun á fjalli, i um 500 metra hæð. Fyrst var talið, að sézt hefði til ein hverra, sem hefðu lifað slysið, en seinustu fréttir hermdu, að þyrlur fyndu ekki neina á lifi. Muskie í sárum Humphrey fékk uppörvun og Skaftafells eöa 1.390 km. Fólki er bent á að gæta miðanna vel, þvi eins og Seðla- bankinn segir: „Týndur miði er glataður, geymdur miði er verð- tryggður”. Og við sáum ungan mann sem eimitt var að búa sig undir að koma miðum fyrir á öruggum stað i veskinu: „Ég keypti tvo miða. Annan handa mér og hinn handa kærustunni. Jú, auðvitað gerði maður þetta svona i og með til að styrkja þessa vegagerð”, sagði Snorri Steinþórsson, „en svo er það Iika vinningsvonin. Svo fær maður miðana alla vega endurgreidda þannig að varla tapar maður miklu á þessu”, sagði Snorri og hafði nú lokið við að koma miðunum fyrir á góðum stað i veskinu. Og stúlkan i bankanum héltáfram að hreiða út miða fyrir viðskiptavini, sem drógu út „rétt númer” með mestu vandvirkni. —SG LÍTIÐ BÝÐUR EBE EBE setur islendingum harða kosti. Bandalagið býður 50% tollalækkun á freðfiski og is- fiski, sem einhverjum mun ekki þykja fráleitt tilboð, miðað við það, að ekki eru tollfriðindi fyrir isfisk i samkomulagi okkar við EFTA, en böggull fylgir skammrifi. EBE setur það sem skilyrði, að tslendingar hætti við útfærslu landhelginnar. Isfiskur er mikilvæg vara fyrir okkur á markaði Efna- hagsbandalagsins, einkum eftir að Bretar verða komnir i bandalagið. Aðalkaupendur is- fisks frá okkur eru Bretar og Vestur-Þjóðverjar, og þá yrðu báðar þjóðirnar i EBE. Freð- fiskur fer hins vegar langmest til Bandarikjanna. EBE hefur einnig tekið mikil- vægustu iðnaðarútflutningsvöru okkar, álið, út út tillögum um tollfrelsi á iðnaðarvörum. Við inngöngu i EP’TA felldu EFTA-rikin strax niður tolla á iðnaðarvörum og freðfiski, sem þau keyptu af okkur. Hins vegar hefur verið sett lágmarksverð á freðfisk i Bretlandi, sem þó hefur litið bagað islenzka fisk- útflytjendur. EBE hefur i tilboði sinu ekki viljað fella alveg niður tolla á freðfiski héðan, og hafa Islendingar látið i ljós óánægju með það. tslendingar flytja að sjálf- sögðu helzt fisk til þessara landa sem annarra, en við flytjum inn þaðan aðallega iðnaðarvörur. Tollfriðindi beggja vegna á iðnaðarvörum væri þvi meiri hagur EBE en okkar. Islendingar vilja i viðskipta- samningi við EBE fá fram sömu samninga um tollfrelsi i aðal- atriðum og gerðir voru við EFTA. Þetta mál er hins vegar strandað, meðan EBE stendur á þvi, að útfærsla landhelginnar útiloki viðskiptasamninga. —HH.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.