Vísir - 29.03.1973, Blaðsíða 1
63. árg,— Fimmtudagur 29. marz 1973. — 75. tbl.
Flugvélin fórst vegna ísingar
Eins og málin standa núna er
vart um aöra skýringu á slysinu
aö ræöa en aö flugvélin hafi misst
flugiö vegna Isingar, sagöi Sig-
uröur Jónsson, forstööumaöur
Loftferöaeftirlitsins i viötali viö
VIsi i morgun um rannsókn á
flugslysinu i fyrradag, þegar
TF-VOR, flugvél Björns Páls-
sonar fórst meö fimm mönnum I
Búrfjöllum. —
Það er hreint alveg ótrúlegt,
hve ising getur setzt fljótt á flug-
vélar og getur verið erfitt að verj-
ast þvi, einnig i flugvélum, sem
eru útbúnar isingarvarnar-
tækjum, sem TF-VOR var ekki,
segir Sigurður. — Það, sem gerist
er, að isingin hleðst upp framan á
vængnum og breytir lagi hans.
Við það breytast lyftieiginleikar
vængsins og flugvélin missir
flugið, ofreisir sig oft og fellur
þannig niður.
Við könnun á flakinu kom i ljós,
að talsverð ising var enn á vængj-
unum og á stélfleti. Vélin virðist
hafa fallið beint niður i ofreistri
stöðu. Mennirnir i vélinni hafa
látizt samstundis. —VJ
Enn ferst Eyjabátur
Var að sökkva, þegar Vísir fór í prentun.
Það á ekki af Vest- abáturinn Frigg VE 316
mannaeyingum að
ganga. Þegar Visir var
að fara i prentun i morg-
un, var Vestmannaeyj-
að sökkva út af Grinda-
vik, eftir að báturinn
fékk á sig brot i morgun,
en þá var vitlaust veður
Fékk á sig brotsjó. Mannbjörg
á þessum slóðum. — almennt frá áramótum,
Þetta er þriðji eða fjórði sem ferst. í gær strand-
Vestmannaeyjabátur- aði Vestmannaeyja-
inn, sem ferst á þessum bátur við Stokkseyri.
vetri, 17. báturinn Hann er talinn ónýtur.
„Lótum kuldann ekkert ó okkur fa”
— segir peysufatafólkið úr Verzlunarskólanum
Verziunarskólanemar hressa
án efa upp á gráan og hvers-
dagslegan bæinn I dag. t peysu-
fötum og kjólfötum meö pipu-
hatta hyggjast þau arka um bæ-
inn þveran og endilangan og
kyrja söngva hvar svo sem
þeim helzt dettur til hugar.
Bæjarbúar ættu þvi að vera
við öllu búnir og láta sér ekki
bregða þó aö þessum stóra og
skrautlega hóp bregöi öðru
hverju fyrir.
Þaö er fjórði bekkur Verzlun-
arskólans sem nú heldur peysu-
fatadag sinn, en þetta er ár-
gangur sem útskrifast I vor.
Klukkan sex i morgun safnaðist
allur hópurinn saman I morgun-
mat á ýmsum heimilum i borg-
inni, þvi ekki veitir af að búa sig
vel undir erfiðan dag i frosti og
kulda.
I Blóm og ávextir fengu þau
rós i hnappagatið og þar smellti
ljósmyndarinn af þessari mynd,
af þriburasystrunurh Ingu,
Margréti óg Astu Björnsdætr-
um. Ekki vissum við til þess að i
hópnum væru fleiri þriburar eða
tviburar, en þær sögðust engan
herrann leiða. Enda er kven-
fólkiö I meirihluta i þessum ár-
gangi.
En þó að vindurinn næði I
gegnum merg og bein, þá sögö-
ust þær staðráðnar I þvi að hafa
daginn góðan, þvi að eftir
nokkra daga hefst svo próf-
lesturinn og þá prófin. — Eá
„EKKERT
AFMÆLIS-
HÁTÍÐAR-
BLAÐUR"
— segir Ingvi
Þorsteinsson
magister um
landgrœðsluna.
- Sjó bls. 2
•
Hraun ógnar
stöðugt fiskiðju-
verunum
— Sjó baksíðu
Spónar-
deilan
leyst
— en gjaldeyris-
yfirvöld munu þó
eiga siðasta orðið
Samkomulag hefur náöst
um lendingarleyfi og deila
tslands og Spánar ieyst. Mun
samkomulagiö vera rúmt og
fela I sér, aö Islenzkar flug-
vélar hafi lendingarréttindi á
Spáni og spænskar á tslandi.
Deilan reis út af þvi, aö
ferðaskrifstofan Sunna tók á
leigu spænskar flugvélar, sem
fengu ekki lendingarleyfi hér,
og vildu Spánverjar þá ekki
leyfa Flugfélagi íslands lend-
ingarréttindi á spænskri
grund. Hins vegar verður það
komið undir ákvöröun gjald-
eyrisyfirvalda hér, að hve
miklu leyti leyfi verða gefin
fyrir slikt leiguflug.
Þótt lendingarleyfi verði nú
veitt gagnkvæmt, þarf við-
komandi islenzkur aðili,
Sunna eða aðrir, að fá leyfi
gjaldeyrisyfirvalda fyrir
notkun gjaldeyris til að greiöa
leigöar flugv.'Gjaldeyrisyfir-
völd hafa auglýst i fjölmiðlum
og óskað eftir umsóknum
fyrir 1. april frá þeim
islenzkum aðilum, sem hafa
áhuga á að taka flugvélar á
leigu.
Hins vegar mun samkomu-
lag efnahags- og framfara-
stofnunarinnar OECD til-
greina, að veita skuli gjald-
eyrisleyfi fyrir leiguflugi án
mikilla takmarkana.
íslenzk stjórnvöld vilja, aö
islenzkar flugvélar gangi
fyrir, þegar um flug á vegum
islenzkra aðila ræðir. Er þess
vegna auglýst eftir um-
sóknum, að timi gefist til að
kanna, hvaða Islenzkir far-
kostir koma til greina.
—HH
Það var I nótt, að Frigg VE fékk
á sig brotút af Grindavik. Við það
kom mikill leki að bátnum. Skip-
verjar fengu ekki við lekann ráð-
ið. Bátarnir Sigurður Gisli frá
Vestmannaeyjum og Guðbjörg
frá Hafnarfirði voru staddir
þarna nálægt og komu til að-
stoðar. A tiunda timanum fóru
skipverjar Friggjar 5 talsins frá
borði meö gúmmibát yfir i Sigurð
Gisla, en þá var báturinn orðinn
mjög þungur i sjónum og óviðráð-
anlegur. Skipverjum hafði þá
m.a. tekizt aö halda vélinni gang-
andi i heilan klukkutima, eftir að
hún var komin á kaf I sjó. Engir
erfiðleikar voru við björgun
mannanna. A kveöið var að reyna
aö bjarga bátnum. Sigurður Gisli
andæfði þvi hjá Frigg i morgun,
en varöskip var þá á leiðinni til að
kanna, hvort unnt væri að draga
skipið inn. Það var þó talið mjög
vonlitiö.
Frigg var á leiöinni inn til
Grindavikur i nótt, þegar hún
fékk á sig brot. Báturinn varð að
snúa viö frá þvi að sigla inn, þar
sem komið var foráttubrim við
innsiglinguna og var aöeins á færi
mjög kunnugra að komast þar
inn. Rok var að sunnan og suð-
austan og mikill sjór.
Auk Guðbjargar og Sigurðar
Gisla ætlaði Stigandi frá ólafsvik
að koma Frigg til hjálpar. Þá
vildi ekki betur til en svo, að
skipið fékk drauganet i skrúfuna
og varð varðskip að koma Stig-
anda til hjálpar og taka hann I
slef.
Frigg er 50 lesta eikarbátur,
smiðaður I Danmörku 1948.
— VJ
Kom fram
eftir að leit
var hafin
Viö erum orönir mjög viö-
búnir verstu tföindum á þessum
einstaka óhappavetri. Viö erum
þvi ekki aö biöa eftir neinu,
sagöi Hannes Hafstein hjá
Slysavarnafélaginu I viötali viö
Vísi I morgun, en hann var þá
búinn aö setja leit af staö aö
Öldunni frá Neskaupstaö, 14
tonna bát meö tveimur mönn-
um, þegar báturinn kom fram á
Raufarhöfn. Arni Friöriksson
og varöskip höföu þegar hafiö
leitina og flugvél var aö fara I
loftiö.
Hann spáöi snarvitlausu veðri
og þvi ekki eftir neinu að biða,
sagði Hannes. Báturinn kom
ekki fram I tilkynningarskyld-
unni. Hann svaraði ekki, þegar
auglýst var eftir honum, og
fannst ekki á neinni höfn-
inni, þar sem spurzt var eftir
honum. Þegar báturinn kom
fram á Raufárhöfn I morgun,
kom I ljós, að hann var með
bilaða sendistöð. Hann hafði
heyrt, að auglýst vareftir honum
og sigldi þvi inn til Raufar-
hafnar til að láta vita af sér.
Gert verður við sendistöðina
áður en hann heldur áfram. —
VJ