Vísir - 10.06.1974, Blaðsíða 3

Vísir - 10.06.1974, Blaðsíða 3
Vlsir. Mánudagur 10. júnl 1974 3 „Líklega hœfileikamesta popphljómsveit veraldar" — segir hið virto tónlistarblað „Cosh Bex" um Procul Harum, sem koma hingað í dag „Sannleikurinn er sá, að Procul Harum er llklega hæf- asta popp-hijómsveit veraldar i dag.” Þannig kemst hljóm- plötugagnrýnandi að orði I nýj- asta tölublaða bandariska tón- listarblaðsins „Cash Box”, en það blað nýtur mestrar virðing- ar þeirra blaða, sem fjalla um dægurtónlist. Eru það jafnan vinsældalistar þess blaðs, sem birtir eru I evrópskum blöðum, þegar gera skal grein fyrir toppnum i Ameriku. Það er ekki amalegt fyrir is- lenzka popp-unnendur að fá slika snillinga hingað til lands á meðan þeir eru svona hátt skrifaðir erlendis. Procul Harum hafa annars átt tryggan áðdáendahóp á íslandi frá þvi þeir sendu frá sér á plötum lögin „A Whiter Shade Of Pale” og „Hamburg”, sem sátu hér á vinsældalistum útvarpsins i nokkra mánuði. Sami söngvari er ennþá með hljómsveitinni, Gary Brooker, sem hefur veriö aðalsprauta Procul Harum frá upphafi. „Músíklega séð er Procul Harum athyglisverðasta hljóm- sveitin, sem hingað hefur komið til þessa,” sagði popparinn Jó- hann G. Jóhannsson, er Visir leitaði umsagnarhans um þessa brezku hljómsveit. Og Magnús Sigmundsson (Magnús og Jóhann) var sömu- leiðis tilbúinn til að lýsa áliti sinu á hljómsveitinni: „Ég dáð- ist mjög að Procul Harum, þeg- ar þeir komu með „Hamburg” og „Shade Of Pale”, en ég var að hlusta á nýjustu plötuna þeirra fyrir nokkrum dögum og komst þá að 'raun um, að hljómsveitin er orðin margfalt betri. Procul Harum spila nú allt frá poppi til háþróaðrar tón- listar á klassiska sviðinu. Þetta er hljómsveit, sem mig langar meira til að sjá á sviði en t.d. Slade,” sagði Jóhann. Og Ámundi Amundason, sem flytur hljómsveitina til landsins, segir: „Procul Harum eru það bezta, sem hægt var að fá hing- að. Ég lagði allan minn metnað i að fá virkilega góða og virta hljómsveit hingað. Ef Procul Harum gera það ekki gott — ef fólk vill ekki hlusta á það bezta, sem til er i Bretlandi i dag — þá geri ég ekki meira af þessu tagi.” Procul Harum koma til lands- ins i dag ásamt tólf manna að- stoðarsveit, en fyrstu hljóm- leikar þeirra verða i Háskóla- biói annað kvöld. — ÞJM. USTAVíRK, SEM GENGIÐ ER I GEGNUM — Áhorfendur eru hluti af þessu nýstórlega verki Listaverkið, sem sýnt er i dag og næstu viku i Asmundarsal, er allnýstárlegt. Nýstárlegt að þvi leyti, að áhorfendurnir ganga i gegnum það og eru sjálfir hluti verksins. Þetta er samverk fimm nemenda úr Myndlista- og handiðaskólanum, byggt úr tré- uppistöðum. Aföst er svo stál- grind með hænsnaneti, sem að lokum er þakið gifsmottum. Verkið er svo innréttað i viðeig- andi dúr með ljósmyndum, skuggamyndum, málverkum, aðskotahlutum og tónlist. Þau nefna verkið sitt „Firring”. Nafnið á að höföa til mannsins, sem fjarlægist upp- runa sinn. Verkið tilheyrir svonefndri umhverfislist, sem er lltt þekkt hér á landi, og með þvi vilja fimmmenningarnir sýna „firringuna” i mannfélaginu. — JB. Ásatrúarfélagið varar við því, að „manndróp" verði lögleidd — „mótmœltum fóstureyðingum óður en biskup og flestir aðrir fóru af stað með mótmœli sín," segja Ásatrúarmenn Fleiri ferðast ó far- fuglavísu „Það er greinilega að aukast, að fóik leiti sér ódýrrar gistingar erlendis,” sögðu farfuglarnir hjá farfugladeildinni i Reykjavik, er við töluðum við þá i gær. „Alla vega er meira um það nú, að fólk gangi i hin alþjóðlegu far- fuglasamtök og öðlist þannig rétt til ódýrrar gistingar viða um heim. Þetta er aðallega ungt fólk, en einnig er allnokkuð um fólk upp i 40 ára, og jafnvel gerast heilu fjölskyldurnar félagar. Félagar hafa rétt á ódýrri gist- ingu á farfuglaheimilum viða um heim, borga 2-300 krónur fyrir nóttina og dveljast i glaðværum og skemmtilegum hóp. Aðsóknin að farfuglaheimilinu hér i Reykjavik hefur verið óvenjumikil I vor, og nú er nær fullskipað i þau 50 rúm, sem við höfum. Það er hópur sænskra skólakrakka, sem tekur upp mest plássið i augnablikinu, en annars ber mest á Bandarikjamönnum, Norðmönnum, Kanadamönnum og Svisslendingum og svo Þjóð- verjum og Englendingum, þegar liða tekur á vorið. Stundum fáum við lika Japani og jafnvel Ind- verja. Oftast eru þetta stúdentar á ferðalagi, en nokkrir koma lika i atvinnuleit.” —JB— DÝR HÚSGÖGN, EN í SER- FLOKKI „Nú er meiningin að byrja að framleiða húsgögn til útflutnings af fullum krafti. Að vlsu hefur litillega verið flutt út af húsgögn- um, en þvi hefur ekki verið fylgt nægilega vel eftir.”. Þetta sagði Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri hins nýstofn- aða fyrirtækis, Útflutningssam- taka húsgagnaframleiðenda, sem að standa 13 framleiðendur. 1 tilefni af þessu mun koma hingað á næstunni Finni, sem er framkvæmdastjóri svipaðra samtaka. Er hann jafnframt sölustjóri hjá Asko, sem er stærsti húsgagnaframleiðandi á Norðurlöndum. „Það kom fljótlega I ljós, að þar sem við þurfum að flytja inn allt hráefni og við það bætast há vinnulaun og hár flutnings- kostnaður, hlyti varan að verða dýr. Við verðum því að selja dýra vöru. Vegna þessa verður að leggja sérstaka áherzlu á hönnun húsgagnanna til þess að þau kom- ist alveg i sérflokk aí gerð og gæðum. Við fengum þvi i lið með okkur 5 húsgagnaarkitekta, sem munu starfa saman i hóp og i ná- inni samvinnu viö framleiðend- ur”. Hilmar sagði okkur, að undir- búning stofnunar fyrirtækisins heföi annast Útflutningsmiðstöð iðnaðarins i samvinnu við Iðn- þróunarsjóð og þá, sem eitthvað hefðu fengizt við útflutning. 1 stjórn eru Hjalti Geir Kristjánsson, frá Kristjáni Sig- geirssyni, formaður, Ásgeir Guð- mundsson, frá A. Guðmyndssyni, varaformaður, og Helgi Halldórs- son frá Stáliðjunni, ritari. —EVI— „Stjórnmálaflokkur sá, sem nefndur er Lýðræðisflokkurinn i Reykjavik, er Asatrúarfélaginu algerlega óviðkomandi, svo og allir aðrir starfandi stjórnmála- flokkar á landi hér. Sjálft tekur félagið ekki afstöðu til stjórn- málaflokka,” segir I samþykkt frá nýafstöðnum aðalfundi Asa- trúarfélagsins, en hann var hald- inn að Draghálsi i Svinadal. Félagið lætur hins vegar ýmis önnur mál sig nokkru skipta, eins og fram kemur i samþykkt aðal- fundarins. Mörgum bregður i brún, þegar Ásatrúarfélagar vara við þvi, „að lögleidd séu að nýju manndráp á íslandi undir nafninu fóstureyðingar”, eins og segir orðrétt i samþykkt félags- ins. Menn hafa jú viljað kenna fylgjendur Ásatrúar við mann- fórnir — þó að þeir vilji sjálfir halda þvi fram, að slikt sé til- hæfulaust. „Við erum aðeins að itreka fyrri mótmæli okkar varðandi fóstureyðingarlöggjöfina,” sagði Þorsteinn Guðjónsson, einn Asa- trúarmanna, i viðtali við Visi. „Það var á aðalfundi okkar i árs- byrjun 1973, sem goði okkar mælti á móti fóstureyðingum. Var það áður en biskup og fleiri aðilar fóru af stað með sin mótmæli.” Á aðalfundi Asatrúarfélagsins nú á dögunum var samþykkt að vara við hættunni af notkun eitur- lyfja. „Mælir fundurinn með ströngum refsingum við þá, sem slikum efnum dreifa. Einkum þegar það á sér stað meðal æsku- lýös,” segir Þorsteinn. „Hvetur félagið til almennrar árverkni gagnvart þeim, sem slika iðju stunda.” „Þá vilja Asatrúarmenn loks beina þvi til landsmanna, að þeir taki þátt i þjóðhátið til minningar ellefu hundruð ára byggðar i landinu og minnist þá hinna fornu guða og vætta, sem tryggt hafa þjóðinni búsetu i landinu um ell- efu alda skeið.” —ÞJM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.