Vísir - 13.02.1975, Blaðsíða 16

Vísir - 13.02.1975, Blaðsíða 16
vism Fimmtudagur 13. febrúar 1975 500 krónur kosta 850! Núna kostar 500 krónurnar 850 krónur. Merkileg tiöindi miöað við sföustu fréttir af falli krón- unnar, en sönn saga engu aö síö- ur. Er hér átt viö silfurmyntina, sem Seölabankinn gaf út á þjóö- hátíöarárinu. Þá var einnig gefin Ut 1000 króna slátta, sem nú er seld hjá myntsölum fyrir 1500 krónur. SU mynt er einnig Ur silfri. Þessir peningar voru seldir stakir á nafnvirði í Seðlabankan- um, en eru nU uppseldir. Aftur á móti er ennþá eitthvað til af sér- unnum settum, þar sem eru 500 og 1000 króna slátturUr gulli sam- an I öskju og seldar eru á 4000 krónur. A meöan silfurpeningarnir, sem áöur eru nefndir, voru enn fáanlegir i Seðlabankanum, voru þeir notaðir viða sem skiptimynt I verzlunum. Úr þvi mun hafa dregiö strax og fréttist, að myntin væri uppseld og orðin safngripur. Þó mun það koma fyrir, að ein- staka „hlUnkur” Ur þessari sláttu komi i kassa verzlana enn i dag. Er nokkuð trúlegra en að 500 krónu mynt verði farin að hringla I vösum fólks i nánustu framtíð? —ÞJM Farið til út- landa hœkkar um 10-12 þús. Flugfar frá tslandi til Kaup- mannahafnar verður eftir gengisbreytinguna sem næst kr. 49.219, en var kr. 39.034. Að vlsu hefur ný gjaldskrá ekki verið reiknuð Ut, en fargjöld milli landa eru bundin ýmist við dollara eða sterlingspund, og fram hefur komið, að doll- arinn kostar nU 149,60 kr. Ferðin til London kostar nU kr. 43.384, en var áður kr. 34.426. t báðum þessum tilfell- um er gengið Ut frá „normal” fargjaldi. Fargjaldið til New York kostaði i gær kr. 48.194, en verður kr. 60.738,- —SH Bensínlítrinn hœkkar um 6 kr. Benslniö hækkar vegna gengisbreytingarinnar um 6 krónur litrinn, og verður þá 57 krónur hver litri. Gasolia hækkar um 4 krónur hver lltri, og veröur þá til húsahitunar kr. 20,70, en til eldsneytis á bíla kr. 25,80. Vilhjálmur Jónsson, for- stjóri Ollufélagsins, sagði Visi I morgun, að hækkun þessi kæmi til framkvæmda, þegar verðlagsráð heföi samþykkt hana. Má trúlegt telja, aö þess verði ekki langt að biða. Sé heildarsölu á benstni á Stór-Reykjavikursvæðinu jafnað niður á daga ársins, lætur nærri, að 137-þUsund litr- ar séu seldir þar á dag, þótt vitanlega sé selt drjUgum meira yfir sumarið en á vet- urna. Bileigendum á þessu svæði áskotnast þá um 800 þUsund fyrir hvern dag, sem dregst að hækkunin komi til framkvæmda, ef gengið er Ut frá meðaltalinu. —SH Gengislœkkunin rœdd ó Alþingi í gœrkvöldi Kjör sjómanna bœtt Viö getum ekki vænzt þess, aö veröbólgan náist I ár niöur I þaö, sem gerist I grannrikjunum, sagöi Geir Hallgrlmsson forsæt- isráöherra iumræöum á Alþingi I gærkvöldi. Full atvinna er meginmáliö og nauösyn þess aö tryggja stööu þjóöarbúsins út á viö. Gengislækkunin mun, þeg- ar til lengdar lætur, verða far- sælasta lausnin, sagöi ráðherra, en stjórnarandstaöan sagöi, aö hún væri aðeins undanfari ann- arra aðgeröa. Hún nægöi ekki. Gylfi Þ. Gislason (A) sagði, að þessi lausn væri hvorki fugl né fiskur. Eitthvað meira væri i vændum. Gengisfellingin væri „upphaf keðju af efnahagsráð- stöfunum”. LUðvik Jósepsson (Ab) mætli með 3—4% lækkun vaxta og tekjuaukningu til Utgerðar með ýmsum lækkunum á greiöslum, sem eru af fiskverði til vátrygg- inga-, oliu- og stofnfjársjóða. RikisUtgjöld ætti að skera niður um 1500—2000 milljónir. Gengis- lækkun ætti að vera litil. Karvel Pálmason (Samtökunum) vildi fara niðurfærsluleiðina, skera niður verðlag og kaup yfir vissu marki. Forsætisráðherra sagði, að siðar mundi ákveðið, hvernig gengishagnaði yrði ráðstafað, en 75 milljónir yrðu lagðar til hliðar af honum og rynnu til lif- eyrissjóðs sjómanna. Við hækk- un fiskverðs fengju sjómenn bættan hag, og væri það gert til aö tryggja, að tekjur þeirra stæðust eðlilegan samanburð við tekjur annarra, og auka sjó- sókn. Þetta mætti ekki lita á Verðbólgan verður ófram meiri en í grann- ríkjunum — Full atvinna aðalmarkmiðið — Upphaf keðju efnahagsróðstafana? — Pétur Sigurðsson gagnrýnir gengisfellinguna — Hjólpaði rœða Ólafs fjórplógsmönnum? sem fordæmi fyrir almennum kjarabótum. Ráðherrann sagði, að Utgjaldafyrirætlanir stefndu langt umfram þjóðartekjur og halli á greiðslujöfnuði yrði 15—17 milljarðar, ef ekki væri aö gert. A móti þessum halla væri talið, að um 9 milljarðar fengjust með lánum erlendis til framkvæmda en afganginn yrði að fá með 'öðrum hætti. Greiðslubyrðin yrði 14% i ár og mundi aukast næstu árin, þegar vextir og afborganir ykjust af erlendum lánum, sem tekin hafa verið að undanförnu. Ráð- herra sagði, að finna þyrfti hag- kvæmara fyrirkomulag en nú er til að standa undir hækkuðum trygginga- og oliukostnaði og erlendum verðhækkunum Ut- gerðarinnar. 1% hækkun sölu- skatts vegna Noröfjarðar? Gylfi Þ. Gislason sagði, að rætt væri um 1% hækkun sölu- skatts til að standa undir upp- byggingu á Norðfirði eftir snjó- flóðin. Hann varaði við þessu. MagnUs Kjartansson (Ab) sagði, að ólafur Jóhannesson hefði með yfirlýsingum sinum i janUar gefið „fjárplógsmönnum færi á að græða og tryggja sig gegn aðgerðunum. Forsætisráðherra sagði, að lánstraust þjóðarinnar færi þverrandi. Sparnaður væri nauðsyn, og beina þyrfti inn- lendum sparnaði i rikari mæli til atvinnuveganna, til dæmis með þvi að tryggja, að fé lifeyr- issjóða færi þangað i vaxandi mæli. Pétur Sigurðsson gagnrýndi gengis- fellinguna „Þvi miður hefur enn veriö gripið til gengisfellingar”, sagði Pétur Sigurösson (S). Hann kvaðst þó viðurkenna, að þessa leið hefði þurft að fara að nokkru. Hann varaði við hækk- un söluskatts vegna Norðfjarö- ar og spurði, hvers vegna skyldusparnaður væri ekki tek- inn upp. Þá fór hann hörðum orðum um flokksbróður sinn, Sverri Hermannsson, sem er Ut- geröarmaður, og sagði, að Ut- gerðarmenn væru ekki „heilag- ar kýr frekar en islenzk bænda- stétt”. „Og hafðu það, Sverrir Hermannsson”, sagði Pétur. —HH „Frú forseti” hlýöir á boðskap forsætisráöherra „Þetta verður farsælasta lausnin”, sagði forsætisráð- herra, sem hér sést flytja ræðu sina á Alþingi I gærkvöldi. Um- ræður stóðu nokkuð fram yfir miönætti. 1 baksýn er „frU for- seti” eins og forsætisráðherra ávarpaði Ragnhildi Helgadótt- ur, sem var i forsetastóli. Stjórnarandstaðan sagði, að gengisfellingin væri upphafið að keðju af efnahagsráðstöfunum. Umdeildasta listsýningin: JAKOB HENGIR UPP A meöan enn er þjarkaö um, hvaöa mælistika skuli notuö viö aö ákveöa þaö, hverjir skuli fá aö sýna á Kjarvalsstööum og hverjir ekki, hengir Jakob Haf- stein forstjóri Sólnaprents upp myndir sínar I sýningarsal staö- arins og lætur deilurnar sig engu skipta. Hér er hann kom- inn úr jakkanum og er önnum kafinn viö að koma upp mynd- um sfnum. „Á þessi mynd kannski betur heima á veggnum þarna?” Og þá var að prófa það. Sýningin veröur opnuö næst- komandi laugardag, og má gera ráö fyrir sæmilegustu aðsókn eftir þá geysilegu auglýsingu, sem hún hefur fengiö. —ÞJM/Ljósm: Bragi. „STANZLAUS TRAFFÍK" — heimilistœki rifin út og fólk jafnvel mœtt klukkan 9 Þaö er mikið um aö vera í verzlunum þessa dagana. Heimilistæki eru rifin út/ en ekki er sömu sögu um matvæli að segja. Þar er fólk orðið þreytt á að eltast við verðbreytingarnar. „Það er eins og fólk hafi fund- ið þetta á sér. Traffikin byrjaði fyrir svona 10 dögum siðan”, var okkur tjáð, þegar viö litum inn I verzlunina Orku á Lauga- vegi. Mikið er hringt i verzlun- ina og forvitnazt um verð. 1 gærmorgun var fólk mætt strax klukkan 9 og klukkan fimmtán minútur yfir 9 var búið að selja tvo þurrkara. Og fólk hikar ekki við að leggja fimmtiu þúsund krónur eöa meira á borðið fyrir heimilistækin. Þeir i Orku sögðu, að liklega heföi verið hægt að selja þær vörur þrisvar, sem nú hafa ver- ið afgreiddar. I Byggingavöruverzlun SIS var okkur tjáð að stanzlaus traffik væri i verzlunina. Þar eru það hreinlætistæki sem fólk kaupir. Fólk virðist hafa tekið við sér i fyrradag, eftir þvi sem þeir sögðu i verzluninni, en all- an þann dag og svo i gær var geysilega mikið aö gera og sim- inn hringdi lika mikið. Við litum inn i Vogaver, en þar var okkur sagt að fólk væri ekkert byrjað að hamstra mat- væli og engin breyting hefði orð- iö á viðskiptum. „Fólk er senni- lega orðið þreytt á að eltast við verðbreytingarnar”, sagði af- greiðslumaðurinn sem við ræddum við. —EA Stanzlaus erill var I Bygginga- vöruverzlun SÍS I gær og fyrra- dag, og var fólk þá aðallega aö kaupa hreinlætistæki. Bragi tók þessa mynd þar I gær. (Ljósm. Vísis BG)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.