Vísir - 20.02.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 20.02.1975, Blaðsíða 7
Vísir. Fimmtudagur 2«. febrúar 1975. 7 cTMenningarmál Opinberun Jokobs Jakob Hafstein: Nr. 79: Gæsir á beit. Þá er hafin Jakobs sýning Hafsteins, um- deildasta sýning bæj- arins i áratugi. Hefur listamaðurinn lýst yfir umburðarlyndi sinu og góðvilja til allra og þakkaö öllum æsinga- mönnum fyrir auglýs- inguna. Jakobi virðist hafa legið mikið á hjarta undanfarin tvö sumur, þvi hann sýnir hér hvorki meira né minna en 147 verk og ekki siðan Van Gogh leið hefur listamaður þurft svo mikla útrás. Um hvað var svo þetta fjaðra- fok, hlýtur fólk að spyrja sjálft sig eftir að hafa skoðað allan þennan fjölda sakleysislegra oliu, vatnslita og kritarmynda. Var það vegna þess að Jakob átti sér svo marga sjálfskipaða menningarsnobbara fyrir and- stæðinga, eða vegna pólitikur, — eða var þetta i raun vegna þess að Jakob er slæmur mál- ari? Málið kom upp vegna hins sið- astnefnda. Sýningarráð hóf taflið með þvi að neita Jakobi um sýningarhúsnæði vegna skorts á undirstöðu i listsköpun, án þess að hafa minnsta áhuga á þvi hvar i flokki Jakob stóð eða hvort hann hefði sungið i MA kvartettnum. Meirihluti borg- arráðs ásamt stærsta dagblaði landsins sáu hinsvegar strax pólitiska hlið á þessu máli, og mikil skothrið var hafin að sýningarráði og listamönnum yfirleitt. Allir þeir draugar sem taldir eru fylgja listamönnum eru vaktir upp, þ.á m. „letingj- ar” og „kommúnistar”, en slikar tuggur hafa oft gefist vel þegar mikið hefur legið við. 1 stað þess að verja list Jakobs gripu borgarráðsmenn og aðrir áhugamenri til þess tvieggjaða bragðs að segja að enginn mæli- kvarði væri i raun til um listir. Sem sagt, við erum á miklum hættuslóðum sem ætl- um að voga okkur að fjalla um Jakob sem málara. Nú skal það samt reynt, án alls pólitisks ivafs og ráða menn hvort þeir halda áfram lestrinum. Málari i lifriki Jakob á nær einvörðungu við landslag, dýrð þess, fugla þess og annað lifriki, með einstaka þorpi innanum. Hann hefur gott auga fyrir þvi sem telst vera hugnæmt myndrænt verkefni i landslagi og hann notar sterka „expressjóniska” liti til að korna þvi til skila á striga. Siðan hefst málunin. MYNDLIST eftir Aðalstein Ingólfsson Fjöll eru flest eins i laginu og á litinn, þannig hlýtur að mega nota sterka útlinu og sömu sterku litina á þau öll. Sterk- grænt hlýtur að vera gott og gilt fyrir allan þann gróður sem i kringum þau er. Siðan er það himinninn. Ský skipta ei höfuð- máli, enda óttalegt nostur og timasóun að mála þau. En himinninn er allavega blár, eigum við að segja skærblár, og siðanmá breyta litnum litillega, til tilbreytingar. Ar og lækir eru hvitblá, það sér hver maður, og sami liturinn hlýtur að duga á þá. Svo vantar eitthvað til að lifga upp á landslágið, helzt fugla, en hestar myndu duga. Vandinn við að mála fugla er sá að þeir eru aldrei kyrrir, þannig að ómögulegt er að teikna þá i ró og næði Sennilega er fljót- legra að nota bara Fuglabókina. Allar myndir Jakobs sýna sama skortinn á næmni fyrir öllu sem lifandi er i landslagi, margbreytileika þess, hvernig það breytist eftir veðri og vindum. 011 eru málverkin máluð með sama þunghenta mátanum, i sama linnulausa, skæra tónstiganum og enginn munur er gerður á þvi hvort um forgrunn, miðgrunn eða bakgrunn er að ræða. Allt er jafn framarlega i myndinni. Fjöll hanga ónotalega yfir hús- um, en ekki á bak við þau, ár og vötn eru ekki á iöi heldur liggja eins og þungir klaufalega teiknaðir sekkir á miðri mynd og virðast geta dottið út úr henni i heilu lagi. Hér skortir grunnþekkingu á þvi hvernig hlutir liggja i rúmi. Það er ekki nóg, eins og Jakob gerir, að gera hluti minni eða stærri eftir þvi hvar þeir eru i myndinni, heldur verður jafnframt að tengja þá með einum littón yfir alla myndina þ.e. andrúmslofti. Litir Jakobs liggja ósamræmdir og skerandi um allan flötinn, — en þetta er nokkuð sem nokkrir mánuðir i fyrsta bekk myndlistaskóla gætu lagfært. En teikningu Jakobs held ég að verði vart bjargað. Helst eru það blessaðir fuglarnir sem liða fyrir hana, og er ég viss um að sjaldan hafa þeir farið eins illa út úr málverkasýningu. Engin tilraun hefur verið gerð til að sýna hvernig lifandi fugl litur út, heldur virðist einhverskonar ,,standard”-fugl hafi verið klipptur út úr blaði til notkunar eftir hentugleikum. Er hann algjörlega flatur að sjá, og hefur hvorki þyngd, né megnar að varpa skugga. útlinur þeirra eru óljósar og fálmkenndar og erfiðis-atriði eins og nef og fætur fá snögga afgreiðslu. Ekki sést ýfð fjöður, eða fjöður yfirleitt. Fuglunum er stillt upp eins og uppstoppuðum eða á háu „rigor mortis” stigi. Hestar fá sömuleiðis að kenna á þvi. Og bátar. Og fólk. Það er mikill léttir að geta hlaupið yfir i Kjarvalssal og skoðað þar „Fugl” (nr. 73) meistarans. Myndlist og menning- arpólitik En á sýningu Jakobs hefur al- menningur streymt og mun streyma, allsendis óhræddur við harðstjórn allra menningarvita. Enginn skal ætla sér að segja ÞEIM hvað sé list og ekki list. í þeirri afstöðu sinni er fjöldi manna studdur af borgarráði ásamt ofangreindu dagblaði sem lagt hefur áherslu á furðulega „filistinska” menningarpólitik að undan- förnu. Þetta er það hryggilega við þetta Jakobsmál. Reynt hefur verið að grafa undan öllu þvi sem nefnist mat eða kröfur i listum. Allir eru jafnhæfir til að dæma um það sé list og fólki er talin trú um að listamenn séu eina stéttin i þessu þjóðfélagi sem ekki hafi hundsvit á eigin starfi. ÞÚSUND ÞJALA SMIÐUR í Norræna húsinu stendur yfir minning- arsýning á gullsmiði, málverkum og teikn- ingum Baldvins Björnssonar, en hann lést 1945. Að sýningunni standa ættingjar hans og vildarmenn og myndarlega sýningar- skrá hefur hannað barnabarn Baldvins, Gisli B. Björnsson, auglýsingateiknari og skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans. Baldvin mun hafa verið hlé- drægur maður hvað snerti mál- verk sin og málað i fristundum, en stungið svo verkum sinum til hliðar. Lifibrauð hans var gull- smiði, en þá iðn stundaði hann i Berlin frá 1902—1915 og gat sér þar gott orð. En Baldvin var langt frá þvi að vera einangrað- ur gullsmiður sem ekki lét sig varða hvað var að gerast i öðr- um listum i kringum hann. Fyrstu afstraktmyndir Það kom mér skemmtilega á óvart að sjá á þessari sýningu að Baldvin er fyrsti listamaður á íslandi til að mála afstrakt- myndir, og er það furðulegt hugrekki af Islendingi norðan úr Dumbshafi að leggja út á þá braut á árinu 1912, aðeins tveimur árum eftir að Wassili Kandinsky hafði málað fyrstu yfirveguðu afstraktmyndir list- sögunnar. Þessi afstrakt til- hneiging virðist hafa sótt á Baldvin nokkuð skyndilega og stuttu siðar, eða í kringum 1914, hættir hann að gera slikar myndir. A þessari sýningu eru teikn- ing og málverk i kringum við- fangsefnið „Guðrúnargrát” og eru þau frá ca. 1910-12 og eru i þungum symbóliskum stil, og e.t.v. hefur Einar Jónsson haft þar áhrif á Baldvin, en þeir tveir höfðu farið saman til Þýskalands 1902. En 1912 fer Baldvin að mála þessar af- straktmyndir sinar, og er það eftirtektarvert að það eru á sama tima sem listalif fer skyndilega að blómgast i Berlin með aukinni starfsemi „Neue Sezession” og siðar „Freie Sezession”, ásamt sýningarsal listfrömuðarins Walden. t Berlin mátti sjá Beckmann, Feininger, Kandinsky, Munch og Nolde, auk margra franskra listamanna, og Baldvin hefur skyndilega orðið snortinn og farið að athuga óhlutlæg form. Þessar afstraktmyndir hans, „Komposisjónir” frá 1912—14, sýna að visu engin sérstök til- þrif, þau eru verk leitandi manns sem e.t.v. er aðeins að mála fyrir sjálfan sig. Er mér ekki kunnugt um hvort fyrstu afstraktverk Kandinskys hafa verið til sýnis i Berlin fyrir eða um 1912, þótt ekki sé loku fyrir það skotið að Baldvin hafi séð myndir af þeim i timaritum. Allavega eru verk Kandinskys frá þessum tima mun frjálsari og lifrænni i formum en þessi verk Baldvins, og finnst mér liklegt að þótt Kandinsky hafi verið kveikjan, þá hafi Baldvin hneigst að öðrum málurum. En þess bera að geta I þessu sam- bandi að Baldvin sem gull- smiður var vanur að vinna með allskyns óhlutlæg form og linur, svo að þetta skref var honum e.t.v. ekki eins fjarlægt og halda mætti. Verk þessi byggjást upp á nær „arkitektóniskan” hátt, finna má hús-form, beinar og odd- hvassar kraftlinur sem liggja á ská efst eða út við endamörk myndanna, og nokkuð ber á nær geómetriskum hringformum og þrihyrningum, sem raðað er nokkuð reglubundið á mynd- flötinn. Að þessu leyti minna myndir Baldvins mig á fyrstu þroskuðu myndir Lyonel Fein- ingers og siðustu myndir Franz Marc, en þær voru málaðar á árunum 1912—1914. En þessar myndir Baldvins eru merkilegt innlegg i islenska listsögu og ætti Listasafn Islands að reyna að eignast þær. Borgir og landslag Eftir 1914—15 virðist Baldvin ekki hafa áhuga á afstrakt myndgerb, en þýski expressjón- isminn fylgdi honum alla ævi. Snýr hann sér æ meir að lands- lagsmyndum eða borgarmynd- um sem einkennast af góöu auga fyrir sterkri myndbygg- ingu og notkun þykkra, bland- aðra litflata. Myndir hans frá höfninni i Reykjavik gefa ekkert eftir myndum Snorra Arin- bjarnar, nema þá siður sé, og myndir Baldvins af verkamönn- um og sjómönnum að starfi hafa yfir sér þennan hetjulega ró- semisbrag sem Gunnlaugur Scheving siðar gerði að aðals- merki sinu. Er vonandi að þessi sýning verði til þess að Baldvini Björnssyni verði skipað á sinn réttmæta sess i islenskri list- sögu á 20. öld. Hvað gullsmiði Baldvins snertir, ber hún vott um ein- staka natni og smekkvisi og fullt vald yfir þeim formum sem hann notar hvert sinn. Hvort sem það eru bjúglaga og spennt ,,art nouveau” form eða hrjúf, expressjónisk form sem hann vinnur með, þá finnur hann besta samræmingu þeirra og staðsetningu án þess að yfir- hlaða eða of-skreyta gripinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.