Vísir - 16.06.1975, Blaðsíða 10

Vísir - 16.06.1975, Blaðsíða 10
Visir. Mánudagur 16. júni 1975 Vlsir. Mánudagur 16. júni 1975 Hill var fyrstur! Brctinn Ron Hill sigraði i al- þjóða maraþonhlaupi, sem háð var I og viö Varsjá i Póllandi I gær. 1 hlaupinu tóku þátt 138 hlauparar frá 12 löndum og var Hill rúmri minútu á undan næsta manni, sem var Pólverjin Legowski. Hill hljóp á 2:12,34,2, en Le- gowski á 2:1358,2. Þriðji varö Martin Schroeder Austur- Þýzkalandi á 2:1448,5Danir áttu fimmta mann I hlaupinu — Jörgen Jensen, sem hljóp á 2:1739,6. —klp— B/acksi Decker sláttuvélaeigendur NÝ ÞJÓNUSTA Sumarió er komió og því tími til aó huga aó slóttuvélinni. Um takmarkaóan tíma mun BLACK & DECKER umboóió bjóóaöllum eigendum D-484 raf- magnssldttuvéla, aó yfirfara fyrir þó vélar þeirra, (hreinsa, smyrja, skipta um kol og blaó) fyrir aóeins kr. 1.000- Sendió okkur vélina og vió munum undirbúa hana fyrir sumarslóttinn. Þjónustan fer fram ó Rafvébverkstœói Haraldar Hanssonar, Laugavegi 178, Reykjavik. Þessar vinsœlu rafmagnsslóttuvébr eru óvallt fyrirliggjandi 6 hagstœóu verói og einnig stœrri geróin D-489. VERIÐ VEL UNDIRBÚIN FYRIR SUMARIÐ G. Þorsteinsson & Johnson ÁRMÚLA 1 - SÍMI 85533 Sjálfsmark Gísla fœrði Víkingi sigur gegn ÍBK Fyrsti sigur Víkings í 1. deild var gegn Keflvíkingum, sem sáu einnig um eina markið Vlkingar unnu sinn fyrsta sigur i baráttunni um lslandsmeistara- titilinn á Laugardalsvellinum I fyrradag gegn IBK.Þar með hafa þeir hlotið fjögur stig úr jafn- mörgum leikjum og þokað sér af botninum.Hvort sigurinn er upp- hafið af „Vikingsári” á vettvangi knattspyrnunnar skal ósagt, en aftur á móti var þetta „harm- leikur” fyrir IBK. Landsliðsmað- urinn Gisli Torfason, sem þekkt- ari er fyrir að forða mörkum hjá liði sinu en skora, varð fyrir þvi óiáni að senda knöttinn I eigiö mark og færa Vikingum sigurinn á silfurfati, — og skoraði eina mark leiksins. Gisli átti þó ekki alla sökina. Þorsteinn Ólafsson markvörður hafði hætt sér fulllangt út úr markinu, þegar Gisli, á auðum sjó, hugðist senda honum knött- — Ég hef hann þennan — kallar Ómar markvörður FH, en Her- mann Gunnarsson Val er við öllu búinn, enda ekki að vita nema Ómar missi blautan boltann frá sér aftur. Ljósmynd Bj.Bj. ★ inn af um 30 metra færi, en i stað þess að hafna i höndum Þorsteins sveif knötturinn rakleitt i markið, 1:0. Þrátt fyrir aðeins þetta eina mark áttu bæði liðin góð færi.Vik- ingar til að auka við markatöluna og ÍBK á að jafna, en skotin voru lin, rétt eins og bleytan á vellin- um hefði komizt i púðrið, eða þá að „sigtin” voru vanstillt. Ýmist smullu þau i stöngum eða geiguðu illilega.Hættulegustu færi Vikinga voru, þegar aðeins einn varnar- maður átti i höggi við fjóra Vik- inga, sem sluppu aftur fyrir fremur opna vörn ÍBK. Stefán Halldórsson átti þar seinasta orð- ið, — en knötturinn lenti i mark- súlunni og hrökk þaðari i fang Þorsteins markvarðar.Einnig átti Guðgeir, bezti maður Vikinganna og vallarins, hörkuskot I stöng, svo segja má, að tvivegis hafi hurð skollið nærri hælum IBK, utan minni háttar færa, sem Vik- ingar áttu. Grétar Magnússon fékk bezta marktækifæri ÍBK til að jafna metin, á 42. min. fyrri hálfleiks. Stóð á markteig og hitti ekki knöttinn eftir góða sendingu frá Jóni Ólafi. Einar Gunnarsson komst I sæmilegt færi undir lokin I örvæntingarfullri tilraun til að jafna metin, en Diðrik, sem stóð sig vel i markinu, þegar á hann reyndi, varði skotið. Vlkingarnir voru betri aðilinn I leiknum og þeirra var sigurinn. Þeir áttu oft góða samleikskafla, en fyrst og fremst var það vörnin, sem ekki brást. Helgi Helgason var þar fremstur meðal jafningja. Guðgeir barðist, meðan kraftar leyfðu. Mörgum þykir hann ein- leika um of, en hann skapar ávallt hættu og á lika góðar sendingar. Keflvikingarnir virðast nú heillum horfnir.Enginn veit, hvað átt hefur fyrr en misst hefur.Síð- an Guðni Kjartansson varð að hætta að leika vegna meiðsla, hefur gengi liðsins farið minnk- andi og einhver óeining rikir inn- an þess, sem kemur fram i mjög misjöfnum leikjum. Steinar Jó- hannsson lék ekki með og var ekki heldur á varamannabekkj- unum á móti Vikingum. Flogið hefur fyrir, að hann sé hættur knattspyrnu. Vörnin, sem hingað til hefur verið aðalsmerki IBK, var furðulega opin, en framlinan bitlitil. Af IBK-liðsmönnum áttu þeir Ólafur Júliusson, Hjörtur Zakariasson og Einar Gunnars- son einna skástan leik. Dómari var Guðmundur Haraldsson. Mátti hann vera öllu ákveðnari. Spurningin er, hvort hann sleppti ekki vitaspyrnu á IBK, þegar Þorsteinn markvörður átti i höggi við Stefán Halldórsson á 24. minútu, — varpaði sér fyrir hann til að koma i veg fyrir, að hann næði knettinum. emm Watson fór tíl Manchester City Manchester City keypti i gær enská iandsliðsmanninn Dave Watson frá Sunderiand fyrir 275 þúsund sterlingspund, áuk þess sem Citv lét I skiptum bakvörðinn Jeff Clarke. Watson hefur verið i enska iandsliðinu siðan Roy Mc Farland frá Derby varð að láta eftir stöö- una vegna meiðsia fyrir meir en ári.Hefur Watson leikið 14 lands- leiki með aðalliðinu. —klp— Með tárin í augunum á leiðinni út á völl ísland hafnaði í 6. sœti — 3 stigum á undan írlandi — í Evrópukeppninni í frjálsum íþróttum í Portúgal Islendingar urðu i 6.og næst slð- asta sæti i slnum riðli I Evrópu- keppninni I frjálsum iþróttum i Lissabon i Portúgai um helgina. Þeir háðu harða keppni við irland um neðst sætið I riölinum og höfðu sigur með3 stigum.Fékk island 46 stig en irland 43. Aöeins i einni grein fóru okkar menn meö sigur af hólmi.Það var STAÐAN 2. deild Staðan 12. deild eftir leikina um helgina: Völsungur—Breiðabl. 0:4 Reynir—Armann 0:1 Haukar—Vikinguró. 1:0 Breiðablik Selfoss Þróttur Armann Haukar Völsungur Víkingur Ó. Reynir Arsk. Markhæstu menn: Hinrik Þórhaiiss. Breiðabl. Sumarliði Guðbjartss. Self. 1 1 0 2 19:0 11:2 10:3 6:4 7:5 0:9 3:22 0 1:12 0 i kúluvarpi) þar sem Hreinn Hall- dórsson kastaöi lengst af öllum — 18,73 metra — næsti maður var meö 18,24 metra. Erlendur Valdimarsson varð að láta sér nægja annað sætið i kringlukasti — með 54,00 metra, en kringlan vannst á 54,42 metra. Hann meiddist I baki I sleggju- kastinu daginn áður — kastaöi sleggjunni 55,36 metra — og gat þvi ekki beitt sér i kringlukastinu. I flestum greinum börðust ís- lendingar við Ira um 6.sætið, en þó kom inn á milli 4.og 5. sætið. Óskar Jakobss. varð td. fjórði I spjótkasti — með 71,14 metra kast. Ágúst Asgeirsson náði ágætum árangri I 3000 metra hindrunar- hlaupi — öörum bezta árangri ís- lendings frá upphafi — kom i mark á 9:02,8 min. I 1500 metra hlaupinu varö hann 6. á 3:53,12 min.Þegar 300 metrar voru eftir voru allir i hnapp, en á enda- sprettinum varð Agúst að gefa eftir og sjá hina fara fram úr sér. Hlaupið vannst á 3:51,74 min — svo að ekki var munurinn mikill Jón Diöriksson hljóp 800 metr- ana á 1:56,28 min, en það hlaup vannst á 1:46,91 min af Dammel frá Belgiu.Friðrik Þór Óskarsson varð 6.i langstökki — 6,72 metrar, og 7. i þristökki — 14,38 metrar. Elias Sveinsson varð I 6.sæti i há stökki — 1,93 metrar og fór yfir 4,20 metra i stangarstökki. Stefán Hallgrlmsson hljóp 110 metra grindahlaup á 15,5 sek, en hiaupiö vannst á 14,3 sek. Hann varð I 5.sæti I 400 metra grinda- hlaupi á 53,0 sek, en i þeirri grein náðist bezti árangur mótsins — Musse frá Hollandi, sem hljóp á 49,82 sek. Siguröi Sigurðssyni gekk illa i 100 metrunum — missti blokkina aftur fyrir sig i „startinu” og sat þvi eftir Jíom hann I mark á 11,18 sek, sem er langt frá hans bezta. Bjarni Stefánsson hljóp 400 metr- ana og var góður fyrstu 300 metr- ana en varð þá að gefa eftir og hafnaði i 6.sæti á 49,00 min. Tiu kilómetra hlaupið var mikil þrekraun — hitinn yfir 30 stig — og hraðinn of mikill fyrir Sigfús Jónsson, sem hafnaði I 7.sæti — langt frá sinu bezta. Mjög óþægilegt var að keppa i gær — uppþot hafði orðið i nám- unda við völlinn og hermenn not- ab táragas til að dreifa mann- fjöldanum.Voru margir keppend- ur þvi með tárin i augunum á meðan á keppninni stóð, þvi að gasið lá lengi i loftinu i hitasvækj- unni, og Islenzku keppendurnir þurftu að fara i gegnum miöjan mökkinn á leiðinni út á völl. Stigin i þessum riðli Evrópu- keppninnar skiptust þannig: Spánn 114, Sviss 110, Belgia 95, Holland 88, Portúgal 65, ísland 46 I og Irland 43. —klp— ' wsmmm BliilS’ Helgi Helgason, sem meðal félaga sinna gengur undir nafninu Basli, er ekkert á þvi að hleypa Jóni ólafi að boltanum i leiknum á milli Vlkings og IBK á laugardaginn — leiknum var lika að ljúka og staðan 1:0 fyrir Vlking. Ljósmynd Bj.Bj. Júgóslavar tóku Evróputitilinn Júgóslavar urðu Evrópumeistar- ar i körfuknattleik, er þeir sigr- uðu Sovétmenn i slðasta ieiknum I Evrópumótinu i Belgrad i Júgó- slaviu I gær með 6 stiga mun — 90:84. Þaö var rétt i byrjun, sem Sov- étmenn höfðu I Júgóslavana að segja, en siðan tóku þeir leikinn i sinar hendur og höföu 7 stig yfir i hálfleik — 44:37. A siðustu minútunum náðu So- vétmenn þó að minnka bilið I 2 stig, en þá settu Júgóslavarnir aftur allt á fulla ferð og tryggðu sér þar með titilinn i annað skiptiö I röð. ttalia hlaut bronsið i keppninni meö þvi að sigra Búlgariu 90:73, og þar áður Spán 89:69, en annars var röðin þessi: l.Júgóslavia 2.Sovétrikin 3.Itaiia 4.Spánn 5. Búlgaria 6. Tékkóslóvakia B-riðill 7.1srael 8. Pólland 9. Tyrkland 10. Holland 11. Rúmenia 12. Grikkland -klp- i B W Blikarnir bœta enn við mörkum og stigum li Breiðablik heidur áfram sigurgöngu sinni i 2.deild undir stjórn Þorsteins Friðþjófssonar — fyrrum Valsmanns — og vinnur stóra sigra i hverjum leiknum á fætur öðrum. A laugardaginn heimsóttu þeir Völs- unga norður á Húsavík og komu til baka með tvöstig eftir 4:0 sigur.Þar af höfðu þeir skorað 3 mörk, þegar fyrri hálfleik var lokið. Fyrsta markiö kom snemma I leikn- um.Þór Hrciðarsson fékk sendingu inn fyrir vörn Völsunga og „labbaði” með boltann inn I mark, þar sem heima- menn héldu, að hann hefði verið rang- stæður, þegar hann fékk hann. Sendingin var frá Hinrik Þórhalls- syni, sem rétt á eftir skoraði sjálfur úr þvögu, sem myndaðist við mark Völs- unga.Þriðja markið skoraði svo Gisli Sigurðsson úr vitaspyrnu, sem dæmd var á Völsunga rétt fyrir hálfleik. i siðari háifleik skoraði Hinrik svo aftur — sitt áttunda mark i fjórum lcikjum i deildinni — en þá áttu Völs- ungarnir af og til tækifæri, eins og td. Hreinn Elliöason, sem átti mjög gott skot á markið. Ármann slapp með 1:0 frá Árskógsströnd! Armenningar þökkuðu slnum sæla fyrir að sieppa frá Arskógsströnd með 1:0 sigur yfir Reyni. Þeir siuppu þó ekki án þess aö fá að finna fyrir heimamönnum, þvi að þrir þeirra eru á sjúkralista eftir leikinn. Reynismenn eru harðir I horn að taka — án þess þó að vera grófir — og þeir verða ekki lengi án stiga I deild- inni þvi að heima eru þeir stórhættu- legir og fer fram meö hverjum leik. Armenningar skoruöu eitt mark I leiknum — Jón Ilermannsson með þrumuskoti sem fékk boltann til að hvina I netinu á 30. mln. fyrri hálfleiks. cn I fyrri hálfieiknum voru Armenn- ingar betri aðilinn. 1 þeim slðari snerist dæmið við — Jón Hermanns varð aö fara i vörnina — og þar með tóku heimamenn yfir á miðjunni og áttu mjög hættuleg tækifæri, en tókst ekki að skora. Sérstaklega var þaö einn þeirra, sem slapp oft i gegn, og þegar einn Ar- menninganna kallaöi.... „takiö þið skipstjórann almennilega”..... var svariö sem hann fékk .......þctta er ekki skipstjóri, þetta er bóndi úr sveit- inni og hann er að flýta sér, þvi hann þarf að komast heim til aö taka af”..... —klp— Haukarnir höfðu það á lokamínútunm! Haukar máttu þakka fyrir að kom- ast út af vcllinum I Kaplakrika i gær með bæði stigin eftir viðureignina við Ólafsvlkur-Vikingana. Það var á lokamlnútu leiksins, sem þeir tryggöu sér sigurinn — 1:0 með marki, scm ólafur Jóhannesson skor- aöi. Hann komst I gegn um vörn Vlk- inganna og náði að skora ágætis mark. Annars var leikurinn þófkenndur og Iltiö I hann variö. Var litill munur á lið- unum — sparkað mótherja á mílli og skipulag af skornum skammti. Var sýnileg hræðsia hjá báðum við að tapa leiknum og varð hann þvl ekkert augnayndi. Asgeir Elisson lék nú sinn fyrsta leik með Vikingi og lek sem aftasti maður i vörn, en I þeirri stööu hafa knatt- spyrnuunnendur aldrei séö hann fyrr — hvorki meö Fram né landsliöinu. —klp— Pele sló í gegn í fyrsta leiknum með Cosmos llin fræga knattspyrnustjarna — Pele — lék sinn fyrsta leik á laugar- daginn með slnu nýja félagi i Banda- rikjunum — Cosmos — eftir fimm milljón dollara samninginn, sem hann gerði fyrir nokkru. Yfir 20 þúsund manns komu tilað sjá hann leika gegn Dallas Tornadi, og milljónir sáu hann I sjónvarpi, en þessum leik var sjónvarpað um gjör- völl Bandarlkin.Er það I fyrsta sinn i fimm ár, sem það er gert. Pele sló I gegn — skoraöi gullfallegt mark — og lagöi upp annaö.Leikurinn, sem var vináttuleikur, endaði 2:2. Þvi miður misstu sjónvarpsáhorf- endur af þvi, þegar Pele lagði upp ann- aö markið, en það þótti stórglæsilegt hjá honum. Þupfti landsliðsmaðurinn frá tsrael, Mordechai, ekkert annaö aö géra en aö renna boltanum i netið eftir þá sendingu. —klp—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.