Vísir - 24.11.1975, Blaðsíða 12

Vísir - 24.11.1975, Blaðsíða 12
H.F ÖLGERÐIN EGÍLL SKALLAGRÍMSSON REYKJAVÍK Mánudagur 24. nóvember 1975. VISIR VISIR Mánudagur 24. nóvember 1975. Létt hjó Danker- sen í Austurríki l.ið þeirra Axels Axelssonar og ólafs H. Jónssonar, Pankersen, er örugglega búið að tryggja sér sæti i annarri umferð i Evrópu- keppni bikarhafa i handknattleik. I.iðið lék um helgina við UHC- Salzburg frá Austurriki — i Austurriki — og sigraði með 15 marka mun — 28:13. Ekki vitum við hvernig þeim félögum vegnaði i þessum.leik, en trúlega liafa þeir gert það gott, þvi að þeir hafa verið ináttar- slólpar liðsins i undanförnum leikjum. Einar Magnússon var ekkert i eldlinunni uin helgina, og heldur ekki Ólafur Einarsson. Aftur á móti lék Gunnar Einarsson með Göppingen i Berlin i gær, og sigr- aði Göppingen i þeini leik 17:16. Gunnar átti ekki að vera með vegna mciðsla i fingri, en þegar til kom taldi Göppingen sig ekki gcta án hans verið, og voru spelkurnar teknar af fingrinum og hann sprautaður af lækni til að finna ckki fyrir sársauka. Hann skoraði samt 3 mörk i lciknum, en var svo slæmur á eft- ir, að vafasamt er að liann verði með i næsta leik, sem verður um helgina. — klp — Skautofélagið komið í blak! Einn leikur var leikinn i 1. deild tslandsmótsins i blaki um helg- ina. ÍS lék við UMSB á Laugar- vatni og sigraði i öllum þrem hrinunum, cða samtals 3:0. í fyrstu hrinunni sigruðu stú- dentarnir 15:4 og þeirri næstu 15:6. i þriðju hringunni náðu heimamenn sér sæmilega á strik — komúst i 6:1 — en héldu ekki út og töpuðu lienni 15:9. I>á var leikinn einn lcikur i meistaraflokki kvenna. Þróttur sigraði Breiðablik 3:1. Breiðablik tapaði einnig i 2. deild karla um helgina —fyrirb liði Þróttar — og fór sá leikur einnig 3:1. I.ið iþróttakennaraskólans á l.augarvatni lék tvo leiki i 2. deild i gær og sigraði i þeim báðum 3:0. Sá fyrri var við HK úr Kópavogi, en sá siðari við Skautafélag Bcykjavikur, sem nú haslar sér völl i ýmsum greinum iþrótta — en með misjöfnum árangri cnn sem komið er. —klp — Úr ýmsum óttum úti í heimi. Sovésku fim leikastúlkurnar sigruðu i landskeppninni við Japan, sem lauk i Yamaguchi i Japan i gær. Þær sigruðu i öllum greinunum, sem keppt var i — eða með samtals 9,5 stigum. Neli Kim, liin unga og cfnilcga sovéska fimleikakona, var með bestan samanlagðan árangur, 76,65 stig. Keppni karlmannanna stendur nú yfir og má þar búast við spennandi keppni. Ileimsmeistarinn fyrrverandi i borðtennis, sviinn Stellan Bengts- son, tapaði fyrir kinverjanum Go Yao Hua i úrslitaleiknum i ein- liðaleik i hinu árlega alþjóðamóti i borðtennis, sem háð var i Lju- bljana i Júgoslaviu um helgina. Kinverjinn, sem cr 19 ára gam- all og vinnur i rafhlöðuverk- smiðju, sigraði sviann 23:21, 21:15 og 21:9. i einiiðaleik kvenna urðu kin- verjarnir aftur á móti að þola tap, og kom það mjög á óvart. Branka Batinic frá Júgoslaviu, seni er 17 ára gömul, sigraði þar Cliang Pe In I úrslitaleiknum 14:21, 21:18, 22:20 og 21:14. Var þetta fyrsti sigur þessarar ungu skólastúlku í stórmóti i borðtennis. Paninn Fleming Pelfs sigraði i cinliðaleik karla i Northumber- land-keppninni i badminton, sem háð var i Ncwcastle um helgina. i útslitunum lék daninn — sem tapaði i úrslitaleiknum i Norður- iandamótinu um fyrri helgi — við englendinginn Paul VVhetnalLog fóru hrinurnar 6:15, 15:8 og 15:10 fyrir F'elfs. — klp — Ég var aö kaupa Jölaörpfefeina SUMIR JÓLASVEINAR DREKKA EGILS PILSNER............. OG ADRIR JÓLASVEINAR DREKKA EGILS MALTÖL................... EN ALLIR JÖL ASVEINAR DREKKA AUDVITAD EGILS APPELSÍN." #leöileg jól drplikjum S* „Trukkurinn" var að brjóta niður húsið! Þrír fjörugir leikir í 1. deildinni í körfuknattleik um helgina, þar sem KR sigraði Val, ÍR sigraði ÍS og UMFN sigraði Fram ,,Ég er búinn að sjá svo margt skritiðhér á islandi, að þetta kom mér ekkert á óvart” var haft eftir Curtiss „Trod” Carter eftir leik KR og Vals i 1. deildinni i körfu- knattleik á laugardaginn. Það sem „trukknum” fannst svona skritið, var að hann fékk áminningu og siðan tækniviti fyr- Meistararnir fengu skell Evrópumeistararnir Bayern Munchen fengu heldur betur skcll i leiknum við Eintracht Frank- furtli i Bundersligunni i Vestur- Þýskalandi á laugardaginn. Þeir töpuðu leiknum 6:0 og er það eitt mesta tap, sem þetta fræga lið hefur orðið að þola i langan tima. ir að „troða” knettinum hvað eft- ir annað niður i gegnum körfu- hringinn — áhorfendum til mikill- ar skemmtunnar. Hamagangurinn i „trukknum” var svo mikill við þetta, að húsið nötraði og skalf, og óttuðust menn um tima að hann myndi brjóta niður allt viravirkið, sem heldur uppi körfunni. Strangt til tekið er bannað að „troða” knettinum niður um hringinn, og var það sú regla, sem dómararnir fóru eftir, og voru áhorfendur ekkert ánægðir með það. „Trukkurinn” var i miklum ham i þessum leik, sem .var hans besti með KR til þessa. Hann skoraði 43 stig i leiknum, sem lauk með yfirburðasigri KR 110:88. Leikurinn þótti ekki neitt sérlega góður enda litill broddur i Valsmönnum — sérstaklega eftir að þeir höfðu misst Torfa Magnússon útaf með 5 villur i fyrri hálfleik. Aftur á móti var meira fjör i leik Fram og Njarðvikur, sem einnig fór fram á laugardaginn. Var hann jafn og sáust oft skemmtileg tilþrif til beggja liða. Njarðvikingarnir voru 6 stigum yfir i hálfleik en i þeim siðari tókst Fram að jafna og komast 1 stigi yfir. Þegar 2 minútur voru eftir var munurinn 4 stig — Njarðvik i vil — en i lokin var hann 10 stig — 87:77 fyrir liðið frá Suðurnesjum. Stefán Bjarkason var stiga- hæstur njarðvikinga með 32 stig, en hjá Fram var það Helgi Valdi- marsson með 20 stig. 1 gærkvöldi léku svo ÍR og 1S, og lauk þeirri viðureign með sigri 1R, 87: 73, eftir að staðan i hálfleik hafði verið 46:33 fyrir ÍR. Höfðu stúdentarnir litið i Islands- meistarana að gera — sérstak- lega þá Kristinn Jörundsson og Þorstein Hallgrimsson. Voru þeir báðir mjög góðir, og var Þor- steinn tvimælalaust besti maður- inn á vellinum. Hann skoraði 14 stig en Kristinn 30 stig. Hjá 1S var Jón Héðinsson einna bestur — skoraði 14 stig — og einnig átti Ingi Stefánsson góða spretti og skoraði 12 stig. — klp — IR skaut KR í kaf Sigraði 26:17 í „stórleiknum" í 2. deild í gœrkvöldi iR-ingar tryggðu heldur betur stöðu sina i 2. deild islands- mótsins i handknattleik i gær- kvöldi. Þá léku þeir við silfurliðið úr Reykjavikurmótinu — KR — og sigruðu með 9 marká mun, 26:17. Þeir náðu strax góðri forustu og komust fljótt i 9:3. KR náði að minnka bilið i 15:13, i siðari hálf- leiknum, en þá skoruðu tR-ingar 9 mörk gegn 3, enda var þá KR- liðið gjörsamlega brotið og ekki heil brú i leik þess. Hilmar Björnsson var mark- hæstur KR-inga með 8 mörk, en þeir Agúst Svavarsson með 8 og Brynjólfur Markússon 7, voru markhæstir IR-inga i þessum mikilvæga leik. Tveir aðrir leikir voru i 2. deild um helgina. Fylkir sigraði Breiðablik 22:19, og Leiknir sigraði Keflavik i Njarðvíkum 7:15. Þar var staðan 12:12, þegar ljósin i húsinu voru slökkt eftir að i „ljós” hafði komið að Leiknis- menn voru með „klistur” á puttunum, en það er algjör bannvara þar. Eftir að Ijósin kviknuðu aftur, var allur „eldur úr keflvikingum, og Breiðholts- búar sigldu út af með bæði stigin. Pómararnir voru með hress- asta móti i leik KR og Vals i körfuboltanum á laugardaginn. „Trukkurinn” fékk áminningu og viti hjá þeim fyrir að „gera tilraun til að mölva niður húsið” og Kolbeinn Pálsson fékk tiltal fyrir að nota hcldur sterkt orð um ágæti dómgæslunnar. Eru þcssar myndir teknar fyrir og eftir þá „athöfn”... Ljósmyndir Einar. . . Skúli tók brons- verðlaunin í HM í kraftlyftingum Það er ekki á hverjum degi, sem við islendingar getum státað okkur af þvi að okkar fþróltafólk vinni til verðlauna i lieimsmeistarakeppni í iþróttum. Það gerðist þó á laugardaginn i Birmingham i Englandi, en þar fór frain um helgina lieimsmeistarakeppni i kraftlyftingum, og voru þar mættir „kraftajötnar” frá mörgum löndum heinis. Einn islendingur tók þátt i keppninni — austfirðingurinn Skúli Óskarsson, sem keppti I millivigt. Þar hafnaði hann i þriðja sæti, þegar búið var að leggja saman árangurinn i þeim þrem grein- um, sem keppt var i. Þarf varla að pota þvi á prent, aö það var frábær árangur hjá honum, þvi að þarna voru margir hraustir kappar samankomnir, en alls kepptu i þessum flokki fjórtán menn. Fyrsta greinin, scm keppt var i, var „hnébeygja”.... en þar er stöngin með lóöunum á tekin á axlirnar og siðan beygt sig niður og upp með alla þyngdina. Þar tók Skúli 230 kíló, sem er nokkuð frá lians besta, en íslandsmet lians i „hnébeygjum” er 240,5 kiló. i annarri greininni, sem er „bekk- prcssa”.... þar leggst keppandinn á liakiö á bekk og lyftir lóöunum niður að brjósti og upp aftur .. var Skúli með 130 kiló, og var hann þá kominn i þriðja sætið á eftir bandarikjamanninum Walter Tliomas, sem hafði mikla yfir- burði i þessum þyngdarflokki, og Fiori frá Zambiu. i siðustu greininni „rétt- stöðulyftu”..þar cr þyngdin tekin frá gólfi og upp fyrir hné. varð Skúli aö setja nýtt tslandsmet til að ná ööru sætinu, eöa að fara upp meö 290 kiló. Var það heldur of niikill biti fyrir hann að kyngja, þvi að hann var farinn að finna til i baki og treysti sér ckki í þá þyngd, þótt svo að silfriö væri i húfi. Hann lét sér nægja að tryggja sér hronsverölaunin með þvi að fara upp með 252,5 kiló, en best átti hann fyrir keppnina 280 kiló. Samtals lyfti hann þvi 1)12,5 kflóum, sem er nokkuð frá lians besta i keppni hér heima, en þetta var i fyrsta sinn, sem Skúli keppir á móti eins og þessu á erlendri grund. Bandarikjamaöurinn Walter Tliomas sigraöi f millivigt— lyfti samtals 717 kilóum, en Fiori frá Zambiu varð annar með 647,5 kíló. —klp — ÁSGEIR HAFÐI EINUM BETUR EN GUÐGEIR! „Þetta var hörku spennandi og skemmtilegur leikur — sér- staklega siöari hálfleikurinn” sagði Guðgeir Leifsson, er við náöum tali af honum eftir leik Standard Liege — sem Asgeir Sigurvinsson leikur með — og Charleroi —sem Guðgeir leikur með, i Liege i gær. „Standard hafði það i þetta sinn en munurinn var ekki nema eitt mark. Þeir skoruðu 4 mörk en við 3, en okkar mörk komu eftir að þeir voru komnir i 3:0 i byrjun siðari hálfleiks. Við minnkuðum bilið i 3:2, en þeir komust i 4:2 og við siðan i 4:3. Annars skoruðum við lika fjórða markið i leiknum, en dómarinn dæmdi það af vegna rangstöðu, sem ég segi að hafi verið rangur dómur, en Asgeir aftur á móti að hafi verið réttur. Annars sjáum við það betur i sjónarpinu á morgun. Hvorugurokkar skoraði.mark i þessum leik — en áttum báðir sitt hvort markið. Ég annað markið hjá okkur og hann þriðja mark Standard. Asgeir var áberandi besti maðurinn i liði Standard að minu viti, og ég held að ég hafi komist sæmilega frá minu hlutverki með Charleroi. Við vorum voðalega prúðir hvor viö anna i þessum leik — hann hélt sér á vinstri kantinum i fyrri hálfleik, en kom inn á miðjuna i þeim siðari, og þá fór ég að sjá hann og finna fyrir honum. Utlitið er ekki sem best hjá okkur i Charleroi eftir þennan leik — erum i neðsta sæti með 7 stig. Annars er munurinn ekki mikill, þvi að það eru ein fjögur lið með 8 stig og þrjú með 9. En við sitjum hjá um næstu helgi og þá breytist þetta áreiðanlega eitthvað.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.