Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1928, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1928, Blaðsíða 1
10. tölublað. i Sunnudaginn 11. mars 1928. III. árgangur. Eftirprentun bönnuð. Kafbdtahernaðurinn. Endurminningar Julius Schopka- IL Pyrstu hernaðarferðiprnar. Það Arar hinn 13. mars 1916, er við vorum á æfingu, að liðþjálf- inn kallár til okkar að skipast all- ir í röð. Var því skjótlega hlýtt og vissum við þó ekki hvað til stóð. En þangað var þá kominn kafbátsforingi til að velja sjer menn úr okkar hóp. Það var Hans Walther. Hafði hann áður verið yfirforingi á „U. 9“ og „U. 17,“ en nú hafði haun verið skipaður yfirforingi á nýjum kafbáti, „U. 52,“ sem Germauia-Werft í Kiel hafði smíðað, og vantaði menn á skipið. Gekk hann nú fram með röðinni og spurði hvern mann að nafni, hvað hann hefði gert áður, hvort liann hefði verið sjómaður o. s. frv. Þanuig gekk liann röðina á enda. Síðan valdi hann úr, þá, sem honum leist best á og var jeg einn af þeim, sem urðu fyrir val- inu. Okkur var nú skipað að taka saman pjönkur okkar og síðan vor- um við sendir um borð í „U.52.“ Bátur þessi var 65 ra. Jangur, hafði tvær skrúfur og tvöfaldar vjelar —■ þ. e. rafmagnsvjel og Dieselvjel á hvert borð. — Hvoi Dieselvjel hafði 1100 hestöfl, en rafmagns- vjelarnar 550 hestöf! hvor. Mesti hraði bátsins var" 18 ínílur ofan- (Skráð heíir Árni Óla). sjávar og 9.2 mílur neðansjávar, og burðarmagn var 720 smál. of- ansjávar, en 940 smál. neðansjávar. JULIVS SCHOPKA í einketinivbúningi kafbátamanna Hann hafði 4 tundurskeytabyssur og tvær fallbyssur 8.8 cm. (Seinna fengum við 10.5 cm. fallbyssu). Hann gat haft 12 tundurskeyti meðferðis. Það voru aðeins sex kafbátar af þessari gerð í þýska flotanum. Skipverjar voru 35 og 4 for- ingjar. Hófust nú æfingar að nýju, og var æft á sjó í 6 vikur samfleytt. „Hfingarnar fóru fram í Eystra* salti. Voru þær gerðar til þess að vita hvernig kafbáturinn færi i sjó, bæði í kafi og ofansjávar, fall* byssur reyndar og tulidurskeyta- byssur. Var fyrst aðeins skotið lausaskotum, en seinast kúluin og tundurskeytum til marks. Allar þessar æfingar miðuðu að því, að venja menn við handtökin, livern við sitt verk, og að vera samtaka, því að ef einhver mistök verða á, fer illa; eitt einasta öfugt grip getur orðið til þess, að bátur farist með allri áhöfn. Æfingarnar fóru aðallega fram hjá Eckernförde, skamt frá Kiel. Þar æfðu ýmsir fleiri en við — menn sem voru að búa sig undir að taka við stjórn á kafbátum. — Meðal þeirra voru t. d. þeir Paul König, er síðar sigldi verslunar- kafbátnum ,Deutschland‘ til Ame- ríki, og Rose, er seinna varð yfir- foringi á „U. 53“, sem fór líka til Ameríku árið 1917 og komst heim aftur. Æfðu þeir um borð hjá okkur þangað til þeir fengu sína báta. Af skipshöfninni á „U. 52“ vonl það aðeins fjórir, sem áður höfðU

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.