Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1928, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1928, Blaðsíða 2
242 LBSBÓK MORGUNBLAÐSINS Fjárhagur Daöa í Snóksdal. Daði í Snóksdal (f. um 1500) yar sonur Guðmundar Pinnbog'a- sonar, Pjeturssonar á Okrum í Mýrasýslu. Það var stórbænda ætt. — Móðir Daða var Þórunn Daða- dóttir, Arasonar, Daðasonar „Dala- skalla“. Daði í Snóksdal var þann- ig kominn af góðti vestfirsku stór- bænda fólki í báðar ættir._ TTrn 1525 giftist Daði Guðrúnu dóttur sjera Einars á Staðastað, ,,Ölduhryggjarskálds.“ Þessi prest- un var faðir Marteins biskups í Skálbolti. Þau hjón, Daði og Guð- rún, áttu tvö börn uppkomin: son og dóttur. Einar, sonur Daða og Guðriinar, tók banasótt degi áður en hann átti að ríða til brúðkaups síns við Sigríði dóttur Þorleifs lögm. Pálssonar á Skarði. Dóttir Daða og konu hans var Þórunn, er síðar varð' kona Björns Hannes- sonar, bróður Eggerts Hannesson- ar lögmanns í Saurbæ á Rauða- sandi (Sýsl. æf. III. 23—24). Daði bjó á 4 höfuðbólsjörðum og hafði auk þess mikinn sjávarút- veg, eins og þá var siður margra höfðingja og hafði reyndar verið frá landnámstíð. Ekkert verður vit að um erfðafje Daða í Snóksdal. En faðir hans og afi (Finnbogi á Okrum) voru í auðmannatölu. En mestur auður Daða virðist hafa verið aflafje hans. Hann var mik- ill dugnaðar og fjárgæslumaður. Síðustir árin sem Daði lifði hafði hann stórbú á 4 stórjörðum: Snóks dal, Sauðafelli, Knararhöfn, og Síðumúla í Borgarfirði. Áður hafði hann einnig bú í Hvammi í Dölum. Á þessum' jörðum átti Daði, þegar hann fjell frá (1563), samtals: 62 kýr, 391 ásauði, 48 geldneyti, 824 geldfjár, 29 hross og 41 hndr. í hrossum að auk. Á þremur búum voru hrossin virt til hundraða, eldri og yngri, en á Sauðafelli voru þau talin 29. Gildur hestur var í þá daga met- inn 120 álnir, en gild hryssa 90 álnir. Munu því öll hross Daða á þúum hans hafa verið um 60, —- Folöld aldrei talin. Geldneyti hef- ir Daði átt fleiri en 48, því á eign- arskránni (A. M. Apogr. 4746 og A. M. 267, 4to) hefir gleymst að tilfæra geldneyta töluna á einu búinu. Má af henni sjá, að einhver tala hefir þar átt að vera. Þar stendur: Item geldneyti .......... Með jörðum sínum átti Daði 26IV2 málnytjukúgildi. En á fóðrum hjá ýmsum bændum 119% kúgildi (málnytja). Tala jarðeigna hans var 55, og voru þær allar 1140 hundr. að dýrleik, eða nálega 21 hundr. hver jörð til jafnaðar. En svo átti Daði mikið í svo nefndu virðingafje á öllum búun- um. Minst af því verður metið' til verðs af nútíðarmönnum. En gefa má ofurlitla bendingu um virðing- arfjeð, með því að nefna fáeina hluti af því. Jeg tek aðeins nokkuð fram til íhugunar úr Snóksdalsbú- inu. Þar eru taldir fram 30 útlend- ir „skerdiskar“ og 25 aðrir diskar (líklega tin- og trjediskar). Þá eru nefnd 34 ný trog og 76 gömul, 9 stórkatlar (einskonar pottar), 55 % keröld (smáir skyrdallar), 14 stór- keröld (sáir), 5 strokkar, 10 borð- sltálar, 12 tinkönnur, 7 mundlaug- ar, 3 tinföt (stórdiskar undir mat á borðum), 7 stofuborð, 27 drykkj- arhorn, 4 kolapokar (líklega fullir af kolum) 0. s. frv. Þá kemur upptalning á silfur- munum heima í Snóksdal. Það er ótrúlega lítið af þesskonar varn- ingi hjá svo auðugum manni, mið- að við samskonar silfurgripi í eign ýmsra annara höfðingja á þeim tímum. Þar eru taldar 5 silfur- skeiðar, 2 silfurker, 2 fótastaup (fætur undir þeim), 1 silfur sledda silfurbúinn daggarður, 2 silfurbú- in drykkjarhorn 0. fl. þ. h. Alt hefir þetta kostað mikið (efnið og smíðið). Alt annað, hús- og búshlutir á búunum, var ærið mikið upptalið og ómetanlegt. En þár er einnig talið fram af lausafje ýmislegt sem má verðleggja, samkvæmt gömlum Búalögum og kauptexta í hjeruðum, t. d. 54 hundr. harð- fiskar, 69 vaðmálsvoðir (hver 24 álnir), 47 nautgripahúðir. Þetta tdst mjer samtals 69 hundr. Ennfremur átti Daði 6 skip og 1 áttæring með öllu, sem gengu til veiði á Ströndum og undir Jökli. Ekki má gleyma smjörinu.' í Snóksdal voru 3 smjiirbvrður (stæði). Þær voru fullar af súru smjöri (sjerlega hollri fæðu). Ein byrðan var 3X2X1% alin að rúmmáli, önnur 23/4Xl%Xl'% al- in og sú þrið'ja. 4%X3Xl% alin. Þetta var fornt mál. Þegar nú annarsvegar er athugað tenings- mál byrðanna en hins vegar eðlis- þungi smjörsins, verður smjör þyngdin um 137 fornar vættir (49,12 dönsk pd. í vætt). Þetta var smjörforðinn í Snóks- dal (1563). En á hinum búunum var smjörið samtals 71 vætt í tunnum og bögglum, en alt, á 4 búunuin, 208 vættir. Eftir verð- gildi þeirra tíma jafngilti smjörið 138% hundr. („á landsvísu“). Það sem verður vitað um auðs- upphæð Daða í Snóksdal er þetta: 55 jarðir, að dýrleik 1440 hundr. Búf jenaður á 4 búum 315 — 261% kúg. með jörð- um ................. 261% — 119% kúg. á leigust. 119% — Harðfiskur og fleira 69 — Smjör, gamalt .... 138% — Samtals 2343% hundr. Eft.ir verðlagi um síðustu alda- mót (1900) jafngildir þessi fjár- upphæð 234 þúsundum króna. En eins og fyr e* vikið að, verð- ur ekki vitað um verðgildi silrur- gripanna nje hús- og búshluta á öllum búunum. Einmg vantar hjer geldneytaeign Daða á einu búinu. Hjer er þó um talsverða fjárupp- hæð að ræða. Og hann hafði fullar nytjar af 2—3 kirkjujörðum, er fylgdu kirkjustöðum þeim, sem sem hann átti og hafði bú á. Árlegar tekjur Daða hafa verið miklar. Síðasta árið, sem hann lifði, hefir liann haft: Landskuld af 51 jörðu 46 hundr. Leiga eftir jarðarkúg. 43% — Leiga eftir fóðrafjenað 20 — Nytjar af heimamál- nytju ................ 63% — Samtals 173 hundr.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.