Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1931, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1931, Blaðsíða 6
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Hjer átti Abraham heima. í b'blíunni er sagt að Abraham hafi átt heima í borginni Ur í Mesopotamiu. Sú borg er fyrir löngu liðin undir lok, en nú eru enskir og amerískir fornfræðingar að grafa í rústimmn og hafa fundið þar margt merkilegt, sem varp- ar nýju ljósi yfir menningu Austurlanda bæði fyrir og eftir sjr ndaflóðið. — Hjer á myndinni sjást menn að starfi við upp- gröftinn og eins má sjá hve djúpt hefir orðið að grafa áður en komið var niður á elsta grunn borgarinnar. ~~ ' ' '~ ekki í hringa), og augun eru að eins tvö. A fslandi eru til að minsta kosti 15—20 tegundur af köngulóm. — Merkastar þeirra eru húsaköngu- lóin. fjallakörigulóin og hnoða- köngulóin. Húsaköngulóin lifir mest í húsum manna, og spinnur sjer pípumvndaðan bústað í jaðri vefsiris: Fjallaköngulóin hefst við alls staðar úti um haga, en spinn- ur engan bústað í sambandi við vefinn. Sjálfur vefurinn er aftur á móti miklu betur gerður og Vandaðri að öllu íeyti en hjá húsa- köngulónni. Ilnoðaköngulóin hag- ar háttum sínum alt öðru vísi en Mnar tvær. ITún spinnur nefnilega ekki veiðinet, heldur hleypur bráð- ina uppi, og bítur hana banasári. Hún er mjög frá á fæti, en hleyp- ur mest í stuttum sprettum. — Hnoðaköngulóin og skyldar teg- undir, sem ekkert veiðinet hafa, nefnast einu nafni veiðiköngulær. Köngulærnar eru til lítils gagns, nema þá ef til vill óbeinlínis, ef nytsöm dvr lifa á þeim. Maðurinn héfir þó reynt að notfæra sjer spunalist þeirra, og nota spunann sem silki, en ekki hefir varan þótt endingárgóð og heldur því silki- fiðrildið enn þá velli með virð- ingu. Margar köngulær eru skaðlegar, vegria eitursins, sem þær gefa frá sjer. Hjer á landi og í öðrum köldiim og tempruðum löndum gæfir þessá þó ekki, því köngu- lærnari Terri litlar, en í heitum löndum ■ éru til köngulær sem eru alt að því 10 sentimetrar á lengd; og geta þær gert mikinn skaða á búneningi og bitið menn svo þeir liggi mánuðum saman eða hljóti dauða af. Á steppunum í Suður-Rússlandi er t. d. alveg fult af þeim á sumrin, og margar hafa borist frá ýmsum heitum löndum til E\Trópu-hafna með skip- um. í hjeraði nokkru í Suður- Rússlandi, sumarið 1896, bitu þess- ar köngulær: 48 manns, og þar af dó tvent. 178 úlfalda, 57 dóu. 218 hesta, 36 dóu. 116 kýr, 14 dóu. Þótt-köngulærnar sjeu grimmúð- ugar að skaplyndi, eiga þær hrós og béiður skilið fvrir dugnað og atorku. Vefurinn er meistaraverk, og einstakur í sinni röð. Jeg gat j ess fyr, að skrúfuþráðurinn í vef fjallaköngulónna væri alþakinn örsmáum límkendum dropum. — Fjöldi þessara dropa nemur mörg- um þúsundum á hverjum vef, og á nóttunni, t. d. þegar dögg er, eyðileggjast allir droparnir, svo köngulóin verður að gera þá að nýju á hverjum morgni. Eftir hálfa klukkustund er verkinu lok- ið. Alþekt er köngulóin fyrir veð- urspár sínar.Sagt er að húsaköngu- lóin snúi höfðinu út þegar góð- viðri er í vændum, en afturboln- um þegar ilt veður er í nánd. Köngulærnar leggja líka meiri rækt við vefi sína undir blíðviðri og stillur en j>egar vond veður eru í aðsigi. — Nú, þjer fómð í söngleik-a- höllina í gærkvöldi, María. Hvern- ig líkaði yður þar? — Ágætlega, það var ,;Lohen- grin‘ — Nú, þá hafið þjer kynst Wagner? — Ónei, hann sagðist heita Sör- ensen.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.