Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1940, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
339
/
ur hjelt saman brjefum sínum og
eru þau nú í Landsbókasafninu,
um 1700 að tölu. Auk brjefa frá
fjölmörgum prestum eru þar m. a.
um 200 brjef frá Jóni Borgfirð-
ingi, 114 brjef frá dr. Finni Jóns-
syni, 80 frá dr. Jóni Þorkelssyni
og auk þess allmörg brjef frá
Skúla Thoroddsen, Ólafi Davíðs-
syni, Sir William Craigie, Gísla
Konráðssyni, Þorsteini Erlings-
syni, Jóni Árnasyni bókaverði o.
fl. merkum mönnum.
★
í júlímánuði árið 1900 bar fræg-
an gest að garði í Höfða, er Frið-
þjófur Nansen heimsótti fræðaþul-
inn Sighvat. Getur Nansen um
þessa heimsókn sína í grein, er
hann ritaði þegar heim kom, og
skal hjer að lokum tilfærður kafli
úr frásögn hans, tekinn eftir Lög-
rjettu 1930. Sighvatur var að
slætti, er Nansen bar að garði, og
ræddust þeir fyrst við úti á túni:
Svo spurði hann mig,
hvort jeg vildi ekki ganga í hæ-
inn. Gegnum lág, krókótt og dimm
göng, næstum því eins og göng í
Eskimóakofa, komum við inn í
herbergi, þar sem svo var lágt
undir loft, að jeg gat ekki stað-
ið upprjettur. Þar var bókum í
bögglum hlaðið upp meðfram
veggjunum, flestar voru þær ó-
bundnar og margvíslegar voru
þær, „Familie-Journaler“ og sög-
ur. Svo var gengið upp stiga upp
á loft. Þar var baðstofa undir
sperruloftinu, setustofa, vinnu-
stofa og svefnherbergi allrar fjöl-
skyldunnar. Þarna voru verkfæri
hans, penni og blek, á borði við
gluggann. En þegar hann skrifaði
sat hann á stól og hafði fjöl í
kjöltu sjer. Og eftir því sem jeg
komst næst eyddi hann þarna
mestum vetrinum og þeim tíma
öðrum, þegar hann var ekki að
búverkum sínum. — Svo dró hann
fram handritin sín, sex þykk bindi
um íslenska presta, vel og þjett
skrifuð, og svo komu þar að auki
önnur viðbótarbindi. Um efnið get
jeg ekki dæmt. En það eitt að
skrifa þetta var óskapa vinna. Og
það er gert í fullu vonleysi um
það, að koma því nokkurntíma á
prent. Það á að vera verk, sem
hann arfleiðir komandi kynslóðir
tflmttnu ' '&rrút: J Uútfi'/asuáf
^ il/2 éU/ / S2r /7&Cu úfff, (4cr*‘
ulír ntyt V rl£*u< JLstsuWf'
Rithönd Sighvats Borgfirðings. (Formálsorð að Prestaæfum).
að og á að varðveita það í sjálfu
Iláskólabókasafninu í Kaupmanna-
liöfn (ef það fer þá ekki nú til
Landsbókasafnsins í Reykjavík).
Sannarlega dáðist jeg að þessum
gamla manni, þegar jeg stóð þarna
í þröngu herberginu. Fyrir hvern
vann hann? Ekki fyrir frægðina.
— Það skyldi þá vera frægð eft-
irmælisins? Eða vann hann fyrir
mannkynið? Fátækur eins og Job
í þessu umhverfi, með óþjett torf-
ið yfir höfði sjer. Aldrei hafði
hann lært neitt, einungis rótað í
jörðinni .... Óþjett? Það var svo
lekt þetta torfþak, að þegar rigndi
varð hann að sitja hálfboginn yf-
ir handritinu, til þess að ekki
læki ofan á pappírinn, heldur of-
an á bakið á sjálfum honum“.
Skák
Haustmót Taflfjelags Rvíkur 1940.
Albinsbragð.
Hvítt: Hafsteinn Gíslason.
Svart: Guðmundur Ólafsson.
1. d4, d5; 2. c4, e5; (Albinbragð
er nú lítið teflt og gefur hvítu
betri stöðu ef rjett er á haldið.
Betra er 1. d4, Rf6; 2. c4, e5; hiu
svonefnda Budapestar-vörn.) 3.
dxe, d4; (Svart fórnar peði til
þess að opna stöðuna. Auk þess
torveldar peðið á d4 útkomu hvítu
mannanna. Svart hefir þó engin
tök á að ná aftur peðinu á e5,
nema á kostnað stöðunnar.) 4. a3,
(Betra er Rf3.) 4......R«6; 5.
Rf3, Be6; 6. Dc2, (Betra var 6.
Rbd2, Rge7; 7. g3, Rg6; 8. Bg2,
og síðan b4 og Bb2, með yfir-
burðastöðu á hvítt.) 6....Rge7,
7. e3, Rg6; 8. De4, pxp; 9. Dxp?,
(Hvítt hefir sennilega ætlað sjer
að leika seinna b4 og Bb2, en
eins og skákin teflist frýs biskup-
inn inni á cl. Miklu betra var 9.
Bxp, og svart á vandasama stöðu.)
9.....Bg4; 10. Be2, (Betra var
Rbd2.) 10....... Be7; 11. 0—0,
BxR; 12. BxB, Rgxe5; 13. Bd5,
0—0; 14. Rc3, Bf6; 15. Re4, He8;
16. f4 ? ?, (Á haustmótum eru menn
óæfðir. Það er eina skýringin á
þessum hræðilega leik.) 16......
Rxc4; 17. Df3, Rd4!; 18. Dh4, g6;
19. Bxf7-þ, (Ddl hefði veitt meira
viðnám.) 19.....KxB; 20. Dxp-(-,
Bg7; 21. Rf6+, Kf6!; 22. Dh4,
Rf5; 23. Dh3, (Staðan er nú ljett
unnin á svart.) 23......Dd4+!
24. Khl, He2; 25. Hbl, Hae8;
26. b3, Hel; 27. Df3, HxH; 28.
DxH, Dd3!; 29. Bb2, RxB; og
hvítt gaf nokkrum leikjum seinna.