Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.1941, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.1941, Blaðsíða 1
JftorðtinMadsíns 30. tölublað. Sunnudagur 27. júlí 1941. XVI. árgangur 1 >«fuldarpr«nUmlfl|B'k.r. Þegar Benedikt Gröndal lýsti náttúrugripasafninu „TIL VELFORÞJENTRAR MINNINGAR“ Fáir íslenskir rithöfundar hafa hrifið lesendur sína á sama hátt og Benedikt Grön- dal. En tiltölulega lítið er það, sem eftir þann mikla andans mann hefir birst og almenningi er kunnugt. - Rit- gerð sú, sem hjer birtist, kom út í skýrslu Náttúrufræðifje- lagsins, og einstök í sinni röð í því fásjeða riti. Er hún því endurprentuð hjer, lesendum Lesbókarinnar til skemtunar og fróðleiks. — En Benedikt Gröndal var einn af aðal- styrktarmönnum Náttúru- fræðifjelagsins fyrsta áratug þess merka fjelagsskapar og hafði umsjón með safni þess. Var Gröndal, sem kunnugt er, lengi æfi sinnar einasti starf- andi náttúrufræðingur lands, í því efni arftaki Jónasar Hallgrímssonar. — Þegar hann skrifaði eftirfarandi ritgerð var Náttúrugripasafnið geymt í stórhýsinu Glasgow, er brann skömmu síðar. Benedikt Gröndal. ¥ skýrslunni 1895—96 var laus- *■ lega skýrt frá þeim húsa- kynnum, sem safnið hefir orðið að nota nú um síðustu árin. Nú hefir stjórnendum fjelagsins kom- ið saman um að segja upp þessu húsnæði, en vjer erum samt, kringumstæðnanna vegna, bundn- ir við það eitt ár enn, eða til 14. maí 1899. Og af því vjer höfum nú orðið að hýrast þarna all- langan tíma, þá hefir í hjörtum vorum vaknað og vaxið einhver ástar- og vanatilfinning, eins og oftast nær verður, að menn verða elskir að þeim stað, sem menn hafa lengi dvalið á, þó að ekki sje hann sem ákjósanlegastur. Jeg skal því reyna að lýsa þessum bústað náttúrusafnsins til „velfor- þjentrar“ minningar, því tímans byltandi hönd mun bráðum hreyfa sig, þegar safnið er farið með alla sína þögulu íbúa, og þá munu ekki sjást nein merki til að þar hafi einhvern tíma búið þeir, sem ekki standa á baki blaðamanna, skáldsagnahöfunda, stjórnmála- spekinga, þjóðmálaskúma, Valtýs- sinna, aðskilnaðarurgara, ritsíma- ráðgjafa, rafmagnsrúttara, járn- brautajaplara og dannebrogsridd- ara. Er þá fyrst að segja frá því, að fyrst er komið að útistiga þeim, er liggur upp að norðurdyrum þeim í „Glasgow", sem ystar eru og fyrir utan og neðan leyndar- dóma náttúrusafnsins; sá stigi er allbrattur og minnir á orð Egils Skallagrímssonar í Arinbjarnar- drápu: „hróðr brattstiginn bragar fótum“ (ef Egill annars sjálfur hefir gert þetta í drápunni), þó að varla sje von á bragsnillingum eða ritsnillingum þar uppeftir; það skyldi þá vera ritstjórn ísa- foldar, því hún hefir sýnt það í 26. blaði núna seinast (4. maí 1898), að hún er ekki einungis heima í málinu, heldur og í dýra- fræðinni, með þessum snildarlegu orðum: „Það át hann tígrisdýr“. — Þetta mun vera það einasta,- sem sjest hefir náttúrufræðilegt í þessu blaði. Þegar menn nú eru komnir upp þenna stiga, þá stað- næmast menn á dálitlum fleti, eins og er sumstaðar uppi á fjölíum, sem Strabo talar um eftirminni-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.