Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1948, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1948, Blaðsíða 2
310 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS Guðni Jónsson, skólastjórí: ÁSHILDARMÝRARSAMÞYKKT Eríndi flutt við vígslu minnisvarða að Áshildar- mýri 20. júní 1948. Háttvirtu áheyrendur, hjeraðs- menn og gestir! Vjer erum komnir hjer saman til þess að minnast merkilegs atburðar frá löngu liðnum tíma, — atburðar, sem sýnir oss, að jafnvel á hinum myrku öldum ljensdrottnunar og kirkjuvalds lifði forn andi sjálfstæðis og rjettarvitundar í sveitum lands vors og þá voru til menn, — eigi síður en nú, — sem þorðu að birta vilja sinn og halda fram rjetti sín- uir. Þessi merkisatburður er Áshild- armýrarsamþykkt, sem gerð var á þessum stað sumarið 1496, þar sem lögfjettumenn og bændur, studdir af öllum almúga í Árnesþingi, rifja upp forn rjettindi landsmanna samkvæmt Gamla sáttmála og bindast jafnframt samtökum um að hrinda af sjer hvers konar yfirgangi og órjetti af hendi erlendra og innlendra umboðsmanna konungsvaldsins. Þegar íslendingar gengu Hákoni Hákonarsyn^ Noregskonungi á hönd árið 1262, gerðu þeir, sem kunnugt er. samning við umboðsmenn kon- ur.gs um rjettindi beggja aðilja. Þessi scmningur er hinn frægi og merki- legi Gamli sáttmáli, sem Gizur jarl Þorvaldsson hefir verið aðalhöfundur að og reyndist síðar hinn traustasti giundvöllur á að byggja í sjálfstæðis- baráttu vorri í höndum Jóns Sigurðs- sonar og samherja hans. 1 sáttmála þessum setja íslendingar eftirfarandi skilyrði af sinni hálfu, og er hjer fylgt þeim texta sáttmálans, sem tekinn er upp í Áshildarmýiarsamþykkt: 1) Að utanstefnur viljum vjer engar hafa utan þeir menn, sem dæmd- ir vérða áf Vorum mönnum á þingi burt áf láh'dinu 2) Að íslenskir sjeu lögmenn og sýslumenn hjer í landinu af þeirra ættum, sem goðorðin hafa upp gefið að fornu. 3) Að sex hafskip gangi á hverju ári til landsins forfallalaust með landsins nauðsynjar. 4) Erfðir skulu upp gefast fyrir ís- lenskum mönnum í Noregi, hversu lengi sem staðið hafa, þegar rjett- ur erfingi kemur til eður þeirra umboðsmenn. 5) Landaurar skulu.ng *»pp-gefast. Item skulu íslenskir menn sllkan rjett hafa í NoregL sem þeir hafa bestan haft. 6) Að kóngur láti oss ná friði og íslenskum lögum eftir því sem lögbók vottar og hann hefir boðið í sínum brjefum sem guð gefur honum framast vit til. 7) Jarl viljum vjer hafa yfir oss, á meðan hann heldur trúnað við yður, en frið við oss. 8) Halda skulum vjer og vorir arfar allan trúnað við yður, meðan þjer haldið trúnað við oss og yðrir arf- ar' og þessar sáttargjörðir, en lausir, ef rofið verður af yðvarri hendi að bestu manna yfirsýn. Þessi skilyrði íslendinga fyrir þegnskyldu við Noregskonung sýna ljóslega, að hjer var um samning að rx-ða milli tveggja jafnrjetthárra að- ilja. þar sem rjettur beggja er tryggð- ur með gagnkvæmum fríðindum. En annað er að gera samning og annað að halda hann. Þegar á næstu árum og áratugum eftir að landið gekk undir konung, voru öll merkustu á- kvæði Gamla sáttmála þverbrotin af hálfu konungsvaldsins, og bað engu að síður, þótt íslendingar endurnýj- uðu hann við hver konungaskipti, meðan samband íslands og Noregs hjelst, og gerðu ákvæði hans að skil- yrði fyrir hollustu sinni. -Það"er of langt mál að rekja þau samningsrof hjer, en þess verður þó að geta, að aðalrothöggið fjekk Gamli sáttmáli op þar með sjálfstæði íslendinga með lögtöku Jónsbókar árið 1281, — tæp- um tveim áratugum eftir að sáttmál- inn var gerður. Með samþykkt Jóns- bókar, sem íslendingar gengust nauð- ugir undir, náði konungur í sínar hendur öllum þremur meginþáttum vaidsins, ýmist að nokkru leyti eða að fullu. Konungur öðlaðist hið æðsta dcmsvald í málum íslenskra manna með því að dómi lögmanna mátti skjóta til hans, og jafnframt eign- aðist konungur sakeyri, það er bætur fyrir víg og aðrar meiri háttar mis- gorðir, og komast með þeim hætti srr.ám saman miklar jarðeignir undir konung. Ennfremur gat konungur með aðstoð valdsmanna ráðið mestu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.