Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1960, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1960, Blaðsíða 4
328 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Einar Þórðarson; Háífrar aldar minning LÚÐRAFÉLAGIÐ HARPA Lúðrafélagið Harpa 1915. Sitjandi: Einar Þórðarson, Stefán Guðnason, Sigurður Hjörleifsson, Kristján S. Sigurðsson og Guðmundur Kr. Guðmundsson. — Standandi: Axel Andrésson, Eggert Kr. Jóhannesson, Jónas Magnússon, Þorsteinn Xhorlacíus, Þórhallur Árnason, Elías Eiríksson, Ágúst Markússon og Vilhelm Stefánsson. UM þessar mundir eru 50 ár síðan Lúðrafélagið „Harpa“ í Reykjavík varð til. Tildrögin að stofnun þess eru í fáum dráttum þessi: Það var veturinn 1909—1910 að nokkrir ungir menn höfðu stofnað með sér söngfélag. Ekki hafði því verið nafn gefið en félagarnir voru víst 10 eða 12, og ekki hafði það fastar æfingar eða æfingastað, en kom sapian til æfinga þegar bezt- ur tími var til, og á þeim stað sem tiltækilegastur var í það og það skiptið. Oftast var það annað hvort heima hjá einum félaganna, sem hafði hljóðfæri, eða heima hjá söngstjóranum, sem var hinn ötuli og áhugasami söngkennari Hall- grímur Þorsteinsson. Mörg ágæt lög voru æfð og sung- in og eigum við sem tókum þátt í þessu margar ógleymanlegar minningar frá þeim tíma. Þegar leið á veturinn varð okk- ur ljóst að við gætum ekki haldið áfram þessum æfingum, mest vegna þess að nokkrir af félögun- um þurftu að hverfa úr bænum vegna atvinnu sinnar, en þó voru nokkrir sem endilega vildu halda áfram með eitthvað af líku tagi. Þá var það einhver sem sagði: „Því ekki að reyna að blása horn“. Við vissum að í vörzlu bæarins voru nokkrir lúðrar og tilheyr-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.