Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1960, Blaðsíða 1
29. tbl.
JMgiirjpieMaMjts
Sunnudagur 4. september 1960
bóh
XXXV árg,
Sumargisting í Hlíðardalsskóla
ÖLFUS er vestasta sveit Suður-
landsundirlendis, en einangruð
milli Ölfusár og fjalla. Sveitin er
í laginu sem skakkur þríhyrningur,
og innst í kverkinni er hið mikla
jarðhitasvæði, þar sem Hveragerði
hefir risið upp á seinni árum. Á
sléttunum vestan undir Ingólfs-
fjalli hefir risið upp eitt af mynd-
arlegustu nýbýlahverfum landsins.
En vestast í þríhyrningnum er
Hlíðardalsskóli. í þessari sveit hef-
ir því nýi tíminn haslað sér völl
um framkvæmdir. Annars var
sveitin þéttbýl áður, því að þarna
var hið ágætasta slægjuland, og
sýnist eins og einn akur þegar
horft er yfir það af Kambabrún.
Hér eru hinar kunnu Arnarbælis-
forir, þar sem var álíka uppgripa
heyskapur og í sjálfri Safamýri.
Norðan að sveitinni hefir náttúr-
an hlaðið voldugan skjólvegg, háar
hlíðar, sem ná vestur fyrir kirkju-
staðinn Hjalla og enda þar í svo-
kallaðri Skóghlíð. Verður þarna
hlið og fram úr því hefir Eldborg-
arhraun runnið, en vestan við það
taka aftur við slitróttar hlíðar og
undir þeim stóðu hinir svonefndu
Hlíðarbæir áður, Vindheimar,
Breiðabólstaður, Litlaland og
Hlíðarendi. Þessi byggð blasir við
sól og því er heitt þar þegar sólin
er jafn gjafmild á geisla og hún
hefir verið í sumar. Og hvar myndi
þá vera æskilegri staður til þess
að njóta sumarblíðunnar? í Hlíð-
ardalsskóla er tekið á móti sumar-
gestum, og þess vegna lögðum við
leið okkar þangað um miðjan
ágúst.
Farið er úr Hveragerði vestur
með hlíðunum, sem gnæfa hátt við
loft með dökkum klettabrúnum. Á
aðra hönd er samfellt graslendi
niður að Ölfusá, sem liðast þar
breið meðfram byggðinni og verð-
ur seinast sem stórt stöðuvatn yfir
að líta.
Hér eru sögustaðir hver af öðr-
um. Fyrst er það kirkjustaðurinn
Hjalli, þar sem Þóroddur goði bjó
og síðan Skafti lögsögumaður, son-