Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1963, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1963, Blaðsíða 1
LJÓÐ — Sigurður A. Magnússo n þýddi úr grisku KONUNGURINN f ASÍNU „Asínín te... ' (Ilíonskviða 11,560) Við svipuðumst um allan morguninn kringum virkið, byrjuðum skuggamegin þar sem hafið, grænt og glitlaust — brjóst á skotnum páfugli —, tók við okkur einsog tíniinn án nokkurrar sprungu. Æðar klettsins kvísluðust úr mikilli hæð, kræklóttir vínviðir, naktir, f jölgreinóttir, sem lifnuðu við snerting vatnsins, meðan augað sem fylgdi þeim reyndi að losna undan lýjandi rugginu og missti sífellt mátt. Sólarmegin langdregin strönd alauð og birtan slípaði demanta á háum múrum. Ekkert lífsmark, villidúfurnar flognar og konungurinn í Asínu, sem við höfum leitað í tvö ár, ókunnur. gleymdur af öllum, jafnvel Hómer, aðeins eitt orð í Ilíonskviðu, jafnvel það óvisst, fleygt hingað einsog gullinni helgrímu. Þú komst við hana, manstu hljóðið? Tómaliljóð í birtunni einsog þurr leirkrús í uppgrafinni moldr sama hljóð í sjónum eftir árar okkar. Konungurinn í Asínu: tóm bakvið grímuna, allstaðar hjá okkur, allstaðar hjá okkur, bakvið eitt nafn: „Asínín te ... Asínín te ... “ og börn hans styttur og þrár hans vængjablak fugla og vindurinn í sprungum hugsana hans og skip hans bundin í horfinni höfn: bakvið grímuna tóm. Bakvið stór augu, bogadregnar varir, lokka, (upphleypt á gullofinni ábreiðu tilveru okkar) myrkur díll sem ferðast einsog fiskur í morgunstillu hafsins og þú sérð hann: tómið umlykur okkur. Og fuglinn sem flaug í vetur leið með brotinn væng, hlíf lífsins, og unga konan sem fór til leiks við hundstennur sumarsins, og sálin sem hljóðandi leitaði undirheima, og landið einsog stórt blað af hlyni sem straumþungi sólar sópar áleiðis ásamt fornum minjum og nútímasorg. Og skáldið tefur, virðir fyrir sér steinana, spyr: skyldu vera til innanum þessar skemmdu línur, brúnir, odda, dældir, boga, skyhlu vera til hér á þessum krossgötum regns, vinds og eyðingar svipbrigði, vottur um viðkvæmni þeirra sem smækkuðu svo kynlega í lífi okkar, þeirra sem héldu áfram að vera skuggar af bárum og hugsanir án endimarka einsog hafið, eða kannski, nei, ekkert varð eftir nema þunginn, þráin eftir þunga lifandi veru þar sem við bíðum nú verulausir, bognum einsog greinar óttalegs pílviðar sem er hrúgað í endalaust vonleysið meðan gulur straumurinn færir í kaf reyrstöngla rótslitna í eðjunni, ímynd forms sem marmaraðist fyrir ákvörðun eilífrar beiskju: skáldið tóm. Hækkaði skjölduð sólin í stríðshami sínum, og felmtruð leðurblaka úr innum hcllisins lenti á ljósinu einsog ör á skildi: „Asínín te ... Asínín te ... “ Ef aðeins hún væri konungurinn í Asínu sem við höfum leitað svo rækilega á þessari háborg, og stundum þuklað með gómunum sjálfa snerting hans á steinunum. Úr „GCÐSÖGU" i. Boðberans biðum við óþreyjufullir í þrjú ár og gáfum nánar gætur að furunum, ströndinni og stjörnunum. Samcinaðir plógjárninu og skipskilinum reyndum við að finna aftur fyrsta fræið, að ævaforn harmleikurinn mætti hefjast á ný. Við komum að heimilum okkar í rúst, með lemstraða limi, munninn skemmdan af remmu ryðs og seltu. Þegar við vöknuðum héldum við í norður, útlendingar sveipaðir þokum af flekkfausum vængjuin svana sem særðu okkur. Á vetrarnóttum ærði okkur sterkur austanvindur, á sumrin týndumst við í kvöl dags sem gat ekki dáiS. Við snerum aftur með þennan myndskurð auðmjúkrar listar. Framhald á bls. 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.