Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1968, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1968, Blaðsíða 3
Vanmegna vaengir Ikarosar Yfirlit yfir króatiskar bókmenntir 20. aldarinnar Eftir Antun Soljan — Fyrri hluti Duiirovnik sem nú er einn frægasti ferðamannastaður Júgóslavíu var í lok miðalúa sjálfstætt borgríki með háþróaða listastarfsemi. í króatískri bók- menntasögu nefnist þetta tímabil fyrra endurreisnartímabilið og er til þess vitnað í greininni. c -’káldskapur, eirðarleysi hinna o- teljandi, síbreytilegu smáheima, ótæm- tndi uppspretta andans, hefur allt frá upphafi verið tjáningarform hins óbug- andi en óvopnfimi uppreisnarmanns, persónulegt viðbragð gegn hinum járn- harða veruleika. Og enn þann dag í dag er skáldskapurinn einhvers konar vörn gegn kaldranalegri stjörnufræði rútímans. Að vísu tölum við oft um tákn og skipan stjarnanna, einnig í skáldskapnum, en hingað til hefur ekki verið gert kort af himinhvolfinu eins og það lítur út í mannshuganum, og verðui ekki um ófyrirsjáanlega fram- tíð. Við lifum á vísindaöld: öll okkar hugs un er gegnsýrð af rökhyggju vísind- anna: en þegar kerfisbundnum aðferð- um vísindalegrar rökvísi er beitt við bókmenntarannsóknir og gagnrýni, með því einfaldlega að nota samlíkingar fengnar að láni frá stjörnufræðinni, er- um við ekki þar með að beita skáld- skapinn ofríki, nauðung? Er ekki ein- mitt skáldskapurinn, þessi einmanalega rödd hrópandans, hin eina sannmann- lega vörn gegn ofríki vísindanna? Til dæmis er ég mér þess óljóst með- vitandi, að þegar ég fjalla um króatísk- an skáldskap 20. aldar og spyr sjálf- an mig, hvort þessir blómlegu skáld- skaparheimar eigi ekki eitthvað sameig ínlegt, eitthvað eitt, eitthvert þjóðlegt og tímabundið kerfi, sem geri okkur kleift að líta á hann sem sérstæða heild (eins og t.d. verk ákveðins höf- undar), þá hef ég tilhneigingu til að draga hann saman í einn stakk, veita honum í einn farveg og leita einhvers, sem er í rauninni andstæða þess, sem ég ætti að leita: því að í eðli sínu er skáldskapurinn svo fjölbreyttur, svo roargvíslegur og persónulegur, svo mót- aður af sérstæðum og óstéttbundnum höfundi sínum, þessum einmana könn- uði hugarheimsins. II. Íí við ætlum að reyna að benda á eitthvert séreinkenni skáldskapar aldarinnar, þá viljum við fyrst og fremst vekja athygli á vöntun hans á samnefnara. Stofninn kvíslast í ótal- margar greinar: hann minnir á þjóð- sagnartréð, sem sæfarendur til forna nefna í ritum sínum, án þess að kunna nokkur skil á eðli grasafræðinnar. Ræt- ur þessa trés kvíslast yfir landfræðileg umbrot og áföll þjóðarsögunnar og teygja sig aftur í tímann til hinna fornu króatísku bókmennta Dalmatíu og Dubrovnik — aftur til hinna nafn- lausu alþýðusöngva, til kirkjusöngv- anna og sagnanna, sem voru færðar í arabískt letur. Ef til vill hafa þessar rætur rýrnað eða dáið út á mismun- andi tímum, en síðan skotið út öngum á ný, þegar hlé varð á þurrkum og of- viðrum sögunnar. Lok síðustu aldar var eitt þessara dauðu tímabila, allt var í stöðnun. Það skorti hráefni til að vinna úr. En síðan heíst nýtt tímabil, sem nær alveg fram á okkar daga, og við nefnum „Annað endurreisnartímabilið“ (til að greina það frá hinu fyrra). Þar rís hæst skáld- jöfurinn Kranjcevic. Athyglisverð skáld setja svip sinn á þetta tímabil, og það ct án efa eitt blómlegasta tímabil kró- atískrar bókmenntasögu. Skipulagning þess og uppbygging er frábær, og það sem setur svip á það, eru stórkostlegar framkvæmdir jafnhliða almennum bók- menntalegum hvörfum. Þetta er stutt tímabil — u.þ.b. 50 ár — en þar sem það er svo nálægt okkur í tímanum, höfum við tilhneigingu til að hluta það í sundar í stutt tíma- bil: enda þótt margháttaðar tilraunir í þá átt séu réttlætanlegar að vissu leyti til þess að auðvelda mönnum bók- menntalegar rannsóknir, þá er ég samt þeirrar skoðunar, að forsendur slíkra tilrauna séu fremur sprottnar af öðr- um rótum en bókmenntalegum — það er talað um heimsstyrjaldirnar, skipt- ingu ríkja, uppreisnir, kalda stríðið. Og það er þess vegna, sem ég hef hvað eftir annað lýst mig mótfallinn orða- lagi eins og „milli heimsstyrjaldanna“. Þessi skipting er mjög sambærileg því. þegar talað er um kynslóðaskipti: slík skipting getur auðveldað manni yf- irsýn yfir tímabil, en engin skipting má svipta okkur meðvitundinni um innri anda, gildi ótímabundinna mannlegra verðmæta né lífstilgang. Sama máli gegnir — svo við höldum okkur við vísindalegar nafngiftir — um uppbygg- ingu annars endurreisnartímabilsins. Ef líðandi öld fær að renna sitt skeið til enda, þá mun fyrri helmingur hennar birtast okkur sem ein órjúfanleg heild, alveg eins og okkur birtast í dag Rag- uso—Dalmatíu bókmenntirnar. Eitt af því, sem helzt einkennir annað endurreisnartímabilið er hin króatiska þjóðernishyggja, sem er sam- ofin pólitískum undirróðri og baráttu: pólitískrar afstöðu og markmiða gætir mjög í skáldskapnum. Hinn þjóðlegi endurreisnarandi vakti einnig upp nýj- an áhuga á eldri bókmenntum og birt- ist í aukinni málmeðvitund, þannig að fleiri höfundar tóku að leggja rækt við sitt eigið mál fremur en latínu eða í- tölsku. En á sama tíma gætti einnig sterkrar hreyfingar í átt til alþjóða- hyggju — eða a.m.k. Evrópuhyggju, og sú staðreynd sýnir enn, að einungis sjálfstætt samfélag, lifandi menning, getur verið i bræðralagi við aðra, því að þátttaka í slíku bræðralagi þýðir ekki glötun sjálfsins heldur staðfest- ingu þess. Jafnframt því sem skáld- skapur okkar er persónulegri, þjóð- legri, er hann um leið evrópskari. Enda þótt króatisk nútímaskáld virð- ist um margt alþjóðlega eða evrópskt sinnuð, og enda þótt þau aðhyllist aug- ljóslega nútímalegar skoðanir, framúr- stefnur og öfgafullar tilraunir, hafa þau hvað eftir annað sýnt, að það eru ekki hershöfðingjarnir, heldur skáldin, sem hafa haldið lífinu í fólkinu í bar- áttunni fyrir tilveru sinni: við sjáum, að skáldin leita stöðugt uppruna síns, hinn ar þjóðlegu hefðar: þau kanna frum- þætti stjórnmála og þjóðaruppeldis, þau eru tilfinningalega og ákaflega þjóð- leg: þau eru í fremstu víglínu menn- Framhald á bls. 14 Egill Jónsson: Úr raudum djúpum Með dimmum þyt og þungum úthafsniði, hljóðlega, rautt, og heitt af heiðnum seiði um æðar þínar hnígur blóð þitt með kynslóða kvöl í kornum sínum, fangi þröngra leiða að flæði ei í sand að sínum vilja, en dvelji og dreymi í rauðum djúpum — drekki sinni þrá í heitum hyljum. 31. marz 1968 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.