Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.1968, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.1968, Blaðsíða 1
 Ludvik Vaculík, höíundur „Tvö þúsund orða" flutti fyrirlestur þann, er hér birtist úrdráttur úr, á rithöfundaþingi í Prag í júní 1967 Þessi úrdráttur birtist í BLM í Stokkhólmi í október sl. án leyfis höfundar og þaðan er greinin tekin. LUDVÍK VACULIK: UM VALDIÐ Ég vil nota þetta tækifæri til að segja ykkur dálítið, sem þið að visu vit- ið fyrir. Ég vil þara leggja ofurlítið í belg. í ályktunartillögunni stendur, að tilgangur sósíalísks kerfis sé að gera kleifa samhæfingu mannsins, er staða hans sem borgara hefur verið tryggð. Borgari: einu sinni vax þetta virðu- legt, byltingarkennt orð. Það táknaði þann mann, sem enginn gat takmarka- laust ráðið yfir, þann mann, sem að- eins var unnt að stjórna með svo lipr- um aðferðum, að hann hefði á tilfinn- ingunni, að hann stjórnaði sér næstum sj álf ur. Takmark þeirrar yfirlætislegu vinnu- sérhæfingar, sem kölluð er stjórnmál, var að laða fram þessa hugsun hjá þeim sem stjórnað var. En í raunveru- leikanum verður borgarinn sem stjórn- ar sér sjálfur, áfram eins konar goð- sögn. Marxísk gagnrýni á valdið leiddi í ljós áður ókunn tengsl milli drottin- valdsins og eignar framleiðslutækjanna. Þessi þáttur, ásamt með skilningi á sögu mannsandans sem sögu stéttabaráttunn- ai', lagði grunn undir þjóðfélagslega byltingu, og menn væntu sér með henni lausnar á vandamálinu í sambandi við valdið. Þjóðfélagsleg bylting heppnaðist hjá okkur, en vandamálið í sambandi við valdið er enn fyrir hendi. Þótt við höfum tekið í hornin á bola og höldum honum, er alltaf einhver, sem sparkar í sífellu í bakhlutann á okkur og vill ekki hætta. Það sýnist sem valdið eigi sér sín eig in órjúfanegu lög um þróun og fram- komu, án tillits til hver með það fer. Yaldið er sérstætt mannlegt fyrirtorigði að því leyti, að jafnvel í litlum hópi verður einhver að stjórna og einnig í hópi hinna mestu andans manna verð- ur einhver að taka saman árangur rök- ræðna og leggja hann fyrir. Valdið er sérstakt ástand. Það kemur bæði hart niður á þeim sem stjórnar og hinum sem stjórnað er. Þúsund ára reynsla af valdinu hefur knúið mannkynið til að reyna að skapa sér ákveðin starfslögmál, þar sem er hið formlega lýðræðiskerfi með tilfærsl um, sjálfvirkum straumrofum og stillt- um tímafrestum. En inn í hin eiginlegu stjórnkerfi grípa áhrif manna sem eiga yfir að ráða hráu afli, reistu á fjár- magni, vopnaeign, hagstæðum ættar- böndum, framleiðslueinokun o.s.frv. Lög málin 'hindra þvi ekki hið illa, og ofur- litil lagfæring á þessari staðreynd get- ur leitt til þeirrar almennu fullyrðing- ar, að reglur hins formlega lýðræðis séu undirrót alls ills. Þessar reglur eru samt í sjálfu sér hvorki kapítalískar né sósíalískar, þær segja ekki fyrir um hvað gera skuli, heldur hvernig teknar skuli ákvarðanir um það sem gera skal. Það er mannasetning, sem raunveru- lega ver stjórnvöldin. Hún verndar und irsátana, en forðar ríkisstjórnum frá byssukjöftum, ef þær skyldu falla. Þetta formlega lýðræðiskerfi tryggir síður en svo styrka stjórn, en það sannfærir menn um, að sú næsta geti orðið betri. Sem sagt, rikisstjórnir falla, en borgar- ar endurnýjast. Og öfugt, þar sem rík- isstjórnir sitja langi, fellur borgarinn. Hvar falla borgararnir? Ég vil ekki skemmta óvinum okkar með því að segja að þeir falli á aftökupallinum. Það á ekki við nema um nokkra tugi eða fá hundruð borgara. En vinir okkar vita líka, að það er nóg. Því að í kjölfarið getur fylgt ótti allrar þjóðarinnar, afskiptaleysi um stjórnmál og borgaraleg auðsveipni, smá vægilegar dæguráhyggjur og auvirði- legar óskir, hlýðni við sísmækkandi yf- irmenn; í stuttu máli: undirgefni af svo framandi og torkennilegri gerð, að mað ur getur ekki einu sinni útskýrt hana fyrir erlendum gestum. Ég tel að engir borgarar séu lengur til í þjóðfélagi okk ar. Ég hef mínar ástæður fyrir þessu áliti mínu, ástæður sem safnazt hafa saman á umliðnum árum í starfi minu við tímarit og útvarp. Ég skal gera nán ari grein fyrir einni nærtækri ástæðu: þessi ráðstefna kom ekki saman á þeirri stundu sem aðilar samtaka okkar höfðu tiltekið, heldur þegar „foringinn" gaf velviljað samþykki sitt eftir nákvæma yfirvegun. Til endurgjalds væntir hann þess í samræmi við þúsund ára reynalu sín'a, að við lofsyngjum drottinsæft hans. Ég legg til að við gerum það ekki. Ég legg til að við gaiuimgæfum ályktun okk- ar og sláum striki yfix öll menki undir- gefni. Með þeim þjóðum, sem virða menningu sína í gagnrýni á ríkisvaldið, hvílir einmitt sérstök skylda á rithöf- undum, að þeir gleymi ekki alþýðlegu fóstri sínu. Ég legg til, að hver sá er hér á eftir að taka til máts, komi með tillögur og geri grein fyrir skilningi sinum á einhverju því máli sem þjakar hug hans. Við skulum taka fullan þátt í borgaraleiknum, fyrst okkur er leyft það og við höfum fengið þennan leik- völl, og við skulum haga okkur eins og við værum fullorðnir og myndugir næstu þrjá daga. Hér tala ég sem borgari ríkis, sem ég mun aldrei yfirgefa, en get þó ekki búið ánægður við. Ég hugleiði borgara- leg málefni, en er þó í erfiðri aðstöðu: ég er líka félagi í kommúnistaflokkn- um og hvorki má né vil tala um flokks- málefni hér. En málum er svo komið hjá okkur, að sá hlutur er varla til, Ludvík Vaculík. að hann geti ekki á einhverju stigi um- ræðna verið flokksmál. Hvað á ég að gera, þegar hvor tveggja, flokkur minn og ríkisstjórn mín hafa gert allt til að sameina starfsemi sína. Persónulega álít ég báðum koma það illa. Það skapar okkur borgurunum sem hér erum sam- an komnir, erfiða aðstöðu. Flokksbundn ir menn mega ekki tala um viðkvæm mál við óflokksbundna, og þeir hafa aftur ekki aðgang að einu mannfund- um, þar sem þau mál eru rædd opin- skátt. Bæði hinir fyrr og síðar nefndu búa við skerðingu á grundvelli borgara legs frelsis — að mega talast við eins m og þeim sýnist. Hugsanlega er þetta Herflutningur Rússa frá Tékkóslóva kíu á dögunum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.