Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1975, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1975, Blaðsíða 2
í fjórðu bók höfundarins, „Svipum dagsins og nótt", er keimlikt sam- band milli efnis textanna og niður- röðunar þeirra og er I „Fljótt, fljótt, sagði fuglinn", en ferðaþættirnir eru sagðir i fyrstu persónu, skoðandinn er Thor sjálfur beinlínis. Munurinn á þessari bók annars vegar og hinum tveimur hins vegar er litill; meiri óþreyju gætir i hinum siðari, auk- innar þjálfunar i að láta andstæður tala eigin máli. Samt er eins og Thor hafi fundið hljómgrunn sinn á þeim átta árum sem liðu milli þessara bóka: i hinum siðari koma fram mót- hverfur i tilfinningalifinu, sem gæða heildir nýrri hljómvidd og alvöruna meiri sannfæringarkrafti, i „Svipum dagsins og nótt" er tjáningin flatneskjuleg. Þar er alráð hin yfir- lætislega dramatik hnignunarinnar, sem setur mestan svip á ítaliulýsing- ar Thors yfirleitt, svo mjög sem hann skrifar um þá þjóð — samanber „Andlit í spegli dropans" — hún kemst helst til skila, er hann lýsir þvi aðdráttarafli sem hélog á gröf hins rómverska heimsveldis hafa á hann, listafólk í orsakalögmálslausri hjá- veru, hið Ijúfa lif og tötrughipjur, svartklæddar, ótimabundnar, öng- strætanna í Napoli eða Orviedo. List getur ekki verið algerlega neikvæð, hin sannverðugasta yfirlýsing um fá- nýti er öskur. Né heldur getur hún sótt tilefni sitt eingöngu til annarrar listar, lifgjafi hennar og svipmótandi er kvika lifsins i liðandinni, og þang- að verður hún einnig að skila sér aftur til að lifhringur hennar sé full- kominn. Ég hygg, að þau umbrot sem urðu á sjöunda áratugnum, er markaðsgengi unglinga var uppgötv- að og stúdentar snerust gegn nyt- semihyggju (pragmatisma); kröfur um aukin, skapandi umsvið, sem síðan hafa rótfest, hafi lokað lifhring verka Thors. Þegar á allt er litið eru hin lengri verk hans ritgerðir um sköpunarmátt, sem ekki fær notið sin sem gáfa. hin styttri, greinar og satirur, athugasemdir um hvers vegna svo er ekki, hin stystu, hin fyrstu uppgötvun og sannanir um sköpunarmáttinn. Þennan viðauka, sem kemur að innan á það, sem fyrir er, og þarf að samræma þvi og tengja vitsmunalega annarri mann- legri viðleitni, svo að ekki sé ofbeld- islegt, sé gáfa umfram mátt; þessar hugmyndir og imyndir, sem einstakl- ingur hrærist i er hann hefur fundið að tengdar verða með nýjum hætti, og hinar, sem skynfæri hans varpa i sifellu á spegla vitundar hans og hann finnur að hann getur formað af huggerðir með tækjum sem hefðir ætla listum, litum, tónum, skáldlegu máli: viðauki, sem ekki nýtist meðal fólks er lifir í búrum stirðra túlkunar og virðingamynstra. Á eftir „Ópi bjöllunnar" kom „Folda," þar skrifar Thor skýrslur um slik búr. Með þremur skýrslum fjallar hann um lifnaðarhætti i ís- lenska þjóðfélaginu og ritmátinn er til muna úthverfari og þar með aðgengilegri en hinna bókanna. Skýrslurnar eru satiriskar eftirherm- ur á stílsháttum og hver þeirra um leið háðskrif um sérstakan ferða- máta. Sveitamanna. sem sjá allt slungið rosaljósum þjóðsagna, barnakennara, sem sér hvaðeina er á vegi hans verður og þó hann fari kringum hálfan hnöttinn, I Ijósi þjóð- ernislegrar umbótahyggju, ungra, nýgiftra hjóna i íslenzka velferðar- þjóðfélaginu, sem neyta alls er á vegi þeirra verður. Og búrin rim- kveðskapur og þjóðsögur, ung- mennafélagshugsjónir aldamótaár- anna siðustu og hagvæðing „frjálsr- ar" samkeppni. Thor hefur gert sinu búri nægileg skil i hinum fyrri bókum og með þessari gerir hann glögglega gíóm tyrir virðingastirðnun sam- landa sinna. Að gera lif sitt að táknmáli hlýtur að vera mjög vandasamt. ftalia hug- arins (Thors) er talandi tákn um lykt- ir annarrar menningar, en þeirrar rómversku, þeirrar, sem við lifum, hinnar kristnu, en þrálát hugartengsl við tákn yfir ónýt menningakerfi kæfa raunvisi hugarins, líkt og þau myndu sjálf gera, og sekkur mönn- um með þeim. Það svið, sem verkin veita innsýn á, er neikvætt, að minu áliti, en ekki að öllu leiti: hinar listrænu andstæður (kontrastar) milli þess og mannsins óhjúpaðs — skáldsins i trúustu merkingu þess orðs — fá jákvæða útrás i brodering- um og kampavinsfreyðanda tilfinn- inga og virðast I senn ábending og bein sönnun um það, sem lifa eigi i manni. Stjórnleysið er milliþáttur lykta og upphafs i fáránleik menn- ingarsamiífs þessara ára, sem til- urðartími verkanna spannar; ögur- stundarinnar og kemur fram á þess- ari mælistiku, sem Thor hefur smiðað. 2. Thor hefur gaman af að ferðast með járnbrautarlestum, sú ánægja hans kemur skýrlega i Ijós við lestur fimmtu bókar hans „Undir gerfi- tungli", þátta frá ferð hans til Sovét- rikjanna (útg. '59) Að sitja svo klukkustundum skiptir við taktfast- an slátt frá lestarhjólunum; hinar tiðu loftþrýstingsbreytingar lestar- klefans; birtuskot frá glugga; slökun inn i tómleika næturinnar á ókunn- ugri járnbrautarstöð; að lesa lifssög- ur úr andlitum umhverfis, sem þau eiga og hafa ekki selt að birtingar- réttinn. Erfitt finnst mér að kenna þessarar ánægju með honum (mér ieiðist að ferðast með járnbrautar- lestum). En eftir þvi sem mynd hans úr lestarklefa verður fyllri tekur maðnr 55 kSMÍiá líkárí samstöðu við tilvistarspekilegan mótleik gegn leiða, tómleika og allsherjarmeining- arleysi, hvort sem það er afstaða Thors eða ekki, hið existentialiska, og finnur, að maður er sjálfur farþegi i lest timans, án þess að vita hvað og getur i mesta lagi gert sér sögu úr töktum samfarþeganna. f hillingum frásagna þessarar bókar reka isbjörg félagsraunsæis um mannlffshaf, bragandi í litatrefjum frá mynd- hverfli hins skapandi hugar höf- undar, sem hvergi beitir kaldri skyn- semi sjálfs sfn heldur kýs að etja saman kenningum. kannski i þeirri von að þær brjóti hver aðra, likt og Ijósti saman borgarís og leiði opnist, sindri hugskerpu slái á fssalla mulins frera: safnar hugmyndum, eins og alltaf, og byltir þeim inn i textann. Bókin kom út undir lok timabils mikils uppgjörs meðal sósialista, hér heima og I öðrum löndum, á skoðun- um sinum en er fjarri því að vera rit af þvi tagi. Þegar höfundur má vera að þvi að lita upp frá ævintýrum augnabliksins, er það til að segja fréttir eða glósa samlanda sina fyrir þröngsýni. Hann stendur I brenni- punkti sálrænna umbrota þessara ára og i fljótu bragði virðist hann taka þvi af furðulegri rósemi. Bókin er gædd ástriðufyllstu lifi I endur- sögn á ævintýri. Við vangaveltur eins og þessar leiðir andrúmsloft bókarinnar hug- ann ósjJ'frátt að þvi ástandi, sem rikjandi var I bókmenntamálum is- lendinga á þessum tima. Þá var borgaralegt sérgæði og hræsni enn fráleitara en nú er. Þá dugði rit- færum efnishyggjumönnum og húmanistum, ef þeir vildu kallast nýjungamenn, að vera meðreiðar- sveinar sósialista að breskri og franski fyrirmynd. Þá áraði illa fyrir löggildri gerræðisstefnu til jafnaðar I Sovétrikjunum. Vel meinandi skyn- semihyggjumenn stóðu agndofa frammi fyrir „sönnunum", sem i heild sýndu að óræð kerfi eru mun iifseigari en hin rökvisu, þeir sáu gegnum þunnan hjúp marxiskar hag- fræði hið austrómverska keisara- Thor Vilhjálmsson. Hluti af frum- teikningu Baltasars að portrettinu, sem nú er i eigu Listasafns Kópa- vogs. dæmi afturgengið i þriðja sinn og hafði hafist af lögfræðilegum valda- stofni á trúfræðilegan hinnar grisk- kaþólsku kirkju og síðan erfðalegan hins rússneska keisaradæmis og þá gerræðis stalinismans: haft var á orðspori að hugmyndafræðilegum andstæðingum hefði i áratugi verið haldið i þræikun i Siberlu I nafni jafnaðar og réttlætis og að Stalin — sem þýðir maður úr stáli — hefði hagað sér á valdastóli ekki ósvipað og hinn kristni keisari rómverska keisaradæmisins Konstantínus mörgum öldum fyrr, beitt kenning- unni til að styrkja kerfi, sem starfaði I gegnum hann. Ungverjaland var lagt undir járnhæl Stalins '56. Sjálf- ur varð maðurinn innan f skelinni vitskertur, samkvæmt lýsingu Solzhenitsins og dó um þetta leyti. Gerræðissósialistar hér uppi á fs- landi höfðu bundist tryggðaböndum rikinu i austri, þessari raungerð kenninganna samkvæmt yfirlýsing- um I Ráðstjórnarríkjunum, þessari útkristöllun hugsana Marx og Lenins, sem verða étti að fyrirmynd- arriki og þaðan sem leiðsögn skyldi berast mönnum hvarvetna i heims- byggðinni um villugjarna ranghala sögulegrar nauðsynjar. En meðreiðarsveinar bundust sósialistum. Þeir sviptu burt öllum dulunum nema einni milli draums og vöku, skáldskapar og veruleika, óra og kenninga, sem öll meðvituð við- leitni hlítir. Þeim nægði að hengja sig utan á einhvern skoðanafastan, heilsteyptan, sterkan og skáka í skjóli þess persónuleika. Búa til blæ- brigði við hugsanir annars manns. Kannski er skáldskapur ekki annað. Að nokkru minna þessir hjúpuðu hvatningsmenn á hirðskáldin gömlu, sem fæst myndu vist hafa viður- kennt að þau áttu drjúgan þátt i grimmdarverkum og stórorustum með þvi að upphefja hugmyndir kon- ungs og hirðmanna um sig sjálfa, að nokkru á eiginkonu, sem eggjað hef,- ur manh sinn til átaka og saklausust er þá stund, þegar hann fellur sprunginn að fótum hennar. Vissu- lega eru verk min f og með pólitisk, segir meðreiðarsveinninn og sam- samar sig þeim, sem lifir í kenning- unni, i næstu andrá tekur hann undir með Goete, skáldinu þýska, og segir sakleysislega: „Grá er öll kenning." Þótt ekki hafi liðið nema augnablik, hefur hann vixlað yfir innra með sér og talað fyrir munn tveggja persónu- gerfa. Sú flokkun stjórnmálakenninga, sem sett hefur verið undir heitið sósfalismi, er að auki hentug aðferð til réttlætingar óheillyndis, ef hafður er á fyrirvari um fjarlæga framtið: þjóðfélagið er svo gjörspillt að manni er ógerlegt að vera samkvæmur sér. Við getum hugsað okkur, að með- reiðarmennskan þyki siður en svo æskileg, en hún sé framkvæmd sem liður i stigminnkandi óheillyndi, uns upp renni sá tfmi annars og betri sóslalisma, er séreðli hvers einstaks manns er i vægi við félagsvitund hans, rökvis tengsl milli hans sjálfs og hugar hans, hugar og handa. Slðan hendir það, að viðkomandi týnir fyrirmynd sinni, flokknum eða leiðtoganum, og um leið sjálfum sér — þvi að hann hefur i imynd sinni um sig sjálfan verið þeir eða einhver þeirra; aðlagast við skrifin þessari sjálfsimynd og myndað sér starfs- venjur út frá henni. f sjálfu sér er eftirsóknarvert hverjum skoðana- hópi að eignast slíkar málpipur; það er kallað á höfunda úr hópi reið- manna. Forkólfur surrealismans André Breton leiddi á sinum tima sein- þreyttustu fylgismenn sina til fylgi- lags við kommúnisma en gamalgróin viðring frakka fyrir heimspeki var þó of rik i þessum höfuð andstæðingum skynsemihyggju, til að þeim væri slíkt fært án þess að axla um leið þá ábyrgð, sem þvi fylgir frá sjónarmiði vits og skynsemi. Til þess að með- reiðarmennska á islenska vísu sé framkvæmanleg þarf alveg sérstak- lega lágkúrulegt ástand menningar- mála, einskonar langþróaðan alls- herjarjöfnuð lágkúrunnar. Lenst af hefur hið þjóðernislega viðmót íslendinga í garð starfandi höfunda verið að ætla þá i senn nafn og tilvistarlausa, einskonar loftver- ur. Enn fremur hafa I bókmennta- málefnum ilenst frá upphafi aldar- innar kröfur til rithöfunda um að þeir starfi með verkum sinum að féiags- legum umbótum, kröfur, sem standa i beinu sambandi við baráttu fyrir löggildi islensks ríkisfangs. Þegar þrennt er haft i huga, verður skiljan- legra, hve ginnkeyptir islenskir rit- höfundar hafa verið fyrir fræðilegri, sósialistiskri umbótastefnu allt frá því hún skaut rótum i landinu snemma á öldinni, þetta og að ekki hefur verið um aðra að ræða. Sósialismi hefur náð að gjöroka bók- menntir sfðan, svo að jafn vel þeir, sem teljast pólitiskir andstæðingar hans leggja hann og viðleitni til skáldskapar að jöfnu. Fyrir vikið hef- ur bókmenntum undið fram með frá- munanlega einhæfum hætti. Að undanskildum fáeinum, sem hafa dagað uppi í tröllaslag forneskj- unnar og ihaldsömum fagurkerum, sem óhugsað fylgja forskriftum aldarinnar siðustu, virðast rithöfund- ar skrifa eftir formúlu, þeirri, að grár skuli allur skáldskapur. Um sögurnar gildir, samkvæmt formúlunni, að lýsingar allar skulu vera hversdags- legar og sem minnst af skáldlegum tilþrifum; söguhetjur skulu vera lág- launafólk og skúrkar fjáraflamenn, stundum menntamenn. Allt skal vera á ytra borði, samkvæmt orð- anna hljóðan, og ofur skiljanlegt og dulhyggja vegvisir vondra manna. Saga skal hafa stigandi og lyktir i þeim skilningi, að hún með framrás sinni leggi dóm á lifsskoðanir aðal- persónanna, geri annað tveggja að sanna gildi þeirra eða fáfengileik. Persónunum er búinn örlagavefur, sem þær engin áhrif hafa á sjálfar og eru sér ekki vitandi um; vefinn skal ekki sýna með verkinu öðru visi en óbeint: ekki færa hann i tal og þá ekki sýna tilþrif með verkinu. Nyt- semihyggja gerði fað hætt var að taka mark á rituðu máli, ef það var ekki á skýrsluformi, og mælskulist, sem hafði um mjög langt skeið verið helsta einkenni stjórnmálalegrar framsögu, hvarf en skaut upp aftur siðar i Ijóðum, sem um leið sprengdu af sér hefðbundin form og urðu litið annað en mælskan. Og boðskapur- inn var hjá flestum hinn sami. Tind- ur upp úr plógfari sósialistisks elju- manns. Á striðsárunum siðari varð svo national-sósialismi til að opna hið islenska þjóðfélag með móthverfum og þrátthyggnum (dialektiskum) hætti fyrir áhrifum úr annarri átt: opnaði það fyrir kapitalisma. Ný hugmyndafræði og hagvæðing, ólik þeirri marxisku, gerðu hina sósial- isku höfunda enn háðari fyrirmynd- um sinum um túlkanir á veruleikan- um, þar eð tilveran varð nú tor- skildari. Gullæði greip þjóðina, — fólk af öllum toga tók til sinna eigin ráða við að afla sér lifsviðurværis. Það tókst með ágætum. Það stóð hins vegar i forkólfum sósialismans hér á landi sem annars staðar að túika ör umskipti og tengja skýring- arnar rómantiskri söguskoðun sinni (það hefur staðið i innlendum fram á þennan dag og hafa ekkert bitastæð- ara fundið málefnum sinum til fram- dráttar i þrjá áratugi en stagl um herstöðina á Miðnesheiði). Þegar al- varan hóf að varpa skugga sinum á málefni hugsjónamannanna og leiðinleg hugmyndafræðileg þræta stóð fyrir dyrum gerðust ráð með- reiðarsveina reikul. Svo kom I Ijós, að mannkynssagan hafði farið á bak við þá, jafn vel i fyrirheitna fandinu sjálfu. Framhald á bls. 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.