Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Blaðsíða 6
„ Yfir hið liðna bregður blæ...” Nokkur föng Halldórs Laxness íÞrjár sögur.Eiríkur Jónsson tók saman Magnús Einarsson, sem lengi bjó í Mel- koti, er eins og mörg- um er kunnugt fyrir- mynd að Birni í Brekkukoti, í Brekku- kotsannál. Magnús andaðist háaldraður, 21. nóvember 1921 í Laxnesi í Mosfells- sveit, hjá Sigríði Hall- dórsdóttur, móður Halldórs Laxness. (Jón Helgason: Ár- bækur Reykjavíkur, II. útgáfa, bls. 336.) í bók Eufemiu Waage, Lifað og leik- ið, segir svo um Mei- kot og Magnús Einars- son, á bls. 14: „Syðsta byggð var þó Melkot, sem stóð litlu ofar en ráðherrabústaðurinn þar suður frá nú. í Melkoti bjó, þegar ég man fyrst eftir mér, Magnús Einarseon í Melkoti og kona hans Guðrún Klængsdóttir. Var þar mikið gest- risniheimili og gistu þar margir sveita- menn, sem til bæjar- ins komu. Tveir bróð- ursynir Magnúsar voru þ:r hjá honum, Einar og Sigurður Snorrasynir, og fóstur- dóttur áttu þau, Sig- ríði, móður Halldórs Kiljans Laxness. Hjá henni dó Magnús“. Kvæðið „Syngið þið nú!“, sem Halldór Laxness notar í Brekkukotsannál og segir vera eftir „fjör- ugan söðlasmið á Laugaveginum“, er eins og mörgum mun © vera kunnugt eftir Þorgrím Jónsson, er síðast bjó í Laugar- nesi. Kvæði þetta samdi Þorgrímur sem auglýsingu og lét prenta meðal aug- lýsinga í Alþingisrím- unum 1902. Hér fara á eftir dæmi um föng Hall- dórs Laxness í þrjár skáldsögur hans. Brekkukotsannál, Inn- ansveitarkroniku og Guðsgjafarþulu. Til- vitnunin í bók Bj.Björnson „Sigrún á SttnnuhvoIi“ er þó að- eins f snertingu við málsgreinina í bók Laxness. i, „Paó var cins ofi allt, scm hann lcit á, brcytti útliti, ok stofuklukk- an á vcKMnum safjði: „fleníí-inM — flcnM-inM — flen{í-in>; — flens- inu-'.'-. (Bj. Björnson: Si«rún á Sunnuhvoli, II. útnáfa, Reykjavik 1932, hls. 14.) „Þart rann sumsé upp fyrir mér einn daf> aö orðid sem hún sa«ði þeí,rar hún tifaði, tvcggja atkvæða orð sem var dregið á seinna at- kvæðinu, það væri ei-líbhð. ci- líbbð“.“. (Brekkukotsannáll. bls. 10). II. „Haagensen var aldrei nefndur öðruvisi, og ég efast um, að ég í æ>sku hafi þekt hans skirnarnafn. en hann hét Kristján Jónsson, Hákonarsonar, og var vestfirzkur að ætt. A nýjársdag, sumardaginn fyrsta, og ef lil vill fleiri hátíðis- daga, gekk Haagensen i einkenn- isl)úningi fyrir höfðingja bæjar- ins, til þess að óska þeim allra heilla og blessunar á hinu nýbyrj- aða ári eða sumri. Einkennisbún- ingurinn var heiðblár klæðis- frakki með blönkum hnöppam sléttum, en buxur allavega litar, og stundum leggingar á, og svart- ur blankhattur á höfði. Á þessum einkonnisbúninfíi stóð svo, að Haagensen hafði í ungdæmi sínu verið leiðsögumaður á dönskum herskipum hér við land, einkum á Vesturlandi, og fékk hann á þessu ferðalagi nafnið uniformið og hattinn. Mörgu kunni Haagensen frá asegja af freigátunni, eða þeg- ar hann hafði verið til „orlogs" eins og hann komst jafnan að orði, og talaði hann þá jafnan dönsku eða cinhvcrn dönskublending. . . . Drjúgan skilding fékk hann i þessum ferð- um sínum, þó þær væru ekki skoðaðar sem bcinar beininga- ferðir". (Blanda II., bls. 197— 198. Klemens Jónsson: Einkenni- legt fólk.) „Jón þessi Hákonarson var nefndur Kafteinn Hogcnsen af þcim sökum að hann hafði fyrir marl laungu haft eð höndum þann starfa að lciðbcina dönskum sjómælingaskipum á Breiðafirði, en skipalcið er vandrötuð og torsigld ókunnugum á þeim slóð- um. Jón Ilákonarson átti að vísu til góðra að tclja... enda kallaði hann sig með réttu danskan or- logskaptein og sjóleiðsögumann danakonúngs á Breiðafirði. Hann lógaði aldrci bláum einkennis- húníngi sínum gullhnepptum né því kaskeiti sem heyrir sjóleið- sögumanni danakonúngs á Breiðafirði. Þcssum búníngi klæddist hann jafnan á jólum og páskum, svo og á nýársdag og sumardaginn fyrsta, og sat þá rúmi sinu með tígulegu yfir- bragði allan daginn án þess að snerta hrosshár. Það var plagsið- ur hans að rísa úr körinni á nýárs- morgun, klæða sig uppá f múnderínguna, og láta leiða sig útí staðinn þcirra erinda að biðja yfirvöldunum guðsblessunar og reyna að hafa útúr þeim eilítið af hrosshári", (Brekkukotsannáll. bls. 52.) III. „Haagensen var siðast niður- setningur i Melkoti, og dó þar háaldraður". (Blanda II., bls. 200. Kelmens Jónsson: Einkennilegt fólk.) „Mér er sagt hann hafi lagt með sér jarðarpart sem próvcntu þegar hann gerðist ararmaður á miðloftinu f Brckkukoti". (Brekkukotsannáll, bls. 51.) IV. „Syngið þið nú! Lag: Fyrst eg annars hjarta hræri. Heyrið menn og konur, krakkar, komið hingað til mín! Hér fást Svipur, Söðlar, Hnakkar, sútuð Ferðaskrln, Ölar, sem að aldrei slitnað fá, Istöðin úr koparnum, sem spegilfögur gljá Reiðskálmar, sem ekkei't festir á, enginn geturTöskum mínum stolið neinum frá. Eg hef sterkust Beisli í bænum, — bara komið sjáið þér! — alt með letri, útsaum vænum útflúrað af mér. Þorgrímur Jónsson söðlasmiður Bergstaðastr. 3". (Alþingisrímur, Reykjavík 1902, bls. 103). „Sveinar, fljóð og kátir krakkar komið híngað inn til mín! Hér fást svipur, söðlar, hnakkar, sútuð ferðaskrín, ólarnar sem slitnaö aldrei fá, fstöðin úr koparnum scm spegilfögur gljá, nýasilfurteingur stirnir á: stúlkan þín má koma þetta hafurtask að sjá! Hér fást lángbest beisli í bænum. Biskupsfrúin keypti hér leðurbarð mcð laufum vænum lögð þau voru af mér.“ (Brekkukotsannáll, bls. 91—92). V. „Karl var að tæja hrosshár og sonur hans með honum. Þá sagði sonurinn: „Pápi minn, er það satt, að Jesús Kristur hafi stigið ni.ður til helvítis?". „Ég veit það ekki, drengur minn", segir karl, „svo segja prestarnir. Við skulum ekki gefa um það. Við skulum tátla hrosshárið okkar". “. (Brynjólfur Jónsson frá Minna-Núpi. Tillag til alþýðlegra fornfræða, bls. 208). „Kolbeinn í Kolafirði segir þá eftirfarandi sögu: Einusinni voru tveir feðgar að tæa hrosshár. Þá segir pilturinn uppúr eins manns hljóöi: cr það satt pápi minn a lausnarinn hafi stigið niður til helvítis? Ég veit það ekki, segir karlinn. Prcstarnir eru citthvaö að segja það. Viskum ekki gefa um það. Viskum vera að tátla hrosshárið okkar“. (Innansveitar- kronika. bls. 59—(íö). VI. „Gamall danskur kaupsýslu- rnaður, sem þekt hefur vel til ís- lenskrar síldarverzlunar í rúm 20 ár, skrifaði haustið 1927 um síld- arverzlunina á þessa leið: „Mjer hefir oft blætt það í augum að sjá hin miklu auðæfi, sem flutt hafa verið frá íslandi hingað til Kaup- nannahafnar verða að engu hjer á hafnarbakkanum". “. (Malthías Þórðarson: Síldarsaga íslands, Kaupmannahöfn 1930, bls. 274.) „ „Mér hefur oft runniö það til rifja," skrifaði mér einusinni gamall danskur kaupsýslumaður vinur minn, „að horfa uppá hin miklu auðæfi sem flutt hafa verið af Islandi hingaö til Kaupanna- hafnar verða að aungvu hér á hafnarbakkanum", (Guðsgjaf- arþula, bls. 78). VII. „Síldartunnurnar lágu úti und- ir beru lofti, og var þeim raðað í lög, 3 til 4 tunnur á hæð og var oft svo þúsundum tunnum skipti geymt á bersvæði á þennan hátt. Svo þegar leið á veturinn, daginn fór að lengja og sól að hækka á lofti, voru venjulega neðstu tunn- urnar farnar að þrýstast saman af þunganum, sem ofan á lá, og eins af því, að margar þeirra voru löngu tæmdar af öllum legi. Efstu tunnurnar voru venjulega orðnar gjarðalausar — eða svigabrotin stóðu út í loflið — og margar fallnar í stafi af áhrifum veðrátt- unnar, svo sporðar og uggar teygðu sig út um rifurnar. Sum árin höfðu staflarnir minnkað nokkuð yfir veturinn, því smátt og smátt var selt af síldinni, en mörg árin, og þau voru fleiri, sást lítill mismunur á byrgðunum. Auk þessarar síldar, sem geymd var þannig á almannafæri, voru venjulega margir kjallarar við höfnina fullir af sild, og ekki ósjaldan var skóvarpa hátt vatn af saltlegi eða meiri þar á steingólf- inu, sem runnið hafði úr tunnun- um smátt og smátt". (Matthias Þórðarson: Sildardaga islands, Kaupmannahöfn 1930, bls. 247—275.) „Þeim tunnum sem úti lágu á hafnarbökkunum var stakkað upp f Iög og þannig lágu þær tugþúsundum til samans vetur- inn í gegn. Þegar á leið fóru neðstu tunnurnar að pressast saman undir þúnganum af þeim efri, og eins höfðu tunnurnar gisnað og grátið pæklinum út- ámilli stafanna, en innihaldið þornað upp og skroppið saman. Efstu tunnurnar sem brennheit sólin skein á þegar fór að leingja dag gáfu frá sér þræslul.vkt líkast grút og voru mikilsti orönar gjarðalausar af áhrifum veðrátt- unnar; stóðu svigabrotin útí loft- ið, en uggar og sporðar stúngust útum rifurnar. í kjöllurum scm voru fullir af síld hafði sjór sytl- aö gegnum veggi eða flætl innum kjallaraglugga og blandast pækli úr tunnunum, og var þessi stæka blanda ýmist I skóvarp cða ökla en stundum f mjóalegg." (Guðs- gjafarþula, bls. 78—79.). Allar tilvitnanir I bækur Hall- dórs Laxness eru I fyrstu útgáfur þeirra.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.