Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1979, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1979, Blaðsíða 12
Brotnar eru borgirnar III — Árni Óla Arnarhóls er fyrst getiö af öllum örnefnum í Reykjavíkurlandi. Vífill og Karli fundu öndvegissúlur Ingólfs viö Arnarhól fyrir neöan Heiði, segir Land- námu. Nú er þaö svo um sjálfan Arnarhól, aö hann náöi hvergi aö sjó. En noröur úr honum skagaöi annar hóll, út í sjóinn, og var mýrarslakki á milli þeirra. Ytri hóllinn var oftast nefndur Arnarhólsklettur, enda voru klettar aö honum viö sjóinn. Mundu öndvegissúlurnar tæplega hafa getað hitt á verri lendingarstaö en kletta þá, og heföu auövitaö brotnað þar í sprek og smælki í sjógangi. Vér höfum því fyrir satt, aö súlurnar hafi komiö á land inni í víkinni, þar sem var sandfjara. Litlar sögur fara af Arnarhóls- kletti þar til áriö 1809 aö Jörund- ur hundadagakonungur handtók Trampe greifa og geröi sig sjálfan aö „herra til sjós og lands“ á islandi, þótti honum þá ráðlegt að víggiröa Reykjavík, og fann þá engan annan staö hent- ugri fyrir vígi heldur en Arnar- hólsklett, sem gekk allhár og þverhníptur fram í höfnina. Aöalhjálparhellur hans við her- töku landsins voru þeir Phelps kaupmaöur, sem átti skipiö „Margreth and Anne“, sem lá hér á höfninni, og undirkaupmaöur hans Savignac aö nafni. Og nú ákvaö Jörundur aö hið nýja vígi skyldi heita í höfuöiö á Phelps og kallast Fort Phelps, en yfirhers- höföingi í virkinu skyldi vera Malmquist beykir. Hann var sænskur aö ætt, en var verzlunarþjónn hjá Phelps. í júlímánuði um sumariö var virkisgerðin hafin og gekk verkiö vel fram. Var þar hlaöin heljar- mikil brjóstvörn úr torfi og grjóti og var í hálfhring fremst á klettin- um. En þá vantaöi fallbyssurnar, því aö ekkert vígi má án þeirra vera. Áriö 1668 haföi Henrik Bjelke höfuðsmaöur látiö reisa virki hjá Bessastöðum, og hefir þaö alltaf veriö kallað Skansinn. Flutti hann þangaö 6 fallbyssur og voru þær þar enn. Aö vísu voru þær orönar kolryðgaðar og sumar sokknar í jörð, eftir að hafa legið þar svo lengi umhiröulausar. Var nú ákveðið aö sækja þessar fall- byssur og hafa þær Reykjavík til varnar. Hinn 19 júlí voru sóttar þrjár fal%byssur og þeim komiö fyrir í hinu nýja vígi, og tveimur dögum seinna voru hinar þrjár sóttar og þeim komið fyrir á sama staö. Hefir flutningurinn sýnilega gengiö mjög vel, og eins hefir gengiö vel að koma þeim fyrir á nýja staönum, því að 25. júli var fyrsta fallbyssan reynd — skotiö úr henni tveimur skotum „og gekk vel“ að því er sjónarvottur sagöi. Þegar vígið á Arnarhólskletti var full- gert, og allar sex fallbyssurnar reyndust vel, þá lét Jörundur draga þar á stöng gunnfána sinn og íslands. En svo kom enska herskipiö „Talbot" og þá var kollvarpaö konugstign Jör- undar. Skipherrann og þeir Stephens- bræöur sömdu svo um 18. ágúst, aö Reykjavík skyldi óvíggirt. Var þá gengið aö því aö rífa niður Fort Phelps og geröu þaö sjóliöar á Talbot. í Árbókum Espólíns segir, aö vígiö hafi verið rifiö gjörsamlega niöur og fallbyss- urnar fluttar inn í Viöeyjarsund og þeim sökkt þar. í íslenzkum Sagnablööum segir, aö þeir ensku hafi velt fallstykkjun- um í sjóinn og brotiö niöur skansinn. Hér er þó eitthvaö málum blandaö, því aö 1841 gaf bæjarfógeti út alvarlegt bann viö því, aö strákar væru aö troöa steinum í fallbyssurnar í víginu, því aö þaö gæti valdið slysi, ef skotiö væri úr þeim. En nokkrum árum seinna viröast fallbyss- urnar allar horfnar, hvaö sem hefir oröiö af þeim. Sést þaö bezt á því, aö þá er Trampe greifi kom meö danska herflokk- inn hingaö 1851 til þess aö hræöa íslendinga, þá var þarna hvorki vígi né fallbyssur. Dátarnir höföu ekkert að gera og var þeim því fengiö það starf, aö hlaða upp vígi Jörundar.. Voru þeir aö dunda viö þetta um haustið og allan veturinn, og luku ekki verkinu fyrr en um voriö og var vígið þá kallaö „mikið mannvirki“. Er þaö var lítið gagn í því vegna þess aö þaö var vopnlaust, nú voru engar fallbyssurnar. Trampe fór því fram á það viö stjórnina, aö hún sendi hingað fimm fallbyssur sæmilega góöar. En stjórnin neitaöi aö veröa viö því, og í þess stað kallaöi hún herflokkinn heim til Danmerkur. Afrek hans hér á landi haföi veriö það eitt aö hlaða þetta vígi. Haföi þaö nú fengið nýtt nafn og var kallað „Batteríiö" og undir því nafni gekk þaö upp frá því. Smám saman hrörnaði þetta mikla mannvirki og var seinast ekki oröiö annað en grasi gróinn veggur í hálfhring yzt á hólnum. Þetta vígi kom því lítt við sögu lands og bæar. Samt sem áður höföu Reykvíkingar miklar mætur á þessum staö, því aö þaðan var útsýni bæöi vítt og fagurt, einkum á blíöum sumarkvöldum, „þegar sólin við Jökulinn rann.“ Þangaö sótti þá margt fólk og haft er eftir danskri konu, er gift var íslenzkum kaupmanni og þóttist kunna íslenzku, að hún hefði einu sinni sagt viö mann sinn: „Góöi komdu út á Batteríið og,sjáðu hvað sólarniöurgang- urinn er eigindómlega fallegur". Og svo var önnur dönsk kona gift íslendingi, sem vildi endilega fá Batteríiö keypt til þess aö reisa þar fagran bústaö. Þetta var 1893 og kaupbeiönin var lögö fyrir Alþingi, því aö þaö þurfti aö setja lög um þetta, vegna þess aö Arnarhóll var opinber eign. En þá ætlaöi allt vitlaust aö veröa. Þingmenn hnakkrifust um þetta dag eftir dag, og svo mikill móöur var í bæarmönnum, aö annars eins eru naum- ast dæmi. Jafnvel stilltustu og gætnustu menn misstu alveg taumhald á sér. Borgarafundur var haldinn og sölunni harölega mótmælt, en hótunarbréfum ringdi yftr þá þingmenn , er vildu selja. Síðan voru þinginu send mótmæli gegn sölunni og var þaö mótmælaskjal undir- ritaö af 300 mikils metnum borgurum í bænum. Og margt fleira geröist þá sögulegt. En hin mikla andúö bæar- manna varö til þess, aö stjórnin neitaöi aö samþykkja frumvarp um aö selja hinni dönsku konu Batteríið. Svo liöu rúm 20 ár. Þá var hafist handa um hafnargerö í Reykjavík. Þá var Arnarhólsklettur brotinn niður aö grunni og haföur í uppfyllingu. Og þar fór Batteríiö, en þá hreyföi enginn mótmæl- um. Aö vísu lágu til þess sérstakar ástæöur. Reykvíkingar höföu lengi þreyö aö fá fullkomna höfn og þeir vissu aö til þess þurfti aö gera breiöa hafnarbakka meö landi fram, þar á meðal framan við Batteríið. En um 'eiö var svo komiö aö aö Batteríið náöi ekki framar aö sjó og glataði algjörlega svip sínum. Þess vegna hreyfði enginn mótmælum þegar fariö var aö brytja þaö niður, enda þótt mörgum þætti vænt um þaö og teldu þaö sögulegan staö. En þaö er ekki aöeins Batteríiö og Arnarhólsklettur, sem höfnin hefir gleypt. Stór, sneiö noröan af Öskjuhlíð fór í Grandagaröinn og Örfiriseyargarðinn. Stórgrýtisurðin sunnan og austan í Skólavörðuholti varð aöalefni í Ingólfs- garö. Síöan var flegin þykk spilda af holtinu, svo aö þaö varö óþekkjanlegt þeim megin, og var hún notuö til upp- fyllingar í höfninni. Meö henni fór Steinkudys. Höfnin hefir einnig gleypt allar hinar mörgu varir og uppsátur frá árabátaöld- inni. Hún gleypti einnig Steinbryggjuna, sem gerð var fram af Pósthússtræti áriö 1884, fyrsta og elzta hafnarmannvirki hér. Höfnin hefir einnig látiö breyta allri strandlengjunni frá Ingólfsgaröi inn aö Laugarnesi, og nú viröist Kolbeinshaus eiga aö hverfa í þá uppfyllingu. En innan viö Laugarnes er komin Sundahöfn og hún byrjaði á því, aö brjóta þar niöur ein- kennilega sjávarhamra. Þar fóru forgöröum Köllunarklettur og Líkavaröa, sem voru fræg ör- nefni frá þeim tíma er kalustur var í Viöey. Kleppskaft, sem var einkennilegt hornbjarg niöur af Kleppsspítala, hefir og veriö brotiö niöur að miklu leyti. Og nú er rööin komin að Gelgjutanga. Þegar Langholtiö tók að byggjast, var þykkum jaröveg flett af suöurenda þess, og fór þaö allt í höfnina. Áöur haföi verið brotiö framan af holtinu, og fór þaö efni í Sogaveginn, er hann var geröur. En þá hurfu Þjófaskörö, sem voru sunnan í holtinu. Vegna umstangs margra mannvirkja, hefir orðið gjör- breyting á upphaflegu landslagi í Austurbænum, og hefir höfnin átt drýgstan þátt í því. Þó hefði höfnin getaö valdiö hér enn meiri umturnan, ef fariö heföi veriö eftir uppástungu, sem kom fram 1862, og mörgum þótti þá mjög glæsileg. Sú uppá- stunga var aö vísu í tvennu lagi. Fyrri hluti hennar var um þaö, aö dýpka Tjörnina 'og gera þar skipalægi, en grafa úr henni skipgengan skurð þvert í gegn- um miöbæinn til sjávar. Mun sá skuröur sennilega hafa átt aö liggja yfir lóöina þar sem Al- þingishúsið stendur nú, og þaöan til sjávar um Pósthús- stræti. „Með þessu fengist fögur og örugg höfn, og þaö svæöi yröi þá aö miklu gagni, sem nú er til einskis nýtt“, sagði stjórnarblaðiö íslendingur. Hinn hluti tillögunnar var á þá leiö, aö gera skipakví á Austurvelli og skyldi hún ná yfir mestan hluta vallarins. Var gert ráö fyrir því, aö þarna væri hægt aö grafa svo djúpt aö sjávardýpi yröi þar um 20 fet. Til sjávar yröi svo aö grafa skipgeng- an skurö og gera þar heljar mikla flóögátt eöa stíflu, svo hægt væri aö halda sjó í höfninni um fjöru. Jafnframt voru birtar áætlanir um hvaö þessi mannvirki myndi kosta mikið, og þótti af því líklegt, aö ráöandi menn, eöa stjórnin sjálf, stæöi þar aö baki. Menn ættu aö gera sér í hugarlund hverjar afleiðingar þess heföu oröiö, aógera Austurvöll aö höfn. Aö vísu þarf ekki aö gera ráö fyrir því, að þetta heföi orðið til frambúðar, en þaö heföi haft hin ótrúlegustu endaskipti á Miðbænum og gagnger áhrif á allt skipulag Reykjavíkur fram til aldamóta. Og heföi nú bæöi Austurvöllur og Tjörnin fariö til hafnar- geröar, þá heföu tvær kærustu náttúru- gersemar Reykvíkinga Austurvöllur og Tjörnin horfiö meö öllu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.