Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1980, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1980, Blaðsíða 8
Niöarós eöa Þrándheimur eins og bærinn heitir í dag er aö mörgu leyti tengdari íslendingum en aðrir staöir í Noregi frá sögulegu sjónarmiöi. íslendingar geröu tíðreist til Niöar- óss á söguöld eins og fram kemur af bókum og áttu þangaö margskonar erindi. Og þaö er íslenskum sögurit- urum aö þakka aö Norðmenn eiga ýmsar heimildir um þennan staö frá miðöldum sem annarS heföu glatast. Bærinn stendur á gömlum merg. Þaö var Ólafur konungur Tryggva- son sem ákvað áriö 997 aö þar skyldi vera aðsetur Noregskonunga og mun hafa þótt staöurinn fýsilegur fyrir margra hluta sakir. Hann lá nokkuð miösvæöis í hinum langa og mjóa Noregi — þar voru blómleg héruö um kring og greiöar samgöng- ur til Svíaríkis yfir Kjölinn og þaðan til sjávar viö Botneskaflóann og viö ósa árinnar Nið var hiö ákjósan- legasta skipalægi fyrir þeirra tíma skipakost. Ólafur konungur Haraldsson kem- ur mjög við sögu Niðaróss, ekki síður eftir fall hans á Stiklastaö áriö 1030 og fregnir fara aö berast af jarteiknum viö skírn hans og hann er tekinn í heilagra manna tölu. Þá tóku pílagrímar að streyma til staöarins hvaöanæva aö og hafa þeir aukiö hróöur hans svo um munaði. Erki- biskupsstóll var settur í Niöarósi áriö 1152 og þá þegar var hafist handa um eina merkustu kirkjubyggingu á Norðurlöndum, þar sem er dómkirkj- an. Hún er í dag talandi vottur um stórhug, auð og völd kirkjunnar á þessum tíma. Þaö er skemmtileg tilhugsun, aö íslendingar, sem þarna voru margir á ferð eftir að kirkjan var risin af grunni, hafi barið augum þvílíkt mannvirki komandi sennilega úr lágreistum húsum heima. Bærinn hefur síöan átt sína niöur- lægingartíma og sín blómaskeiö. Þar komu til átök milli hins kirkjulega og veraldlega valds, ófriöur konunga og ríkja á milli og skæöar drepsóttir. Eldsvoöar voru tíöir í bænum fyrr á öldum enda byggingum hætt, þar sem hús voru allflest úr timbri og stóöu þétt. í einum brunanum áriö 1681 brann t.d. 9/10 hluti húsa og dómkirkjan fór ekki varhluta af eyöileggingum elds. Alltaf var þó byggt upp á ný enda Þrándheims- búar enn í dag orðlagðir fyrir þraut- seigju samfara hæfilegri íhaldssemi. Hnattfræðilega stendur Þránd- heimur örlítiö sunnar en Reykjavík eöa álíka og Vestmannaeyjar. Um- hverfið er þó allt gróskumeira en hjá okkur, skógivaxnir ásar og hæöir um kring og árið 1830 var gert verulegt HULDA VALTYSDOTTIR átak í því aö planta götutrjám í miöbænum sem setja á hann hlýleg- an svip. íbúarnir eru um 135 þúsund og hefur fjölgað mjög síðustu ár. Ný hverfi hafa risiö í útjaöri bæjarins með stórum blokkarbyggingum eins og víöa annars staöar og eru lítt aölaöandi. í miöbænum viröist á ytra boröi allt frekar í hægagangi, umferö lítil þótt á staðnum sé fjölskrúöugt athafnalíf. Gömlum timburhúsum er vel viö haldiö og nú er farið varlega í allar nýbyggingar í hjarta bæjarins. Stundum stöðvast þær af ófyrir- sjáanlegum orsökum eins og t.d. þegar fara átti aö byggja viö bóka- safnið á bökkuð Niðelfunnar árið 1970 skammt frá þeim staö þar sem er álitiö aö konungsgaröurinn hafi staðið til forna. Þegar fariö var aö grafa var komið niður á mannabein og minjar frá því um árið 1100. Síðan er ekki hroflaö viö neinu á bygg- ingarlóöinni nema meö teskeiö — og viö þaö situr. En þaö er ótal margt í Þrándheimi sem minnir á söguna og forna frægö, og yröi allt of langt mál upp aö telja, en dómkirkjan er Til vinstri: Dómkirkjan í Niöarósi eó N'éndheimi er tvímœialaui ein merkasta kirkjubygging Noróurlöndum og þótt víöi væri leitaö. Bygging henm hófst um 1150 og var heni valinn staöur á eöa vió gri Ólafs helga. Kirkjan er bygg í ensk-gotneskum stíl og bc stórhug og veldi kirkjunnar þeim tíma glöggt vitni. Kirk an hefur þó oröiö fyrir ýmsui skakkaföllum í aldanna rái bæöi vegna eldsvoða og i öörum orsökum en síóust 100 ár hafa farió fram gagr gerar endurbætur á henni o er þeim ekki lokiö enn þó langt séu komnar. Nærmyndin af forhlið dón kirkjunnar ætti að gel nokkra hugmynd um hvemi menn á 12. öld töldu a standa ætti aö bygging guóshúss. Aö neðan til vinstri: Fagrar línur og listileg sml vió dyr á hliðarskipi Dón kirkjunnar. SVPMYNDIR FRA ÞRANDHEM í miöbænum eru götur víöa þröngar og eru I „veitur“. Þarna er horft inn Bruveita, sem ekki sú þrengsta. Þessar mjóu götur setja s an svip á bæinn og bera þess vott aö hann i á gömlum grunni sem lagöur var löngu fyrii — já, löngu fyrir daga Snorra Sturlusonar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.