Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Blaðsíða 5
STÝRI Önnur konan, sem fékk ökurétt- indi, hét Katrín Fjeldsted og var húsamálari aö mennt. Skírteini henn- ar er gefiö út 29. október 1919 og er nr. 221. Katrín var fædd að Ökrum á Mýrum 18. október 1887 (eöa ’85), dóttir hjónanna Guðríöar Guöna- dóttur og Þórarins Fjeldsted bónda, ein níu barna þeirra. Katrín flutti til Reykjavíkur áriö 1908 og lærði húsamálun hjá Ástu Árnadóttur mál- ara, sem fyrst íslenskra kvenna öðlaöist réttindi í handiön. í bókinni „Ásta málari”, sem Gylfi Gröndal skráöi eftir endurminning- um Ástu Árnadóttur, segir hún frá upphafi kynna þeirra Katrínar á þessa leiö: Bergljót Ingólfsdóttir skrifar um fyrstu konurnar, sem tóku bíl próf hér á landi Katrín Fjeldsted Katrín Fjeldsted á blæjubíl, sem mun hafa veriö af Overlandgerö. „Katrín haföi séö mig mála hús aö utan, og dag nokkurn kom hún til mín og sagöi mér, aö hún heföi áhuga aö gerast húsamálari, eins og ég. Fundi okkar lyktaöi þannig, aö ég réð hana, og var hún hjá mér í þrjú ár. Katrín var dugleg og aldrei var hún lofthrædd. Hún var miklu frakkari í stigum og upþi á þökum en ég.“ I hinum bráðskemmtilega kafla „Rigningarsumariö mikla” í Ofvitan- um, segir Þórbergur Þóröarson frá því, þegar hann ætlaöi aö vinna hjá Ástu málara og afla sér meö því fjár til skólagöngu. En hann segir svo: „Klukkan nákvæmlega eitt var ég kominn niöur aö húsi Gunnþórunnar Halldórsdóttur á Amtmannsstíg 5. Fröken Ásta og frauka nokkur, sem meö henni málaöi á þessum árum, voru þá nýkomnar meö stiga og málningardollur og pensla og terp- intínu og törrelsi.” En fraukan var einmitt Katrín Fjeldsted. Á tímabili fékkst Katrín viö leigu- bílaakstur, sannanlegan fyrst kvenna hérlendis. Bílinn átti hún sjálf, mun hafa fengið lán til aö kaupa hann. Hún hefur greinilega klæöst „uni- formi“ viö aksturinn eins og sjá má á myndinni. Katrín er mörgum borgarbúum minnisstæö, hún mun hafa fengist viö málarastörf langt fram eftir aídri, og var lengst af búsett í, eða viö miðbæinn í Reykjavík. Hún andaðist 20. júlí 1968. Fullt.nafn .... Fæðingardagur.. ,■/..&&&■.... Fæðingarstaður.......................... Heimili_____ hefir rétt til að sfýra -............... Lögreglustiórinn i * h. 'nróti- 18 3A ÍðiB. SWrteini lictta síl4diifrcl»MBtióri jainan hafa á sér, þó er hjMrtOftþJsyna lögreglunni, cl krajji Helga Sigurðar- dóttir Helga Siguröardóttir, til heimilis að Laufásvegi 26 í Reykjavík, var sú þriöja í rööinni til aö fá ökuréttindi. Skírteini hennar er gefið út 15. nóvember 1919, og er nr. 247. Helga er fædd 9. október 1898, einkadóttir hjónaiina Ingunnar Eyjólfsdóttur og Sigurðar Ámundasonar í Lindarbæ í Skuggahverfinu (nú Vatnsstígur 11 ) hér i borg. Helga giftist ung Agli Vilhjálmssyni, hinum kunna athafna- manni, sem stofnaöi fyrirtækið Egill Vilhjálmsson h.f. og rak til dauða- dags. Nú fyrir skömmu var þess minnst að 50 ár eru liðin frá stofnun fyrirtækisins. Þegar ég kom aö máli viö Helgu, til aö forvitnast um hvaö hafi valdið því, að hún fór aö læra aö aka, sagöi hún aö þaö hafi í raun veriö ósköp Framhald á bls. 15 Helga Siguröardóttir er ein eftirlifandi af þessum brautryójendum meöal kvenna. Myndin er tekin nýlega á heimili hennar í Reykjavík. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.