Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1980, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1980, Blaðsíða 21
sakar alltaf hinn um skeröingu á persónu- frelsi.“ Hjónaband John Steinbeck og Car- ol Henning entist í 12 ár og á þeim árum skrifaói hann flestar frægustu bækur sínar. Þeim varó ekki barna auöið og smám saman myndaöist gjá á milli þeirra sem erfitt var aö brúa. „Hjónaband mitt er aö fara í hundana því þaö ríkir svo mikil tortryggni á milli okkar, aö viö erum hætt aö geta talað saman," skrifaði Steinbeck í bréfi til lögfræðings síns. „Kannski er lífið ekkert annaö en örvæntingarfull tilraun til tján- ingar. Þegar þú hættir skyndilega að reyna aö túlka þaö sem í huga þínum býr breytist augnaráö þitt og framkoma. Fyrir nokkru hitti ég stúlku sem ég þekkti í Stanford og hún kvaöst hafa verið hrædd viö mig og hún útskýröi hræöslu sína á þennan hátt: „Ég var hrædd um að ef ég hætti aö hlusta á þig eitt andartak myndir þú fyllast reiði og kýla mig niöur." Það er ekki svo fjarri sanni. En ég og Carol erum hætt aö þekkja hvort annað og ekki viröist hægt aö færa okkur saman aftur. Margs konar ósýnilegar ófreskjur umkringja - okkur. Stundum fyllist ég svo ógurlegri heimþrá, aö mér finnst hjarta mitt ætla aö bresta, en þá geri ég mér grein fyrir að það er ekki heimili sem ég þrái. Þetta er sama ástríðuþrungna tilfinningin sem ég fékk á mínum unglingsárum þegar ég þráöi einhvern sem ég gæti talaö viö. Þetta er furöuleg þrá sem loðir alltaf viö mann, þó manni lærist aö tala ekki um hana. Og ef allt fólk er svona gert, undrar þaö mig aö allir skuli foröast að tala um þaö. Augu fólks sem talar ekki út um hlutina verða sljó vegna leiöinda eöa sársauka eða þreytu. — Eins og þig eflaust grunar myndi ég ekki skrifa þetta bréf ef ekki væri hægt aö heimfæra sumt af því sem ég hef sagt upp á sjálfan mig." Carol vildi samt halda í hann Það geröi útslagið þegar Steinbeck hitti söngkonuna Gwendolyn Conger í Los Angeles og þarmeö ákvaö hann að láta Carol Henning fyrir róða. Til að byrja meö hitti hann Gwendolyn á leynilegum stefnumótum, en loks gat hann ekki haldiö þessu leyndu fyrir Carol eiginkonu sinni og hann sagði henni alla söguna. „Þetta hefur verið helvíti erfiður tími og ég er enn sém á nálum en ég ætla aö reyna að gefa þér smáhugmynd um þaö sem hefur gerst. Taugarnar gáfu sig og ég sagöi Carol frá öllu, frá því hversu lítil ítök hún ætti í mér og hversu ástfanginn ég væri. Hún sagöist vilja þær litlu tilfinningar sem ég bæri í brjósti til hennar og hún myndi berjast fyrir þeim. Svona er staðan í dag. Ég mun búa áfram meö Carol meira af skyldurækni en löngun." Samt sem áður iét ástin ekki aö sér hæöa og Steinbeck dvaldi langdvöl- um með Gwendolyn Conger eins og fram kemur í bréfi til Bo Beskow. „Þegar ég skrifaði „The Sea of Cortez" faldi ég mig meö Gwen í litlum kofa í furuskóginum. Hún svaf út og ég fór snemma á fætur, kveikti eld og vann til hádegis, en þá vaknaði hún og ekki varö meira um vinnu þann daginn. Viö fórum í langa göngutúra í sandhólunum og átum þúsund kleinuhringi og drukkum kaffi þartil viö vorum komin meö magaverk." Þegar skilnaöurinn var oröin staö- reynd sem ekki var hægt aö horfa framhjá hófust samningar um eigna- skiþtingu sem leiddu til þess aö Steinbeck varö nær gjaldþrota. Fram- koma Steinbecks gagnvart Carol gat varla tallst til fyrirmyndar og hann var fullur sjálfsásakana eins og sjá má af bréfum sem hann skrifaöi á þessu tímablli. Fannst hann kominn í örugga höfn „Þaö er búinn aö vera kökkur í hálsinum á mér allt frá því aö ég sagöi skiliö viö Carol og ég vildi óska aö ég gæti komist yfir þessa viöbjóöstilfinningu sem hvílir á mér. Hún kemur aftur og aftur í formi koldimmrar örvæntingar sem nístir merg og bein. Eini möguleikinn af mörgum sem myndi létta þessum álögum af mér er aö Carol hitti annan mann sem hún gæti elskað. Ég veit aö hún þarf hjálp. Guð veit að ég er enginn kostagrip- ur. Líklega eins erfiður í sambúö og hver annar." Samband hans og Gwendolyn var aö mörgu leyti hamingjusamt. Honum fannst hann vera kominn í örugga höfn og Gwendolyn haföi lag á að gæða heimili hans hlýju og gestrisni. Þau giftu sig. 1943 og ári seinna fæddist fyrsta barn Steinbecks, son- urinn Thom. Eftir þriggja ára hjóna- band skrifaöi Steinbeck eftirfarandi um hiö nýja hlutverk sitt sem föður: „Sonur okkar er nú tveggja ára og annað barn er væntanlegt í júní. Ég kann mjög vel viö þann litla. Hann er hýrlegur og rétt skapaður. Það er enginn fróðleik- ur fólginn í því einu aö vera foreldri en samneyti viö barn er athyglisvert og fljótlega fer manni aö þykja vænt um þaö eins og hvolp. En mannlegur hvolpur veit meira svo hann er athyglisverðari. Erfiðleikarnir sem koma upp viö aö læra aö tala, heilla mig. Næstum hver Myndin er úr kvikmyndinni. einasta stund sem barniö vakir fer í aö læra þessa flóknu aðferö til tjáningar. Ég viröist ekki bregöast við hinu nýtilkomna fööurhlutverki á heföbundinn hátt en kannski gerir þaö enginn. Mig grunar aö hegöun margra foreldra mótist af blaöagreinum um ungbörn skrifuðum af barnlausu fólki. Kannski er ég bara eitthvaö sérstakt fyrirbæri. Mér finnst t.d. alls ekki eins og ég eigi þetta barn. Ég er viss um að hvaöa barn sem umgengist mig myndi hafa sömu áhrif á mig." Einn var sá hlutur sem haföi truflandi áhrif á hjónaband Stein- becks en það voru óskemmtilegar afleiöingar frægðarinnar. Hann og Gwendolyn festu kaup á veglegu húsi í Monterey og ætluöu að taka upp fasta búsetu þar, en þau fundu fljótt aö þau voru litin hornauga. Lífiö er fólk en ekki staöir „Þaö sem hryggir mig mest er hiö áberandi hatur sem rithöfundar og gervi- rithöfundar hér um slóðir hafa lagt á mig. Þaö verður ekki iangt þangað til aö fiskimenn veröa þeir einu sem tala viö míg. Manstu hvað ég var ánægöur þegar ég flutti frá New Vork til Monterey. Þaö er alveg eins og aö fara heim. En viötökurn- ar sem viö höfum fengið hér eru skratti kuldalegar. Öfund, hatur og baktal. Þaö voru mistök aö koma hingað en ég ætla ekki aö láta þau ríöa mér aö fullu. Þessi tilfinning sem ég hef, er ný fyrir mér. Ég hef reynt aö leyna henni, útskýra og skilgreina hana og jafnvel gera grín að henni en hún er samt sem áöur alltaf til staðar. Okkar gömlu vinir fyrir utan Ed kæra sig ekkert um aö fá okkur tilbaka. Þaö sem þeir álíta frama stendur í veginum. Þorpsbúar og aðrir sem búa í grenndinni eru hreint og beint fjandsamlegir. Ég hló þegar enginn vildi leigja mér skrifstofu en þegar bærinn tók að skammta okkur gas þá var mér ekki lengur hlátur í hug. Enginn iönaöarmaöur er fáanlegur til aö vinna í húsinu okkar á sama tíma og verið er aö byggja 60 leiguíbúöir. Og viö getum ekki einu sinni fengiö neinn til aö skipta um fúna fjöl í eldhúsinu. Þetta eru bara tvö dæmi af mörgum. Þaö er eins og allir séu aö ofsækja mig og þaö er hlutur sem ég líö ekki. En ég kem ekki til meö aö hleypa af neinum fallbyssum. Viö ætlum aö dvelja í Mexíkó í fjóra eða fimm mánuði, og síöan sjá hvort loftið hefur eitthvaö hreinsast meöan á fjarveru okkar stendur. Ég segi þaö satt aö ég var miklu hamingjusamari í New York. Lífiö er fólk, ekki staöir. Hér er enginn sem hefur unniö sér frægö og frama á sama hátt og ég og fólk er grimmúöugt í minn garö. Hér er enginn sem ég get talað viö nema Ed. Ég hef vilja og getu til aö gleyma frægöinni en þetta fólk hvorki vill né getur. Þetta er ekki lengur mitt land. Þaö kemur ekki til meö aö viöurkenna mig fyrr en ég er dauður. Þetta gerir mig mjög sorgbitinn." Ekki löngu eftir að þetta var skrifað fluttu Steinbeck hjónin alfariö til New York. Gwendolyn kveöur eftir fimm ára hjónaband „New York er dásamleg borg," skrifaöi hann „Ég er farinn aö festa rætur hér. Þessi staöur mun innan skamms verða höfuðborg heimsins. Hann er ekki líkur neinum öörum stað. Fólkið er mjög umburðarlynt. Mannvonskan sem gerir aðrar borgir ófullkomnar er sleikt upp og gleypt í heilu lagi í New York. Hún er svo sannarlega mesta borg heims, hvorki góð né ill aöeins einstæö." Samband John Steinbeck og Gwendolyn var oft á tíðum storma- samt og loks sauð uppúr eftir fimm ára hjónaband. „Eftir fjögurra ára óhamingju og bitur- leika hefur Gwendolyn ákveöiö aö fara fram á skilnaö," skrifaði Steinbeck hinum sænska vini sínum Bo Beskow. „Þetta er sama gamla sagan um vonleysi kven- kynsins. Hún vill eitthvað sem ég get ekki geffö henni svo hún verður aö halda áfram aö leita. Kannski á hún eftir að finna út aö enginn getur gefiö henni þaö. En hún um þaö. Hún hefur skorið á öll bönd. Henni líður mun betur núna og hún gæti jafnvel orðiö vinur minn. Hún fær börnin til aö byrja meö allavega. Og ég fer aftur til Monterey til aö safna kröftum og anda að mér heilnæmu sveitalofti. — Hún gerði mér einn greiöa. Hún fyrirgerði ást minni á henni með því aö særa mig á grimmdarlegan hátt svo áfallið er ekki eins mikiö.2 Jafnvel þó Steinbeck reyndi að bera sig vel ólgaði allt og kraumaöi innra með honum. Honum varö mjög lítiö úr verki og þaö endaöi með því aö starfsmanneskja útgáfufyrirtækis hans, var gerö út af örkinni til aö reyna að örva hann til dáöa. Hér kemur greinargóð lýsing starfsmann- eskjunnar Mildred Lymon á afleiðing- um skilnaðarins á Steinbeck: l tygjum við kven- mann — það boðar allt annað en gott „Andlegt ástand hans er bágborið og þaö veldur honum áhyggjum hvaö afköst hans eru lítil aö vöxtum. Ef ferð hans til Mexíkó verður honum ekki til ánægju- auka þá veit ég svo sannarlega ekki hvaö á eftir aö gerast. Varnarkerfi þaö sem hann hefur byggt upp í kringum sig er alltaf aö störfum og þaö er erfitt aö nálgast hann. Þaö sem John þarfnast mest núna er sjálfsagi. Ég er hrædd um aö annað vaki fyrir honum meö Mexíkó- för sinni en skriftir. Ég heyrði töluvert um einhvern kvenmann sem hann er í tygjum viö þar, meöan ég dvaldi hjá honum og þaö boðar allt annað en gott. Hún flakkar á milli manna og er aldrei lengi meö þeim sama. John skrifar tugi bréfa á hverri nóttu. Skapferli hans er mjög einkennilegt og hann hefur mjög sérstæöar hugmyndir um kvenfólk þessa dagana. Hann borðar óreglulega og þá aöallega næringar- snauöan mat. Hann er seint á fótum og sefur út og reynir af fremsta megni aö fullvissa sjálfan sig um aö hann sé ánægöur meö þetta líferni." Skoðanir Steinbecks á amerísku kvenfólki voru mjög ofstækisfullar eftir aö Gwendolyn sagði skilið við hann. Hér kemur smá sýnishorn sem ætti að nægja til aö ná út svitanum á sérhverri kvenréttindakonu. Amerískt hjónalíf: Fyrsta þrepið í tröppum hóruhússins „Ég held aö ég gæti elskaö evrópu- konu, negra eöa kínverja en ekki hina dæmigerðu amerísku konu sem er aö Framhald á bls. 23 Heimilislausir „Oklarar" sem yfirgáfu heimkynni sín og freistuöu gæfunnar í Kaliforniu. Steinbeck lýsir baráttu þeirra fyrir lífinu á eftirminnilegan hátt í „Þrúgun reiöinnar".

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.