Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1983, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1983, Blaðsíða 14
Liðsöfnun bæði með góðu og illu 4. hluti. Ásgeir Jakobsson tók saman. Kallað úr konungsgarði Þórður kakali hlýtur að hafa hatað þennan konung sinn, sem þannig lék sér að honum í raun- um hans, sárum harmi og þörf til hefndar, þar til konungur þarf að nota Þórð til að koma föðurlandi hans undir sig. Þórði getur ekki hafa verið það neitt tilhlökkunarefni, að vita það, þegar hann leggur sig allan fram í baráttunni til hefnda og til að reisa við merki ættar sinnar, að hann hefur ekki fyrr unnið sigur á Kolbeini og reist merkið, að kallað er úr konungsgarði og hann minntur á, að sigurinn sé ekki hans né hans ættar, heldur Hákonar konungs, þar sem Þórður sé hirðmaður hans. Hirðmaður í þennan tíma hlaut mikið ámæli af því að svíkja konung sinn; það voru al- gerlega ófyrirgefanleg drottins svik og konungsmönnum var skylt að drepa þann mann, ef þeir komust í færi við hann. Og Hákon átti í handraðanum ein- mitt hirðmann til þess, þar sem var Gissur Þorvaldsson, sem nú var geymdur úti hjá konungi á sama hátt og Þórður áður og í sama skyni, þar til séð yrði hvernig Þórði reiddi af og reyndist kóngi sínum. Hákon hefur treyst Þórði illa til annars en drepa Kolbein og Þórður var ekki í vafa um að tækist honum það og stingi þá við fótum í konungsþjónustunni, þá yrði Gissur sendur á hann og sú sendiför yrði Gissur sízt óljúfari en sú sem hann fór að konungsboði í Reykholt 1241. Nú hefur það eflaust ekki staðið Þórði kakala fyrir svefni, þótt hann ætti í vændum, þegar hann hefði sigrað Kolbein, að taka upp baráttu við Gissur; það gæti miklu heldur hafa verið honum ánægjuleg tilhugsun, en hitt kann að hafa staðið honum fyrir svefni nótt og nótt, að hann veit sig vera að vinna meir fyrir Hákon konung en sjálfan sig og sína ætt og sigurinn á frænda sínum geti reynzt sér skammvinnur. Sigurvegarinn yrði þessi kóngur, sem hann hataði. Það kann að hafa legið nokk- uð margslungin merking í þeim orðum Þórðar í ræðu hans í Haga, þegar hann jafnar saman dauðanum og sigrinum „og er þar góður hvor upp kemur“. Frá Haga fór Þórður norður til Hrafnseyrar. Sonur Stein- unnar og Odds Álasonar var Hrafn og hann og Svarthöfði voru farnir, þegar Þórður kom til Hrafnseyrar til brúðkaups norður í Hjarðardal. Þórður sendi „þegar um nóttina mann norður í Hjarðardal að þeir Hrafn og Svarthöfði skyldu koma til móts við hann á Sönd- um en Bárður Þorkelsson, sem kallaður var Sanda-Bárður, bjó þá á Söndum. Þeir komu strax og þeim barst orðsendingin og þeir gengu á tal allir saman Þórður, Sanda-Bárður og þeir Hrafn og Svarthöfði. Þórður sagði þeim sína ráðagerð, að hann vildi koma fram hefndum á Kolbeini og rétta hlut sinnar ættar." Hrafn Oddsson kemur til sögu Það vafðist ekki fyrir Svart- höfða Dufgussyni að svara: Hann sagði sér þá í hug „er Sturla bróðir þinn var drepinn frá oss, en vér allir hraktir og skammaðir, að vér myndum fegnir verða, ef nokkur vildi þess réttar reka. Skaltu og eigi bænastað þurfa, slíkt er vér megum veita þér.“ Sanda-Bárður sagði það ráð taka, sem þeir gerðu Eyrar- menn, „hefur mér það lengi vel gefizt." „Þórður spyr: „Hver er sá hinn ungi maður? Því leggur þú ekki til?““ Hann kvaðst Hrafn heita og vera Oddsson. Þórður kvaðst hafa heyrt hans getið „eða viltu nokkuð vera í ferðum með oss?“ Hrafn sagðist vera ungur og lítt til ferða fallinn, hann var þá sextán vetra er Þórður kom í Vestfjörðu, og „hefi ég eigi í ferðum verið með höfðingjum hér til.“ Þórður sagði Hrafni ærna nauðsyn að vera mótgangsmað- ur Kolbeins fyrir sakir dráps móðurbræðra hans og „létust þar engir menn jafngöfgir fyrir utan þá Sighvat, föður minn og sonu hans, sem þeir Sveinbjörn og Krákur." Hrafn sagði, að það skyldi ekki hvorttveggja vera, að hann gæti lítið lið veitt Þórði og Þórð- ur þyrfti að ganga eftir því litla liði, sem hann gæti veitt honum. Þórður varð þessu feginn, því hann sagðist vita frændastyrk Hrafns mikinn. Alltaf slapp hann úr höndum óvina sinna Með þessum hætti hefst sagan af Hrafni Oddssyni, en af hon- um er mest sagan af öllum ís- lenzkum mönnum á síðara hluta 13du aldar. Hrafn var hermaður mikill og vitmaður. Honum var um það líkt farið og Sturlu Þórðarsyni, að það var sama hversu óvænlega horfði fyrir honum, alltaf slapp Hrafn úr höndum óvina sinna, þótt hann biði ósigur í orustu, og þeir ættu enga heitari ósk en drepa hann. Hrafn gekk vel fram í orustum og hlífði sér ekki, hann var allt- af framar í fylkingu en Sturla, en var oftast á bak og burt, þeg- ar óvinir hans höfðu unnið sigur og fóru að aflífa þá, sem þeir náðu til. Það horfði óvænlegast fyrir Hrafni vorið eftir Flugumýrar- brennu. Þá þurfti hann að ná sáttum við Gissur og það var ákveðinn með þeim fundur í Laugardal syðra og svo segir frá í Islend- ingasögu Sturlu: „Voru áður grið seld. Skyldu hvorir koma með tólfta mann, en Gissur kom með fjóra tugi manna. Þótti Andrési Sæmunds- syni (hann var meðal- göngumaður) Gissur þá eigi trúlegur og Þórði syni hans. Þeir voru þar báðir með Hrafni. Settust menn niður og töluðu úti, og var Gissur þess harðari í tal- inu, er þeir höfðu lengur talað. Þá gekk að Hrafni Teitur Álason og mælti við hann eintal, bað hann öllu því játa, er Gissur beiddi hann — kvað honum eigi annað duga mundu, þar sem þá var komið. Og svo gerði Hrafn. Sór þá Hrafn Gissuri eiða, að hann skyldi aldrei honum í móti vera og aldrei veita brennu- mönnum í mót honum. Skildu þeir við það. Reið Hrafn vestur til sveita skírdagsnótt og langafrjádag, allt hið efra um fjöll frá Skarði og kom vestur í Dali að páskum. Gissur sagði svo sjálfur síðan, að hann kvaðst eigi vita, hvað Hrafni hafði hlíft á þeim fundi, því að hann kvaðst einráðið hafa áður fyrir sér að meiða 14 hann að nokkru, blinda eða gelda.“ Það sýnist nú hafa reynzt heldur lítið hald í eiðum á Sturl- ungaöldinni og það er ekki að orðlengja það, að um mitt sumar var Hrafn kominn af stað með liðsafnað ásamt Eyjólfi ofsa, aðal-brennuvarginum, og þeir ætluðu að fara að Gissuri, en hann slapp þannig, að þeir höfðu sent njósnarmann á und- an sér og hann flutti þeim ranga fregn um ferðir Gissurar. Giss- ur var hinn þriðji höfðingi á Sturlungaöld, sem var ódrep- andi, eins og kunnugt er. Hrafn lifði Gissur og alla sína höfuð- óvini og varð hirðstjóri yfir öllu landinu og riddari að nafnbót og titlaður hérra Hrafn. Hrafn hafði ætlað utan með Svarthöfða um sumarið 1242, en varð afturreka ásamt þeim Dufgussonum, sem áður segir. Þótt hann væri aðeins 16 vetra þegar fundum hans og Þórðar bar saman, en hann verður þó meðal þeirra manna í liði Þórð- ar, sem hann treysti bezt og Hrafns er jafnan við getið, þeg- ar mest er raunin. Þótti mönnum hann stirt tala í fyrstu Þórður fór að loknu erindi sínu á Söndum norður í Hjarðardal og kom þar áður en menn fóru frá brúðkaupinu. „Voru þar allir hinir beztu menn fyrir vestan Isafjörð." Talaði Þórður þá langt erindi. „Hafði hann upphaf á sínu máli, að hann krafði þar alla menn lið- veizlu og uppstöðu svo skjótrar, að allir skyldu komnir í Saurbæ á Allraheilagramessu". Það er í lok Mikjálsmessu (29. sept.) að Þórður er í Hjarðar- holti. Glöggt er, að hann hefur ætlað að bregða hart við, þegar hann vill hafa náð saman liði til herferðar 1. nóvember (Allra- heilagramessu) og annað hitt, að hann vílar ekki fyrir sér, enda gat það komið Kolbeini á óvart, að hefja hernaðinn komið langt á haust og allra veðra von og því áhættusamt að leggja í langferðir um heiðar og fjöll með mikinn liðsafnað. „En er Þórður hafði lokið ræðu sinni, þóttust menn það finna, að hann myndi vitugur maður, þegar er hann fengi stillt sig fyrir ofsa.“ En nokkuð þótti mönnum hann stirt tala í fyrstu, en þess að djarfari og snjallari var hann í málinu, er hann hafði fleira mælt og fjölmennara var. „Þeir menn svöruðu í fyrst- unni, er í eiðum höfðu bundizt með Kolbeini um haustið, — Kölluðu sér eigi sóma að fara að Kolbeini, meðan hann gerði eng- in afbrigði við þá, og kváðu eigi þurfa um það að leita, að þeir myndu standa upp með Þórði, en kváðust vilja vera vinir hans í öðrum hlutum." Þórður reiddist þessum svör- um ákaflega og kvaðst krefjast þess, að menn á Vestfjörðum væru annað hvort með sér eða móti og ekki ætla sér minna, ef hann kæmi aftur úr sinni ferð lifandi, en „skrifta yður að maklegleikum, er nú láta sér verst fara.“ Bændur sögðu hann eiga nógu mörgum illt að launa, þó að hann heitaðist ekki við þá. Þórður sagði, að þeir þyrftu ekki að minna sig á harma sína og sló þá í heitan með þeim og kváðust bændur eigi mundu blotna við það. Fór Þórður þá á Sanda um kvöldið, en daginn eftir bauð Bárður honum bú sitt. Þórður tók við búinu. Þótti þetta geysi- stórmannlegt af Bárði. „Litlu síðar sendi Þórður menn sína út í fjörðu að kveðja menn upp, en sjálfur fór hann norður til Önundarfjarðar og fékk þar fátt eitt af mönnum og þaðan fór hann inn til ísafjarð- ar og fékk þar nær enga menn. En Isfirðingar, vinir Kolbeins, gerðu honum njósn." Þórður hefur líklega goldið Órækju frænda síns um norðan- verða Vestfirði, því að Órækja hafði verið illa þokkaður, en líka hefur það komið til, að Kolbeinn hafði af hyggindum sínum sett niður sína menn víða við Isa- fjörð og auk þess bundið marga í eiðum við sig sem fyrr segir. Kolbeinn hefur vitað sem varð, að þarna væri margur honum ótryggur, ef ekki væri vel um hnútana búið. í héraði og ríki Hrafnseyrar- manna í Arnarfirði héldu engir eiðar, þar var einhuga Sturl- ungalið og eins á Barða- ströndinni, þar sem Gísli í Bæ var fyrirmaður. Gestasveit til að sjá um liðs- heimtu með hörðu Þórður hefur viljað láta sverfa til stáls í liðsbóninni. Skapið hefur greinilega hlaupið með hann í gönur þarna í Hjarðarholti, en í raun dugði honum ekki annað en snöggt áhlaup með offorsi. Hann hafði engan tíma til að vinna menn til fylgis við sig með lagi og hægð. Kolbeinn hefði ekki gefið honum næði til þess. Þá er það og, að Þórður gerir sér ljóst að honum dugir ekki annað en menn séu með honum og honum myndi lít- ið gagnast hálfvolgir menn, hann fengi aldrei lið að fjöl- menni til móts við Kolbein, sem gat sótt sér liðsafla í tvo fjöl- mennustu landshlutana, Norð- ur- og Suðurland og átti einnig marga stuðningsmenn á Vestur- landi. Þórður hefur ætlað sér að hafa einvalalið, það litla sem hann fengi af mönnum. Hann reynir því ekki að dekstra menn, heldur fá úr því skorið, hverjir séu með honum og hverjir ekki. Þórður varð þó að slaka á kröf- unum í þessu efni og leggja áherzlu á höfðatöluna ásamt tryggum kjarna. Margir Isfirðingar og Önfirð- ingar veittu síðar Þórði gott lið, ekki sizt í Flóabardaga. Þórður fór norður til Stein- grímsfjarðar í Kallaðarnes. Þar bjó frændi hans Ásgrímur Berg- þórsson, sem víða kemur við sögu með Sturlungum. Ásgrím- ur brást Þórði um liðsemdina, sagðist sitja svo nærri Kolbeini að hann gæti ekki gert sig beran að fjandskap við hann. Bændur í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.