Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1984, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1984, Blaðsíða 7
 ^ Ifíihi f V Æ Wv‘ V \ i §1’ $ ►'S, \ Sjöundi dagurinn í Paradís Ein þekktasta mynd Muggs — nú í eigu Listasafns íslands. En hvernig komst hún frá Danmörku til íslands? EFTIR LEIF SVEINSSON Maður var nefndur Poul Uttenreitter, danskur að ætt, lögfræðingur að mennt, blaðamaður og rithöfundur með lista- sögu að sérgrein, einkum málaralist. Hann var fæddur 15. desember 1886, dó 1956. Bjó í Kaupmannahöfn. Hann reit um fjölda listmálara, m.a. bók um Mugg (Guð- mund Thorsteinsson) 1930 og aðra um Jón Stef- ánsson 1936. Poul var góðvinur Muggs og eignað- ist margar myndir eftir hann, m.a. átti hann fjórar myndir á Den islandske udstilling á Char- lottenborg í Kaupmannahöfn 1927. Muggur dó eins og kunnugt er 26. júlí 1924, aðeins 32 ára. Skömmu eftir að Poul Uttenreitter hafði lokið við bók sína um Mugg, hringir hann í Júlíönu Sveinsdóttur, föðursystur mína, og segir henni, að nú sé hann búinn að gera nóg í minningu vinar síns og nú vilji hann selja henni Sjöunda daginn í Paradís fyrir Dkr. 500.00. Mynd þessi, sem er klippimynd (glitpappírslíming) var unnin af Mugg fyrri hluta árs 1920 og telur Björn Th. Björnsson listfræðingur í hinni merku bók sinni um Mugg (Helgafell 1960), að þetta verk muni lengst halda nafni hans á lofti allra mynda hans. Björn segir m.a.: „Guð allsherjar gengur hægum skrefum inn á sviðið alskapað, eldrautt höfuð hans er tákn almættisins, og englarnir tveir, sem fylgja honum, eru persónugervingar þessara ár- daga. Trén teygja fram greinarnar og dýrin hneigja sig fyrir meistara sínum — meira að segja kengúrubarnið stingur höfðinu upp úr pok- anum og vill líka fá að sjá. Litirnir stemmast saman í hátíðlegri rósemd, ómáðir af veðrum og sól.“ Júlíana segir við Poul, að því miður eigi hún ekki Dkr. 500.00, en hún skuli spyrja Gunnar Gunnarsson skáld, hvort hann vilji ekki kaupa myndina. Júlíana hringir í Gunnar, en hann vill ekki kaupa mynd Muggs, en segist hafa áhuga á að kaupa mynd eftir Júlíönu. Heimsækir hann síðan Júlíönu og kaupir af henni olíumálverkið Smali á heimleið, sem Júlíana hafði málað í Borgarfirði 1924, á Dkr. 500.00. Júlíana kaupir síðan Sjöunda daginn í Paradís fyrir þessa pen- inga. Maður var nefndur Elof Christian Risebye, f. 3. mars 1892, stundaði nám við Listaháskólann í Kaupmannahöfn á árunum 1914—21. Var þar samtíða Júlíönu Sveinsdóttur og fleiri íslenskum málurum. Hann varð prófessor við fresco- og mosaikdeild Listaháskólans í Kaupmannahöfn árið 1949 og starfaði þar til dauðadags 1961. Elof kynntist aldrei Mugg meðan báðir lifðu, en er hann kynntist verkum Muggs tók hann slíku ástfóstri við þau, að einstætt má telja. Nú er að segja frá Júlíönu, að hún er í sjöunda himni vegna þess að hafa eignast Sjöunda daginn í Paradís, en þá lítur Elof Risebye inn hjá henni og verður svo hugfanginn af myndinni að hann segir: „Þessa mynd tek ég með mér heim, ég læt þig hafa eitthvað í staðinn eftir mig.“ Síðan tek- ur hann myndina undir hendina og gengur út, en Júlíana stóð orðvana eftir. Þetta var hvorki fyrsta né síðasta myndin, sem Elof Risebye eign- aðist eftir Mugg. Hann safnaði 46 myndum eftir Mugg og gaf þær allar Listasafni íslands 5. ágúst 1958. Hann hafði þó áður látið reisa legstein yfir Mugg í gamla kirkjugarðinum í Reykjavík, og fellt í hann mosaikmynd, gullfallega, og ættu Reykvíkingar ekki að láta hjá líða að skoða þetta frábæra listaverk. Hann ætlaði sér alltaf til ís- lands að afhenda myndirnar sjálfur, en heilsa hans leyfði ekki íslandsför og kom það í hlut Júlíönu Sveinsdóttur að afhenda þær Listasafni íslands. Ein myndanna var Sjöundi dagurinn í Paradís. Hann var loks kominn heim. Leifur Sveinsson er lögfrædingur íReykjavík og framkvæmdastjóri í Timburvöruverzluninni Völ- undi. Legsteinn Gudmundar Thorsteinsson í Gamla kirkjugarðinum í Reykjavík með mosaik-myndinni eftir Risebye. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. FEBRÚAR 1984 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.