Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1985, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1985, Blaðsíða 9
Ein af myndum ínu Salóme á sýn- ingu Textílfélagsins á Kjarralsstöð- um. búsettur í Finnlandi. Það er þá ekkert mál, hugsaði ég mér sjálfri mér, og stefndi þangað í staðinn, og hóf að safna mér fyrir fari, sem gekk fremur erfiðlega, en að lok- um átti ég fyrir helgarferð til Stokkhólms og skellti mér af stað. Það var vorið ’83 og síðan hef ég búið hér í Finnlandi. Reyndar komst ég til Rómar í þrjá mán- uði í fyrra, og það þótti mér einstakt. Hér í Finnlandi hafði ég enga vinnustofu, svó ég teiknaði mest vatnslitamyndir, skissur, sem ég hugðist útfæra í Róm. Þannig vann ég markvisst að því að safna hugmyndum. Ég hafði líkað sankað að mér litum og efni, og með þetta allt saman rogaðist ég til Rómar, þar sem ég hafði aðstöðu í mjög fallegu og skemmtilegu umhverfi. Aftur Til Finnlands Þaðan fór ég aftur hingað til Finnlands og hef verið hér með ágæta vinnuaðstöðu, og unnið að þessari afmælissýningu textíl- félagsins. Annars stefni ég að þvi að halda einkasýningu í Gallerí Langbrók um mán- aðamótin júní/júlí. Hvaða augum er textflmyndlist litin í sam- anburði við aðra myndlist? — Það eru mjög skiptar skoðanir á text- ílvefnaði eða textílþrykki annars vegar og olíumálverkum hins vegar. Olíumálverkið er álitið vera raunverulegt málverk, myndlist, en um leið og efniviðurinn er orðinn tuska, finnst fólki að hægt sé að klippa hana niður í búta og skipta á milli sín. Gagnrýnendur nenna vart að skrifa um textílsýningar. Þeir rétt stinga inn nefninu og skrifa svo hvað þeim þótti um sýningarskrána, segir fna og hlær. Frá- gangurinn virðist vera aðalatriðið í þeirra augum: athyglin beinist of mikið af því hvernig myndirnar eru hengdar upp á vegg. TUSKUKERLINGAR ÚTI í BÆ Það vantar oft á að textílkonurnar sjálf- ar líti á sig sem listamenn, og því er ef til vill ekki undarlegt þótt aðrir geri það ekki heldur. Þær eru bara einhverjar tusku- kerlingar úti í bæ, sem þær náttúrulega eru, en það er allt í lagi að vera tusku- kerling. Það þarf ekki að vera neikvætt. Hér í Finnlandi eru margar góðar textíl- myndlistakonur, og því er gott að vera hér. Annars þeytist ég ekkert sérstaklega á milli þeirra: „Viltu vera vinkona mín,“ og allt það. Ég tek eftir því að ég narta í mjög margt hér bæði í sambandi við textíl og myndlist. Og ég fæ mjög mikið út úr dvöl- inni hér. Ég sit mikið ein með mínar pælingar án þess að hafa nokkurn kollega minn eða myndlistarmann í kringum mig. Fyrst þegar ég byrjaði á þessum myndum, sem ég sendi á sýninguna heima, var ég mjög óörugg og það vafðist fyrir mér hvort ég væri að herma eftir einhverjum ... þetta væri einhver endaleysa. En núna finn ég að ég get staðið undir þvi sem ég hef unnið að hérna. Ég hef glímt við þetta ein og ég finn að ég hef þroskast af verunni hér. Ég var mjög frjáls með minn vinnutíma þegar ég var heima á íslandi og alveg óháð öðrum. Núna átta ég mig meira á sjálfri mér í gegnum þann sem ég bý með. Gunn- ar, sambýlismaður minn, spurði mig til dæmis um daginn: — ína, er ekki allt í lagi? Er eitthvað að? — Jú, jú, það er allt í lagi, af hverju spyrðu að því? — Þú hefur ekki sagt aukatekið orð í allan dag! Þannig get ég verið mjög þögul. Reyni samt að taka þátt í því sem gerist í kring- um mig, en er í rauninni stödd allt annars staðar. Stundum verð ég að vera alveg ein- angruð, þegar ég vinn intímt að einhverri mynd. Það má enginn koma nálægt þar sem ég er að vinna. Þó ég sé ein heima við loka ég öllum hurðum, þannig að örugg- lega heyrist ekki í dyrabjöllunni. Ég ætla kannski að setja lit á efni og mér finnst ég vera óörugg með hvað út úr því gæti kom- ið. Það er svo persónulegt sem verið er að skaða... það kemur alveg innst frá hjart- anu. Eins líður mér þegar myndirnar fara á sýningu. Samt er afskaplega gott að sýna hlutina. Það er kapítuli sem hafa verður í huga og stefna markvisst að. TlL SVÍÞJÓÐAR OG Danmerkur Trausti Einarsson er búsettur I Finnlandi og er fréttaritari útvarpsins þar. Hann hefur lesið frönsku og franskar bókmenntir viö Sorbonne og lauk þaöan lic.-es-lettres prófi I sagnfræöi og mannvisindum. Slöar lauk hann cand.mag. prófi I sagnfræöi frá Háskóla íslands. Hann vinnur aö ritverki um sögu hvalveiða viö Island, sem Sagnfræöistofnun Háskóla Islands mun gefa út. ur að hafa í huga að hugmyndin getur verið lengi að brjótast um í kollinum, það getur tekið heilt ár áður en sjálf myndin verður til. Hvar stundaðir þú þitt myndlistarnám? — Ég útskrifaðist úr Myndlistar- og handíðaskólanum árið 1978. Þá fórum við fjórar vinkonur úr Myndlistarskólanum í ferðalag um Ungverjaland, Rúmeníu, Búlgaríu og komum einnig við í Grikk- landi, París og Amsterdam. Einhverra hluta vegna þótti okkur myndlistarsýn- ingar austantjalds ekki nægilega spenn- andi, því enduðum við alltaf á þjóðminja- söfnunum þar. Það var mun athyglisverð- ara, segir Ina og hlær. Þar vorum við dag- langt, hver í sínu horni að skissa, en nú- tímalistin höfðaði ekki til okkar: sósíalre- alisminn var þar upp um allt; þessir skilta- málarar ríkisins! Eftir þessa ferð fór ég til Svíþjóðar og komst inn á Textilinstitutet í Borás, þar sem ég var gestanemandi og einbeitti mér aðallega að þrykk- og ljósmyndatækni. Síðan fór ég til Kaupmannahafnar á Skole for Brukskunst, þar sem ég lærði ljós- myndatækni innan þrykks. I þeim skóla byrjaði ég á þessum margföldu myndum. Eftir það fór ég heim til að berjast við að gera eitthvað sjálf. Þá hafði ég verið i skóla i sex ár og þótti nóg komið. Þetta var vorið 1980. Annars tók mig langan tíma að átta mig á því hvernig ég ynni. Þetta er tímaskeið sem ég held að allir myndlist- arnemar gangi í gegnum, og það tekur sinn tíma að átta sig á því hvað í manni býr. f skólanum er allt sem til þarf: tæki, aðhald, kennarar á hverju strái, sem hægt er að ráðfæra sig við. En það er ekki hægt að setjast inn á vinnustofu og fara að skapa, fyrst þarf að vinna sér inn peninga til þess að lifa. Síð- asta veturinn, sem ég var heima, vann ég sem kennari í fjölbrautaskóla. Þá vann ég 1—2 daga í viku. Á hinn bóginn er kennsla illa launuð og því endar maður oftast með skúringardjobb við hliðina, eða tekur vinnutarnir og á svo frí inn á milli. Draumurinn er að vera i lausamennsku eða eins og sagt er „free lance". Þó nokkrir reyna að hafa þetta þannig, en það er mjög stressandi. Eitt sinn þeyttist ég um allt höfuðborg- arsvæðið og teiknað skilrúm fyrir fólk. Eg vann hjá húsgagnaverslun sem bauð þessa þjónustu. Þá kom ég inn í flest einbýlis- húsin í Breiðholti, Garðabæ, Kópavogi og víðar, og teiknaði. Fólk sagði mér hvernig það vildi hafa þetta og ég teiknaði það upp og áætlaði hvað það mundi kosta. Eitt sinn á leiðinni heim, hugsaði ég með mér: það sem ég hef selt í kvöld gæti nægt mér til þess að komast til Kína! Þetta var dæmigerð tískubylgja, eins og þær gerast heima: nú á að hafa skilrúm og þá kemur húsgagnaverslun þeirri þjónustu á fót. Þjónustan kostar ekki neitt, að fá teiknarann heim og ráðfæra sig við hann ... Að mörgu leyti var forvitnilegt að kynnast þessu. En, Guð minn góður, mér þótti þetta undarleg vinna. Frá því ég kom heim 1980 og fram til vorsins ’83 hafði ég vinnu og vinnustofu, og allt gekk vel. Fyrr en varði var ég einn- ig komin á bólakaf í félagsmál. Einhvern veginn er ekki hægt að sitja og þegja, og um leið og þú situr ekki og þegir er búið að grípa þig alls staðar. Það er alveg sama hvaða félög það eru, hjá mér var það text- ílfélagið. Og allt er þetta vinna sem unnin er í frítímum. Fyrst er að vinna sér inn peninga til þess að geta lifað, svo er reynt að vera á vinnustofunni og loks eru það fundir og félagsmál út um allan bæ. Að því kom að ég settist niður og fór að hugsa minn gang. Ég leigði í stóru kollekt- ífi, þar sem komin var upp sú staða að við urðum að finna okkur nýtt húsnæði. Mér fannst að litla lífið mitt yrði að breytast. r 'V* - " ''í-v iy': l 5 ■' x ' > Tilrómar Eins og ég sá þetta fyrir mér hafði ég einungis um tvo kosti að velja. Annað hvort keypti ég mér íbúð eða færi til Róm- ar. Þessu velti ég fyrir mér, kvöld eitt áður en ég fór að sofa, og morguninn eftir var ég staðráðin í því að fara heldur til Rómar. Ég hafði séð auglýsingu um ódýra vinnu- aðstöðu fyrir myndlistafólk á vegum Skandinaviska föreningen. Ég sótti um ár- ið 1983, en um jólin breyttist litla lífið mitt og mér snérist hugur. Ég var orðin ást- fangin af ungum og skemmtilegum manni, sem ég vildi helst vera hjá, en hann var Mynd eftir ínu, gerð 1985 og er 145x215 cm á stærð. Hún er á sýning- unni á Kjarralsstöðum. LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 23. MARZ 1985 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.