Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1985, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1985, Blaðsíða 8
„Eg er alltaf annars staðar en fólk heldur að ég sé .. “ í samtali við Matthías Johannessen sem birtist á sínum tíma í Kjarvalskveri: „Ég er ekki meistari sjálfur, ég er fjósamaður hans. En þeir sem vinna að einhverju öðru en meistarar í engu sér- stöku, það er ákaflega merkilegt, ef þú hefur kynnst því. Ég hef eðli til að vinna og það hef ég alltaf haft, en ég er ekki meistari." Þrátt fyrir þessi hógværu orð tókst Kjarval ekki að sporna gegn því að hann öðlaðist nafnbótina „meistari" í munni íslensku þjóðarinnar, einn fárra slíkra. Og á sýningunni á Kjarvalsstöðum nú í haust geta íslendingar enn einu sinni endurnýjað kynnin við meistara sinn. Enn einu sinni, já. Hvað verður þetta annað en ennþá ein Kjarvalssýningin? Skyldu menn ekki fara að verða leiðir á Kjarval? Þóra Kristjánsdóttir, listráðunautur Kjarvalsstaða, svaraði þessari oflát- ungsfullu spurningu þannig: „Það er ekki hægt að verða leiður á Kjarval. Hann var svo merkileg per- sóna, alveg burtséð frá málverkunum. Fólk hefur svolítið verið að einblína á furðuleg uppátækin í honum að undan- förnu og vissulega voru þau mörg hver heldur skrýtin. En ég er alveg sannfærð um að þetta hafi ekki verið neinar inn- antómar tiktúrur hjá honum. Hann var ... ja, hann var bara svona." Og hvernig þá? Því munu menn að líkindum geta kynnst allvel á sýning- unni í haust. Auk málverkanna sem spanna allan feril Kjarvals frá upphafi verður nefnilega lögð sérstök áhersla á að kynna manninn, persónuna Kjarval og verður sá hluti sýningarinnar að mestu byggður upp á munum og pappír- um sem hann átti sjálfur. „Þegar Kjarval fór á sjúkrahús, það- an sem hann átti síðan ekki aftur- kvæmt, þá ánafnaði hann Reykjavíkur- borg drjúgan hluta eigna sinna. Menn hafa kannski ekki verið alveg á eitt sátt- ir um það hvernig staðið var að þessari gjöf en það er óhætt, held ég, að leggja þennan skilning í málið,“ sagði Þóra Kristjánsdóttir ennfremur. „Og þessar eigur hans voru svo settar niður í kassa og kassarnir innsiglaðir þar til almenni- legt tóm gæfist til þess að flokka inni- haldið og kanna. Flestallir kassarnir Það er sjónin og náttúran sem vilja að ég búi til myndir Texti: IlJugi JökuJsson Þóra Kristjánsdóttir. Jóhannes Sveinsson Kjarval hefði orðið eitt hundrað ára hinn 15. október næstkomandi ef hann hefði lifað svo lengi. Og víst komst hann nær því en margur annar þótt núorðið verði ekki betur séð en önnur hver kerling haldi upp á aldarafmælið sitt. Kjarval lést hinn 13. apríl 1972 og var þá tæpra 87 ára að aldri. Og öll þessi ár féll honum varla verk úr hendi. Hann var sívinnandi að list sinni og oftast með pensil ellegar blýant milli stórgerðra fingranna enda var hann afkastamikill sem því nemur. í rauninni veit enginn ennþá hversu mörg málverk hann festi á striga um dagana, hvað þá hversu margar teikningar hann hristi fram úr erminni. 250 málverk eft- ir hann verða hengd upp á mikilli sýn- ingu sem Reykjavíkurborg stendur fyrir og opna mun á Kjarvalsstöðum (hvar annars staðar?) á 100 ára afmælisdegin- um, en allur sá fjöldi er þó ekki nema svolítið brot af öllum verkum málarans. Kjarval sagði sjálfur um vinnusemi sína hafa síðan verið innsiglaðir í læstri geymslu fram á þennan dag. Nú erum við að fást við að opna þá og skoða inni- haldið. Á því sem upp úr þeim kemur byggjum við þann hluta sýningarinnar sem fjallar um manninn Jóhannes Kjarval og verður hann á göngum húss- ins en málverkin í báðum sölunum. Auk þess verður stillt upp stækkuðum ljós- myndum af honum og þess háttar." Það kennir margra grasa í kössunum hans Kjarvals, enda voru þeir rúmlega 120 talsins. Kjarval eins og margir aðrir þeirrar náttúru að henda helst aldrei neinu og því er innanum heldur lítil- fjörlegt dót en inni á milli hinir merk- JJ5. KjarvaJ: RegntjöM vorsins 1964. JJS. Kjarval: Þorpið 1947-67

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.