Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1986, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1986, Blaðsíða 8
Ljósmynd/Valdemar Unnar Valdemarsson James Hancock, forseti breska fuglafræðiagafélagsins, fyrir utan heimili sitt í Winchester i Englandi. — Kálfastrandarvogar við Mývatn. dvaldi þar um vikutíma og sótti meðal ann- ars Vestmannaeyjar heim. Drýgstum tíma varði hann þó við Mývatn. Hancock geymir greinilega góðar minningar úr íslandsferð- inni. „Landið ykkar er heillandi áfangastað- ur fyrir erlenda aðkomumenn, ósnortið og laust við margháttaðan átroðning og meng- un, sem verður nú æ alvarlegri víða um lönd. Þið íslendingar eigið að hlúa að sér- kennum lands ykkar og stórbrotinni náttúru. í öllu þessu getur falist dtjúg tekjulind ef rétt er að málum staðið en þið verðið að fara að öllu með gát, megið ekki ganga of nærri þessum viðkvæma íjársjóði." í SÁTT VlÐ UMHVERFIÐ James Hancock lætur sér greinilega ekki á sama standa um landið, sem hann sté í fyrsta sinn fæti á fyrr á þessu sumri. Hann ætti svo sem að vita hvað hann syngur, svo mjög sem hann hefur látið sig varða sam- skipti manns og náttúru í sínu eigin heimalandi, sem forseti Breska fuglafræð- ingafélagsins. Félagið hefur meðal annars á sinni könnu eftirlit með fuglalífi víða um Bretland og gerir yfirvöldum viðvart ef ein- hveijum fuglategundum virðist hætta búin vegna ágangs mannskepnunnar. En eiga íslendingar við sömu vandamál að glíma og Bretar í þessu efni? „Nei, nei. Ekki enn sem komið er a.m.k., alls ekki. Aðstæður uppi á íslandi eru vitan- lega allt aðrar en í þéttbýlinu hér í Bretlandi. Hér eykst sífellt þrýstingur mannsins á griðlönd villtra fugla og við í Fuglafræðinga- félaginu höfum í mörg hom að líta. Á íslandi horfir hins vegar allt öðruvísi við; þar eru íjölmörg ósnortin svæði, sem státa af þrótt- miklu og fjölskrúðugu fuglalífi. Þar á meðal er Mývatnssvæðið, sem ég kynntist í ís- landsferð minni og heillaðist af. Ég hef kynnst fjölmörgum vatnasvæðum um allan heim og ég fullyrði að óvíða virðist fuglalíf dafna jafn vel og við Mývatn. Ég fann það giögglega á ferð minni um Mývatnssveit hversu heimamenn eru stoltir af þeirri stórbrotnu náttúrufegurð og ijöl- skrúðuga lífríki sem þar blasir við. Þetta fólk lifír í fullkominni sátt við umhverfí sitt og lætur sér annt um að rækta eðlileg tengsl við það. Það nýtir sér það sem náttúr- an hefur upp á að bjóða en gætir þess jafnframt að ganga aldrei of nærri landinu og öllu sem þar þrífst. Bændur taka eitt egg úr hreiðri hér og annað þar — þeir sækja fískifang í Mývatn — en allt er þetta gert í fullkominni sátt við móður náttúru. Lífríkið við Mývatn er dýrmæt perla sem ekki má glatast Rætt við James Hancock forseta brezka fugla- fræðingafélagsins EFTIR VALDIMAR UNNAR VALDIMARSSON ývatnssvæðið er sannkölluð paradís fyrir þá sem áhuga hafa á fuglaskoðun og stór- brotinni náttúrufegurð. Eg dvaldi þar í fjóra daga og í góðu yfirlæti og spurningin er ekki hvort ég fer þangað aftur heldur hve- nær.“ Forseta Breska fuglafræðingafélags- ins, James Hancock, þótti með öllu óþarft að spara stóru orðin um hið íjölskrúðuga fuglalíf við Mývatn og náttúrufegurð á þeim slóðum er fréttaritari Morgunblaðsins ræddi við hann á heimili hans í Winchester í Eng- landi fyrir skömmu. James Hancock og Sylvia, eiginkona hans, tóku rausnarlega á móti fréttaritaran- um frá íslandi, sem kominn var til að ræða við James í tilefni af nýlokinni íslandsferð hans. Heimili þeirra hjóna er snoturt og umhverfíð spillir ekki fyrir. Þetta er í út- jaðri Winchester, fomfrægrar borgar, sem geymir mikla sögu. Hér una þau hjónin hag sínum vel og James Hancock hefur gott næði til að sinna áhugamálinu, sem tekur hug hans allan, fuglafræðinni. VlRTUR FRÆÐIMAÐUR Hann er sjálfmenntaður fuglafræðingur. „Þegar ég var ungur var þetta varla til sem sérstök fræðigrein, hvað þá að unnt væri að hafa lifíbrauð af fuglafræðinni." Hancock sótti lifibrauð sitt á aðrar slóðir. Um langt skeið var hann forstjóri olíufyrirtækis nokk- urs og þurfti vegna starfs síns að ferðast vítt og breitt um heiminn. Á erilsömum ferðalögum gerði Hancock sér iðulega far um að leita hvfldar frá amstri viðskiptalífs- ins með því að virða fyrir sér og kanna fuglalíf um víða veröld. Fyrir sex árum komst hann á eftirlaun, sagði skilið við olíuiðnaðinn en settist svo sannarlega ekki í helgan stein. Af nógu er að taka í fuglafræðinni og hefur Hancock heldur betur látið hendur standa fram úr ermum undanfarin ár. Hann er í hópi virt- ustu fræðimanna á þessu sviði og einn sá afkastamesti. Eftir hann liggja íjölmargar ritsmíðar um fuglalíf hinna ýmsu landa, hann er eftirsóttur fyrirlesari, hefur haft hönd í bagga með gerð íjölmargra heimild- armynda og þannig mætti lengi telja. Og nú hefur hann kynnst íslandi. Hann fór þangað í boði Flugleiða og ferðamálaráðs,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.