Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 47

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 47
SÍÐUSTU ÁBÚENDUR í KRÝSUVÍKURSÓKN tytzta og fljótfarnasta leiðin til Krýsuvíkur, að minnsta kosti fyrir þá, sem á höfuðborgarsvæðinu búa, er að aka til Hafnarfjarðar, suður og niður Hvaleyrarholtið og beygja við fyrstu vegamót til vinstri, halda Hjónin í Stóra Nýjabæ héldu lengst út og komu öllum sínum seytján börnum til manns EFTIRÓLAFE. EINARSSON síðan þvert yfir Kapelluhraun, þar til Að Snókalöndum kemur. Aka þá til hægri og halda ferðinni áfram upp í Vatnsskarð og enn áfram eins og leið liggur meðfram Kleifarvatni, allt þar til kemur að Krýsuvík. En hún var, eins og mörgum er kunnugt, höfuðból Krýsuvíkursóknar, en fór í eyði um síðustu aldamót. Bærinn stóð undir samnefndu fjalli (Bæjarfelli) stuttan spöl fdrá Krýsuvíkurkiriq'u. Um það bil 10 til 15 mínútna gangur var frá höfuðbólinu til Stóra-Nýjabæjar, sem var austan við Stóra-Kambafell á Austurengjum. Stóri-Nýjibær er þekktastur fyrir, að ábúendur, Guðmundur Jónsson frá Hlíð í Selvogi og kona hans, Kristín Bjömsdóttir frá Herdísarvík, bjuggu þar myndarbúi og héldu lengst út við búskapinn allra þeirra, sem í Kiýsuvíkursókn bjuggu. Þess ber að geta, að Guðmundur Jónsson frá Selvogi missti föður sinn, þegar hann var á fermingaraldri, með sviplegum hætti. En faðir hans féll niður um ís á Hlíðarvatni og dmkknaði. Mikill harmur hefur það verið syninum. Og varð hann að taka að sér forsjá heimilisins strax eftir fermingu. En sú þolraun, sem föðurmissirinn hlýtur að hafa orðið syninum unga, mun óefað hafa mótað hann og hert, enda var Guðmundur alla tíð mikill búforkur, jafnhliða því að vera afbragðs formaður á vetrarvertíðum um áratugi. Næsti bær við Hlíð í Selvogi, var Herdísarvík. Það gat því varla hjá því farið, að þau Kristín frá Herdísarvík og Guðmundur frá Hlíð kynntust. Tókust með þeim ástir þegar á unglingsámm. Og vom þau gefín saman í hjónaband í Krýsuvíkurkirkju af séra Eggert Sigfússyni á Vogsósum, þann 8. september 1895. Hún 18, en hann 29 ára að aldri. Eins og fram hefur komið, var Guðmundur í Stóra-Nýjabæ afburða búforkur og jafnhliða því mikill formaður. Gerði út bát frá Herdísarvík ámm saman í félagi við Símon á Bjamastöðum í Ölfusi og var ennfremur formaður í Grindavík í þijár eða fjórar vertíðir fyrir Júlíus Einarsson, ættaðan þaðan. Undirritaður ræddi við þau Nýjabæjarsystkini, Hrafnhildi Guðmundsdóttur og Sigurð Guðmundsson. Þau vom sammála um, að ekki hafi verið einmanalegt á heimili þeirra í Nýjabæ. Alltaf nóg að gera, segir Sigurður. Auðvitað gat það verið erfitt á stundum, t.d. var um fimm kflómetra gangur milli að Krýsuvíkurbergi og þangað þurfti oft að fara til fugla- og eggjatöku frá heimili þeirra og austur að Herdísarvík var vegalengdin um það bil 10 kflómetrar. Og sama var að segja um leiðina vestur að ísólfsskála, hún er svo til jafn löng. Þessi nefndu býli vom næstu nábúar okkar og oft heimsótt, þegar vel stóð á, og veður hamlaði ekki, segir Sigurður að lokum. Það vom Nýjabæjarhjónin, frú Kristín Bjömsdóttir, heimasætan frá Herdísarvík og Guðmundur Jónsson frá Hlíð í Selvogi, sem lengst héldu út. Þau hófu búskap að Stóra-Nýjabæ í Krýsuvík árið 1893 og fluttu þaðan alfarin 1933 til Hafnarfjarðar og bjuggu Fjölskyldan frá Stóra-Nýjabæ við Krísuvík Sigurður, Vilhjálmur, Guðmundur, Bjarni, Eiríkur, Þorgeir, Einar, Lovísa, Ingibjörg, Jónína, Sólveig, Þórlaug, Þuriður, Elín, Sólbjörg, Hrafnhildur, Guðrún. Á miðri myndinni eru foreldrar barnanna, Guðmundur Jónsson og Kristín Bjömsdóttir. Þannig voru húsakynnin í Stóra-Nýjabse, þar sem þau Krístín og Guðmundur ólu Nýjabæjarþjónin, Knstín Björnsdóttir frá Herdísarvík og Guðmundur Jónsson frá upp sinn stóra barnahóp. Hlíð í Selvogi. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. DESEMBER 1986 47

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.