Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 6
Frá uppfærslu sem frá er sagt í greininni á Luciu di Lammermoor: Frá vinnstri: Michael Sylvester (Edgardo), Erie Mills (Luc■ ia), Harry Dworchak (Raimondo), og Wiiiiam Stone (Enrico). anna sjálfra. Öll umgerð sýningarinnar var líka vönduð, látlaus og aðlaðandi. MeiraUm Metropolitan-óperuna Byggingamar sem hýsa Metropolitan- óperuna annars vegar og Borgaróperuna hins vegar snúa homum saman við það hellulagða torg með gosbrunni í miðju sem lýst var í fyrri grein. Milli aðaldyra þeirra em aðeins nokkrir tugir metra. En með þeim er annars ýmislegt ólíkt. Metropolitan á meira en hundrað ára sögu að baki og var lengi vel næstum eina ópemhús í Banda- ríkjunum sem mark var á takandi. Hún þykir einhver „fínasta" ópera í heimi og er lokatakmark flestra ópemsöngvara á frama- braut. Bæklingur sem gefínn er út til að kynna verkefnaskrá þessa starfsárs er skreyttur litmyndum af stórstjömum á borð við Kiri Te Kanawa, Jessye Norman, Marg- aret Price, Placido Domingo, Luciano Pavar- otti og nokkmm fleiri. Þar em líka svart- hvítar myndir (og miklu minni) af um fímmtíu öðrum sem líklega em ekki taldir hafa sama sölugildi þar vestra. í þeim hópi Vika í Liiicoln Center ótt mér auðnaðist ekki að komast á sýningu í Metropolitan-óperunni þessa daga sem ég dvaldist í New York í haust, eins og frá var sagt í fyrri grein, fór ég þó ekki varhluta af óperusýningum, svo var Borgaróperunni (NY Stórstjörnurnar eru langflestar útlendingar í Bandaríkjunum á stöðugum þeytingi heimshornanna á milli og raunar alls staðar gestir. Þetta torveldar mjög að náðst geti sú samstilling, sem á hálffrönsku fagmáli er kölluð „gott ensemble“ og felur í sér meðal annars, að heildin er sett ofar einstökum þáttum hennar. Síðari hluti EftirJÓN ÞÓRARIN SSON City Opera) fyrir að þakka. Svo heppilega vildi til að nýlega var hafín „haustvertíð“ Borgarópemnnar, sem stendur frá miðjum september fram undir nóvemberlok, en þá tekur við Ríkisleikhúsinu Borgardansflokk- urinn sem hefur afnot af því fram til febrúar- loka. Þá hefst aftur „vorvertíð" ópemnnar og svo koll af kolli. Þetta fyrirkomulag hlýt- ur að krefjast mikillar skipulagningar, for- sjálni og samstarfsvilja af hálfu þeirra sem við það búa, en ekki ber á öðm en báðum aðilum vegni vel við þessar aðstæður. „LlVE FROM LINCOLN CENTER“ Fyrsta kvöldið sem við hjónin vomm í New York duttum við ofan á beina sjón- varpsútsendingu frá Borgarópemnni á „Rig- oletto" eftir Verdi og fylgdumst vel með henni. Þessi sýning var þáttur í röð beinna sjónvarpsútsendinga frá listviðburðum í Lin- coln-miðstöðinni sem gengur undir nafninu „Live from Lincoln Center“ og hefur verið ríkur þáttur í starfseminni síðan 1976. Tug- ir milljóna Bandaríkjamanna fylgjast árlega með þessum útsendingum, en þær em á dagskrá „Public Television“ sem víst má kalla „menningarrásina" meðal bandarískra sjónvarpsstöðva. Sendir em út hljómsveitar- tónleikar, ópemsýningar, tónleikar ein- söngvara og einleikara og hvaðeina annað sem áhuga vekur. Geysimikil vinna og hug- vit hefur verið lagt í að leysa þau margvís- legu vandamál, bæði tæknileg og dagskrár- leg, sem samfara em slíkum útsendingum. Þetta tel ég hafi tekist með þeim hætti að til fyrirmyndar sé. Sýningin á „Rigoletto" var þáttur í þessu starfi sem fyrr segir. Hér var um að ræða nýja uppsetningu verksins frá því fyrr á haustinu. Að því er til sjónvarpsvinnunnar tekur var ljóst að þar vom engir viðvaning- ar að verki. Vinnubrögð öll vom vönduð og ýmislegt gert til að nálgast áheyrendur og áhorfendur. Til dæmis vom söngvarar í aðalhlutverkum, ungir og glæsilegir en ekki komnir í tölu stórstjama, teknir tali í hléinu, og sá sem talaði við þá var enginn annar en forstjóri ópemnnar, sópransöngkonan Beverly Sills. Hún tók við þessu embætti 1979, þá um það bil að stíga niður af svið- inu sjálf eftir að hafa notið þar óvenjulegs frama og vinsælda, einnig í sjónvarpi. Hlýja hennar og auðsæ umhyggja fyrir þessu unga fólki átti með öðm þátt í þeim geð- fellda blæ sem einkenndi sýninguna, að ógleymdri frábærri frammistöðu listamann- em þó ekki lakarí söngvarar en Edita Gmb- erova og Christa Ludwig svo að einhveijir séu nefndir. Langflest af þessu fólki er út- lendingar í Bandaríkjunum, á stöðugum þeytingi heimshomanna á milli og raunar alls staðar gestir. Þetta torveldar mjög að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.