Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 13
A R Nútímateikning af skipi Eiríks rauða. muni siglt vera tylft fyrir sunnan ísland." Höfundur Konungs skuggsjár telur auðsæi- lega að byggðir Grænlands liggi jafnvel norð- ar en nyrstu héruð Noregs: „Það veistu að hér er um veturinn með oss lítill dagur og sólargangur, svo að sólin hefir eigi meiri rás en veltist um eina átt og þar að einu sem allgott er sólarmegin, en í mörgum stöðum er það að hana má eigi sjá mikinn hluta vetr- ar, en allra helst á Hálogalandi, er vér höfum eigi aðeins fréttir til haft, heldur oft séð með eigin augum og reynt.“ Hugmyndir Islendinga um norðrið eru allt aðrar en þær sem birtast í Konungs skugg- sjá. Einsætt er að hérlenskir fræðimenn hugðu að land lægi samfellt frá Grænlandi til nyrsta hluta Evrópu, og mun þar frosið haf vera talið land: „Af Bjarmalandi ganga lönd óbyggð af norðurætt, uns við tekui Grænland. Suður frá Grænlandi er Helluland, þá er Markland, þá er eigi langt til Vínlands hins góða, er sumir menn ætli að gangi af Afric.a.“ Þótt New York liggi nokkrum þver- baugum norðar en nyrsti hluti Afríku, þá má vel vera að hnattstaðan báðum megin Atlantshafs eigi einhvem þátt í þessari hug- mynd: Vínland lá svo sunnarlega að því varð helst jafnað til Afríku. Landaröðin: Grænland - Helluland - Markland - Vínland mun vera þegin úr heimanfengnum fróðleik, enda kem- ur þetta saman við Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða. En örðugt er að ráða af heimildum hve langt var á milli þessara landa, enda er einsætt að vegalengdir í sögunum eru mun minni en í veruleikanum sjálfum; landafræði sagnanna tveggja er ekki hin sama og nú verður kennt í sæmilegum skólum. Leifur Eiríksson í Brattahlíð verður fyrstur Grænlendinga í letrum þessa heims húseig- andi á meginlandi Vesturálfu, ef treysta má Grænlendinga sögu, og raunar er ósennilegt að margir slíkir hafi verið síðan. Sagan herm- ir svo frá að þeir Leifur og félagar hans hafi reist sér „hús mikil“ á láglendi við stöðuvatn eitt, og þaðan fellur á skamman farveg til sjávar. Eftir að húsagerð er lokið, skiptir Leifur liði sínu í tvo hópa: annar helmingur á að vera heima við skála og hinn að kanna landið; þó skyldu þeir koma heim að kveldi. Með því að þeir eru svo tjóðraðir við tiltekinn stað að þeim er ekki leyft að komast nema svo sem hálfa dagleið að heiman, þá gátu þeir ekki kynnst nema takmörkuðu svæði. Það eru því engin undur, þegar heim er kom- ið, að Þorvaldi Eiríkssyni þykir „of óvíða kannað hafa verið Iandið“. í Grænlendinga sögu er það skýrt tekið fram að Leifsbúðir (en svo kallast fasteign Leifs) standa í Vínlandi, og þangað leita allir leiðangursmenn þeirrar sögu úr Eiríksfirði. Könnunarferðir hefjast í Brattahlíð, og þegar er til Leifsbúða kemur, er farið að kanna svæði sem höfðu ekki verið rannsökuð áður. Leifur tekur það skýrt fram við hvern leiðang- ursmann á fætur öðrum að hann sé fús að ljá húsakynni á Vínlandi, en hins vegar neit- ar hann að selja Leifsbúðir eða gefa. Þorvald- ur lætur nokkra menn fara í könnunarferð á eftirbáti skips frá Leifsbúðum, og á hinn bóginn siglir hann kaupskipi sjálfur með öðr- um félögum sínum í því skyni að kanna landið í aðrar áttir. Þegar Þorfinnur karlsefni og þeir félagar koma til Leifsbúða hafa þeir ærið að starfa við að skera hval, fella við og sinna veiðum og vínberjum. Sumarið eftir fara þeir að stunda verslun við Skrælingja, en leist þó ekki betur en svo á Vínlendinga að þeir gera „skíðgarð rammlegan um bæ sinn“. Karlsefni og lið hans höfðu nóg að gera að verja sig gegn ásókn heimamanna og draga saman nýtilega hluti í skipsfarm, en ekkert varð af landkönnun í það skiptið, enda ætlaði þessi grænlenski og íslenski hóp- ur sér að taka sér bólfestu á Vínlandi. Fjórða Vínlandsförin í Grænlendinga sögu er auðsæi- lega farin í gróðaskyni einu; þau Freydís og austfirsku farmennimir Helgi og Finnbogi reyna ekkert að svala forvitni sinni með því að kanna landið, og fyrir starfa sinn á Vínlandi hlaut Freydís engan frama heldur ófrægð eina. Eiríks sögu rauða hermist öðruvísi frá; þar er Leifsbúða að engu getið, og raunar er Vínland einungis nefnt tvívegis (í Skálholts- bók) eða þrívegis (Hauksbók); fyrst í sam- bandi við leiðangur Karlsefnis: (1) „Á því léku miklar umræður um veturinn í Brattahlíð að þeir Karlsefni og Snorri ætluðu að leita Vínlanids, og töluðu menn margt um það.“ Síðan er lýst förinni suður um haf til ókunnra landa, en þau reynast auðsæilega ekki vera Vínland, eins og ráða má af misklíð þeirra Þórhalls og Karlsefnis: (2) „Vill Þórhallur veiðimaður fara norður um Furðustrandir og fyrir Kjalarnes og leita svo Vínlands, en Karls- efni vill fara suður fyrir land og fyrir austan og þykir land því meira sem suður er meir, og þykir honum það ráðlegra að kanna hvort- tveggja." Vitaskuld finnur Þórhallur ekki , Vínland, og endalok hans urðu þau að skipið rak austur um þvert Atlantshaf og þeir skip- verjar voru þjáðir og barðir á Irlandi. En Karlsefni „fór suður fyrir land“ þangað sem staðháttum svipar mjög til Vínlands þess sem, prýðir Grænlendinga sögu, og kölluðu þeir þennan stað „í Hópi“. Þar eru þeir heilan vetur og „kom alls engi snjór, og allur fénað- ur gekk þar úti sjálfala." Þetta mun að öllum líkindum vera Vínland. Þó segir um norðurför þeirra í Hauksbók að þeir héldu frá Straums- firði sem var miklu norðar: 3) „Þá er þeir sigldu af Vínlandi tóku þeir suðræn veður og hittu á Markland". Eiríks saga rauða get- ur þess í sambandi við Straumsíjörð að mönn- um komi ekki saman um hvemig leiðangri var hagað í suðurátt þaðan: „Er það sumra manna sögn að þau Bjami og Guðríður hafi þar eftir verið og tíu tugir manna með þeim og hafi eigið farið lengra, en þeir Karlsefni og Snorri höfðu suður farið og fjórir tugir manna og hafí eigi lengur verið í Hópi en vart tvo mánuði og hafr hið sama sumar aft- ur komið.“ Þegar Landnáma rekur niðjatal Höfða- Þórðar minnist hún „Karlsefnis, er fann Vínland hið góða“. Hér er auðsæilega hlítt sömu arfsögn og í Eiríks sögu rauða, þar sem greint er frá siglingu Karlsefnis „suður fyrir land“. Mikill myndarbragur er yfir Þorfinni karlsefni hvar sem hann kemur fram, og seint mun fyrnast frásögn af skagfírskum far- manni sem heldur ótrauður í suðurátt um ókunnar slóðir — í leit að nýju landi og sjálf- um sér um leið. Nú skal hverfa aftur að frægustu máls- grein Grænlendinga sögu sem víkur að legu Vínlands: Meira var þar jafndægri en á Grænlandi eða íslandi. Sól hafði þar eyktarstað og dag- málastað um skammdegi. Þessi stutta glefsa gefur okkur gleggri hugmynd um legu Vínlands en nokkuð atrið annað í fornum letrum okkar, en þó þykir hinum fróða snillingi Ólafi Halldórssyni ekki ýkja mikið á slíkri vitneskju að græða. Hann telur að „orðalagið Sól hafði þar eyktarstað og dagmálastað um skammdegi [hafi] ekki svo nákvæma og afmarkaða merkingu að það verði notað sem grundvöllur og forsenda stærðfræðilegra útreikninga". (Grænland í miðaldaritum, 101). Hér ætla ég þó að svei- tunga Bjarna Heijólfssonar, hins óforvitna farmanns í Grænlendinga sögu, hafi að öllum líkindum skotist yfir atriði sem glöggum Norðlendingum hafa löngum verið kunn, allt frá því að Stjömu-Oddi gerði grein fyrir sólar- gangi „norður á íslandi", svo að notað sé orðbragð í gamalli skrá. Ölafur Halldórsson skilur mætavel að orðin dagmálastaður og eyktarstaður vita að þeim stundum sólar- hrings sem nú em nefndar klukkan níu að morgni og hálf-fjögur síðdegis, en hins vegar virðist bögglast fyrir bijósti hins spaka manns hveija merkingu eigi að leggja í setninguna í heild. Hér verða lærdómsmenn ekki á einu máli, en þó má sennilegt þykja að nú sé ver- ið að ýja að þvi að sól beri vel yfir sjóndeildar- hring á tilteknum stundum. Sólargangur vex og þverr, segir í fornum letmm okkar, en þó munu menn aldrei hafa sætt sig við þá hug- mynd að sól hefði „eyktarstað" eða „dagmála- stað“ nema hún væri nógu hátt á lofti til að yppa sér yfir þau kennileiti sem miðað var við. Hér hnígur því allt í sömu átt, eins og ráðið verður af gleggstu landabréfum þessa heims: Vínland hið góða getur ekki hafa ver- ið öllu norðar en þar sem New York stendur nú, og ástæðulítið er að leita landsins langt fyrir sunnan New Jersey. Jóhann Hjálmarsson þýddi Mynd: Flóki Nú rotnar englahjörð Guðs og varúlfurinn ósýnilegi vælir undir gálganum Töfrandi og alvörugefin kona tekur leyndar þrár sínar með sér í gröfina Rotturnar breytast í blóðugar leðurblökur og grátandi fugla Óttinn fær vængi Þú opnar dyrnar fyrir vargamyrkrinu og ógnvænlegri fegurð framandi landslags Höfundur er skáld og ritstjóri í Dan- mörku. Ljóðið er í nýrri bók með Ijóða- þýðingum eftir Jóhann Hjálmarsson og heitir hún „I skolti levitans". Alfreð Flóki lézt fyrir aldur fram 1986, en hann hefði orðið 50 ára 19. desember sl. Flóki ULF GUDMUNDSEN LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. JANÚAR 1989 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.